Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB

Read Full Article →

Innlent | mbl | 16.3.2026 | 22:24 Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB Þórdís Kolbrún Reykjfjörð Gylfadóttir. mbl.is/Hákon Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Segir Kristrúnu ekki svara spurningum Kemur akkúrat engum við hvernig Inga kýs Gagnrýna að aðlögunarferli sé kallað samningaviðræður Óskýr svör ráðherra um aðlögun Þjóðaratkvæði áfram rætt í dag » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Kemur akkúrat engum við hvernig Inga kýs Þjóðaratkvæði áfram rætt í dag Snýr aftur eftir endurhæfingu Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum » Fleiri tengdar fréttir „Ég hef ekki skipt um skoðun um aðild að Evrópusambandinu en ég horfi á það leikkerfi sem við spilum eftir í dag og ég hef áhyggjur af því hvort það haldi.“ Þetta sagði Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, á Alþingi fyrr í kvöld þar sem umræður um þjóðaratkvæðagreiðslu varðandi viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu héldu áfram. Í ræðu sinni lagði Þórdís áherslu á að undirbúningur slíkrar ákvörðunar yrði að vera vandaður þar sem málið væri stærra en bæði núverandi ríkisstjórn og flokkspólitískir hagsmunir. Þá væri mikilvægt að málefnaleg og upplýst umræða færi fram áður en þjóðin tæki afstöðu. Frétt af mbl.is Þjóðaratkvæði áfram rætt í dag „Aðildarríki Evrópusambandsins eru auðvitað fullvalda og sjálfstæð ríki“ Hún benti á að heimsmálin væru að breytast hratt og að Íslendingar þyrftu að ræða af meiri yfirvegun hvaða áhrif þær breytingar gætu haft á stöðu landsins í alþjóðakerfinu. Að hennar mati hefði alþjóðasamstarf, meðal annars aðild að Atlantshafsbandalaginu, EES og samstarf við Bandaríkin, verið lykill að velmegun Íslands. Þá væri jafnframt mikilvægt að skoða hvernig önnur ríki utan Evrópusambandsins, svo sem Noregur, Bretland og Kanada, hygðust bregðast við breyttu alþjóðakerfi og benti hún á að Kanada hefði t.a.m. ámálgað hugmyndir um að tengja varnir sínar við Evrópusambandið. „Ég vil líka segja hér að það er ekki rétt að halda því fram að við værum hvorki sjálfstæð þjóð eða fullvalda ef við værum aðilar að Evrópusambandinu. Aðildarríki Evrópusambandsins eru auðvitað fullvalda og sjálfstæð ríki. En það er hins vegar hárrétt að í aðild fælist valdaframsal. Svo mikið valdaframsal að stjórnarskrá lýðveldisins heimilar ekki slíkt framsal og henni þyrfti að breyta. Við gætum ekki gerst aðilar án þess að breyta stjórnarskránni og setja þær heimildir fyrir slíku valdframsali. Þannig að valdaframsalið er sem sagt svo mikið að það þarf að breyta stjórnarskránni og þess vegna finnst mér mikilvægt að kjósendur átti sig á því og að það sé algerlega skýrt.“ Frétt af mbl.is Skýrt umboð skiptir máli Kjósendur hafi vel um hvort þeir treysti stjórmálamönnum Sagði Þórdís undir lok ræðu sinnar að í umræðum um þingsályktunartillöguna hefði oft verið talað um traust til þjóðarinnar. Hún væri orðin þreytt á þeirri línu og teldi hana ranga. „Stjórnmálamenn í lýðræðisríki hafa ekkert val um það hvort þeir treysti kjósendum. Hins vegar hafa kjósendur val um það hvort þeir treysta stjórnmálamönnum þannig að okkar hlutverk í þessum sal er að gera okkar besta til að standa undir því trausti.“ Ekkert óeðlilegt við að umræðan sé hafin Þorgrímur Sigmundsson, þingmaður Miðflokksins, veitti ræðu Þórdísar andsvar og sagði þar að flókið væri að átta sig á hvar Þórdís stæði varðandi málefnið og spurði hana hvort hún væri hlynnt inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Sagði Þórdís í svari sínu að henni fyndist ekki óeðlilegt að umræðan um að hefja aðildarviðræður væri nú að eiga sér stað þar sem það hefði verið eitt af þeim verkefnum sem ríkisstjórnin hefði boðað. Það væri því vitað að þjóðaratkvæðagreiðslan myndi eiga sér stað með einum eða öðrum hætti. Sagði hún aukinheldur að hún væri að benda á í ræðu sinni að málið væri stærra en flokkspólitík og snerist um Ísland. Þá hefði hún heyrt skýrt frá ríkisstjórninni að meiri hluti þjóðarinnar myndi ráða niðurstöðunni. Hún sjálf væri þeirrar skoðunar að það þyrfti sterkar undirstöður fyrir ákvörðun eins stóra og þessa og öllu því sem í framhaldinu kæmi. Þorgrímur Sigmundsson, þingmaður Miðflokksins. mbl.is/Birta Margrét Myndi leggja til þéttara samstarf við Evrópusambandið Tók þá Þorgrímur á ný til máls og fagnaði því að það hefði komið fram með afgerandi hætti að málið snerist um Ísland. Bætti hann við að baráttan um Ísland væri hafin í boði ríkisstjórnarinnar. Þá beindi hann annarri spurningu til Þórdísar og spurði hana hvort það væri boðleg aðferðafræði af hálfu ríkisstjórnarinnar að hefja málið með þessum hætti. Sagði Þórdís að ef hún væri við völd myndi hún leggja til þéttara samstarf við Evrópusambandið. „Ég myndi leggja til markvisst að reyna að kæra Ísland inn í flest, ef ekki allt, sem Bretar og Norðmenn eru saman að gera og oft og tíðum með Kanada líka. Ég myndi líta mjög til þess að Kanada, eins og ég nefndi, sem er 100 sinnum fjölmennari en við, er að þétta raðirnar með Evrópusambandinu, pólitískt, efnahagslega og á sviði varnarmála, ekki af því að þau eru að fara að ganga inn í ESB, ekki af því að þau eru 400.000 en þau gera það samt.“ Málflutningur Miðflokksins óþægilegur Sagði Þórdís að sér hafi stundum þótt óþægilegt hvernig Miðflokkurinn hafi rætt um alþjóðasamstarf almennt sem og EES-samstarfið. Fulldramatískt væri að tala um að baráttan um Ísland væri hafin. „Ég hef bara áhyggjur af því að heimurinn sé að breytast það mikið að við munum þurfa með einum eða öðrum hætti að endurhugsa hvar við eigum heima og þess vegna benti ég á að staðan frá algerlega óbreyttu kerfi yfir í að ganga í ESB - [það] er mikið pláss þar á milli og það er þar sem ég hef viljað staðsetja mig. Ég hef ekki skipt um skoðun um aðild að Evrópusambandinu en ég horfi á það leikkerfi sem við spilum eftir í dag og ég hef áhyggjur af því hvort það haldi.“ Tengdar fréttir Ísland og ESB Segir Kristrúnu ekki svara spurningum Kemur akkúrat engum við hvernig Inga kýs Gagnrýna að aðlögunarferli sé kallað samningaviðræður Óskýr svör ráðherra um aðlögun Þjóðaratkvæði áfram rætt í dag » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Kemur akkúrat engum við hvernig Inga kýs Þjóðaratkvæði áfram rætt í dag Snýr aftur eftir endurhæfingu Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB „Munum að sjálfsögðu vinna“ Fyrirliðinn lætur gott heita Secured a spot in the Bocuse d’Or finals Endurkoma botnliðsins í Lundúnum Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rannsökuðu slysstað á Miklubraut Hyggjast fjölga hjúkrunarrýmum um tæpan helming Um 500 manns biðu veðrið af sér Búið að slökkva eldinn í rútunni Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Þóra skipuð yfirlögregluþjónn Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB „Munum að sjálfsögðu vinna“ Fyrirliðinn lætur gott heita Secured a spot in the Bocuse d’Or finals Endurkoma botnliðsins í Lundúnum Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Spurði um hæfi Ölmu ráðherra Þjóðaratkvæði áfram rætt í dag Gæti orðið reiðarslag fyrir bæjarfélagið Óskýr svör ráðherra um aðlögun Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Þóra skipuð yfirlögregluþjónn Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir

Share this article