Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Þorgerður: Bandaríkin greinilega ekki unnendur ESB

Read Full Article →

Innlent | mbl | 12.3.2026 | 18:52 Þorgerður: Bandaríkin greinilega ekki unnendur ESB Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fylgdist með umræðum um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu á Alþingi í vikunni. mbl.is/Karítas Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Ráðherra fór með rangt mál Ræða mál sem þau hafa áhuga á Skýrt umboð skiptir máli Tæki ekki langan tíma að ljúka viðræðum Evrópusambandið fylgi hótunum sínum ekki eftir » Fleiri tengdar fréttir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segir ljóst að bandarísk yfirvöld séu ekki miklir unnendur Evrópusambandsins og tali í raun mjög gegn því. Á fundum sínum með ráðamönnum í Washington í gær hafi hún hins vegar greint frá því að fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla um áframhald viðræðna Íslands við ESB snúist um að setja Ísland í fyrsta sæti rétt eins og bandarísk yfirvöld tala um að setja Bandaríkin í fyrsta sæti. Þorgerður varði gærdeginum í bandarísku höfuðborginni þar sem hún fundaði meðal annars með Elbridge Colby varavarnarmálaráðherra, Andy Baker varaþjóðaröryggisráðgjafa og Jeff Hovenier varautanríkisviðskiptaráðherra. Frétt af mbl.is Þorgerður heldur til Washington Alveg eins og þeir eru að hugsa America First Spurð hvort að mögulegar aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu hafi borið á góma á þessum fundum segist Þorgerður hafa greint þeim frá þjóðaratkvæðagreiðslunni sem til stendur að halda 29. ágúst. „Ég greindi þeim frá því að þetta væri í höndum íslensku þjóðarinnar að taka ákvörðun um þetta skref og að það væri ekki síst til þess að tryggja efnahagslegar varnir og öryggi fjölskyldna, heimila og íslenskra fyrirtækja þegar heimurinn er að breytast svona í viðskiptum og tollar eru lagðir á vestan hafs sem austan,“ segir Þorgerður. „Þetta er líka liður í því að efla samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs, auka samkeppni á sviðum sem vantar meiri samkeppni, en síðast en ekki síst til þess að líka bara að veita Íslendingum tækifæri á að sjá hvað hugsanlega svona samningur felur í sér fyrir okkar hag.“ Þetta segir hún að bandarísku ráðamennirnir hafi skilið. „Þeir skildu hvað við erum að gera, ég sagði að alveg eins og þeir eru að hugsa America First þá er ég að hugsa Ísland í fyrsta sæti og veita þjóðinni tækifæri í því að móta þá ferla.“ Tala mjög geng sambandinu Norski fjölmiðillinn Altinget greindi frá því á dögunum að Bandaríkjastjórn væri mjög mótfallin aðild Íslands að Evrópusambandinu. Spurð hvort hún hafi orðið vör við það viðhorf á fundum gærdagsins segir Þorgerður: „Nei, í rauninni ekki. Þeir átta sig á að þetta er okkar fullveldi og við erum að nýta það á þennan hátt. Það er alveg ljóst að þeir eru ekki mestu unnendur Evrópusambandsins og tala mjög gegn því, satt best að segja. Þeir eru náttúrulega í ákveðnu viðskiptalegu samtali þar og það er greinilegt að það er verið að taka ákveðna stöðu á því sviði. En nei, ég get ekki sagt að þeir hafi beint sagt að þeir væru mótfallnir því.“ Frétt af mbl.is Hitnaði í kolunum vegna meintra MAGA-tengsla Má búast við að sum ríki séu ekki hrifin Hún bætir við að Bandaríkin, rétt eins og aðrar þjóðir, verði að gera sér grein fyrir því að um sé að ræða íslenskt mál. „Það erum við sem erum að ákveða þetta og það eru ekki aðrar þjóðir sem hafa rétt á því að skipta sér af þessu. Þetta er okkar fullveldismál. Það erum við sem erum að taka þessa ákvörðun alveg eins og það vorum við sem ákváðum að vera aðilar að EFTA, það vorum við sem ákváðum að vera aðilar að NATO á sínum tíma. Það eru ekki aðrar þjóðir sem eiga um það ákvörðunarvald.“ Þá segir Þorgerður að það væri afspyrnu slæmt ef við stæðum frammi fyrir því að erlend ríki væru að skipta sér af kosningum. „Beint eða óbeint, hvort sem það er í gegnum einhverja stjórnmálaflokka eða fjölmiðla eða annað. En auðvitað erum við heldur ekki einföld. Það má alveg búast við því að sum ríki séu ekkert endilega hrifin af því að við hugsum þetta skref.“ Frétt af mbl.is Þjóðin á báðum áttum um viðræður: 52% gegn 48% Tengdar fréttir Ísland og ESB Ráðherra fór með rangt mál Ræða mál sem þau hafa áhuga á Skýrt umboð skiptir máli Tæki ekki langan tíma að ljúka viðræðum Evrópusambandið fylgi hótunum sínum ekki eftir » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Skemmtilegasta fólk landsins í gleðivímu Þorgerður: Bandaríkin greinilega ekki unnendur ESB Theron segir samstarfið við Baltasar ógleymanlegt Þýski miðjumaðurinn eftirsóttur Hvasst og blint: Færð getur spillst Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Reykjavíkurflugvöllur – starfsleyfi til bráðabirgða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Borga ekki umferðarsektir Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Spá hækkun vaxta og verðbólgu Engar ákvarðanir teknar um sjónvarpshlutann Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Andlát: Þorkell Jóelsson Andlát: Felix Ólafsson Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Síminn að kaupa miðla Sýnar Vatnsból í hættumat Mál öryrkjans sem missti húsið tekið fyrir Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Þorkell Jóelsson Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Nýjast á mbl.is » Skemmtilegasta fólk landsins í gleðivímu Þorgerður: Bandaríkin greinilega ekki unnendur ESB Theron segir samstarfið við Baltasar ógleymanlegt Þýski miðjumaðurinn eftirsóttur Hvasst og blint: Færð getur spillst Umræðan Minnkandi svigrúm sérlausna í stækkunarferli ESB Reykjavíkurflugvöllur – starfsleyfi til bráðabirgða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ferðamenn lentu á kafi í vatni Dómar Landsréttar í hryðjuverkamálinu ómerktir Fær ekki að leiða ráðherra til vitnis Drónar féllu til jarðar skammt frá Dúbaí-flugvelli Mest lesið Í gær Í vikunni Borga ekki umferðarsektir „Ósatt, bara lygar“ Ákærður fyrir að taka stúlku um borð í leyfisleysi Andlát: Þorkell Jóelsson Andlát: Felix Ólafsson Hættir sem yfirlæknir á Akureyri Sviptingar á fjölmiðlamarkaði og sæluríki ESB Síminn að kaupa miðla Sýnar Vatnsból í hættumat Mál öryrkjans sem missti húsið tekið fyrir Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Stúlkan er fundin Segist saklaus Andlát: Þorkell Jóelsson Ósamstiga um nægan meirihluta Sjaldan litið til almannahagsmuna í svona málum Inkalla hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Ingibjörg þakkar fyrir sig Segir af og frá að leigan sé 1,5 milljarðar Rannsókn á tveimur hópnauðgunum lokið Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Alltof margir fengið rangar rukkanir Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Vænir Ölmu Möller um lygar Andlát: Þorkell Jóelsson Lögreglan leitar að 14 ára stelpu

Share this article