Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Segir fund með Þorgerði Katrínu vonbrigði

Read Full Article →

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar mætti á opinn fund utanríkismálanefndar Alþingis í morgun. Þorgerður sagði á fundinum að ummæli hennar um að Ísland fengi fiskveiðikommissarinn gengi þjóðin í Evrópusambandið, sem féllu á fundi með forvígismönnum íslenskra millilandaviðskiptaráða og Morgunblaðið fjallaði um í gær, hefðu verið brandari. Ráðherrann upplýsti ekki hvort fundarmenn hefðu hlegið. Þorgerður sagði að engar aðildarviðræður væru hafnar við Evrópusambandið. Þá skaut utanríkisráðherrann föstum skotum á stjórnarandstöðuflokkana. Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í utanríkismálanefnd, spurði ráðherrann fjögurra spurninga. Hún segist aðeins hafa fengið svar við einni og hálfri þeirra. Diljá segir að Þorgerður hafi heldur notað tímann í eigið málþóf, með því meðal annars að fjalla um þingstörfin síðasta sumar. Segist hún muni óska eftir öðrum opnum fundi. Í myndbandinu má sjá svar Þorgerðar við spurningum Diljár Mistar. Yfirlýsing Diljár Mistar eftir fundinn. Utanríkisráðherra í málþófi á opnum fundi utanríkismálanefndar: Vill ekki nota orðin „full og varanleg“ yfirráð yfir auðlindum Íslands. Framkoma utanríkisráðherra á opnum fundi utanríkismálanefndar í morgun var vonbrigði. Fundurinn var haldinn í því skyni að afla betri upplýsinga fyrir þingmenn, og fyrir þjóðina, fyrir boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég hafði undirbúið mig vel og bar fram fjórar spurningar til ráðherra. Fyrirspurnir á svona fundum eru tímasettar þar sem tíminn er naumur og allir nefndarmenn þurfa að komast að. Í stað þess að svara spurningum mínum, uppskar ég langan fyrirlestur um það að stjórnarandstaðan hefði verið í málþófi í fyrra. Til að gæta allrar sanngirni fékk ég 1,5 svar, annars vegar um það að ráðherra teldi að miklir hagsmunir Íslands væru undir að seinka atkvæðagreiðslunni ekki um nokkrar vikur fram yfir sumarleyfi, og hins vegar að ummæli hennar um fiskveiðikommissarinn hefðu verið brandari. Það vekur sérstaka athygli að ráðherrann neitaði tvívegis að svara því hvort skilyrði ríkisstjórnarinnar væru „full og varanleg“ yfirráð yfir auðlindum Íslands og hvort við gætum undirgengist sameiginlega sjávarútvegsstefnu ESB, en Þórdís Kolbrún reyndi að fylgja þeim spurningum mínum eftir. Það er gríðarlega mikilvægt að við fáum sem mestar upplýsingar fyrir fyrirhugaða atkvæðagreiðslu. Það er því miður að utanríkisráðherra hafi varið tíma sínum svo illa á fundinum. Bæði gagnvart mér, sem hafði undirbúið fundinn vel, en fyrst og fremst gagnvart almenningi sem kallar eftir betri upplýsingum og svörum. Vegna framangreinds mun ég óska eftir öðrum opnum fundi með ráðherra. Tilgangur fundarins er enda að fá svör við spurningum, ekki að við sitjum undir fyrirlestri og áróðri ráðherra. Læt fylgja með spurningar mínar til ráðherra: 1) Hefur það komið fram í samtölum ráðherra við fulltrúa ESB að sambandið muni taka upp íslenska fiskveiðistjórnunarkerfið? og hefur okkur verið lofað því, eða gert að því skóna, að við fáum „fiskveiðikommissarinn“ í okkar hlut, við aðild Íslands að ESB? 2) Ætlar ráðherra ekki að upplýsa skýrt um ófrávíkjanleg skilyrði þessarar ríkisstjórnar í viðræðunum sem hún vill umboð til að fara í, áður en þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram? Gefa þessi skilyrði út? Er ráðherra tilbúin til að lýsa því yfir að skilyrði ríkisstjórnarinnar séu „full og varanleg yfirráð“ yfir auðlindum Íslands? 3) Hvernig fer það saman að við yrðum aðilar að sameiginlegu sjávarútvegsstefnu ESB og að við höldum samt fullu og varanlegu forræði yfir auðlindum okkar? Er það skilyrði ríkisstjórnarinnar, komi til viðræðna, að Ísland verði ekki aðili að sameiginlegu sjávarútvegsstefnu ESB? 4) Tímasetningin sem ráðherra leggur til er á sumarleyfistíma Íslendinga og Alþingi ekki að störfum. Getur ráðherra upplýst um hvort og þá hvaða hagsmunir Íslands raskist við það að atkvæðagreiðslunni yrði seinkað um nokkrar vikur?

Share this article