Innlent | mbl | 27.2.2026 | 10:50 Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Aðalsteinn Leifsson, fyrrverandi ríkissáttasemjari. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Umbót til liðs við Sjálfstæðisflokkinn Regína á lista Samfylkingarinnar Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Regína hættir fyrr sem bæjarstjóri Einar verður oddviti Miðflokksins í Kópavogi » Fleiri tengdar fréttir Aðalsteinn Leifsson hefur ákveðið að láta af störfum sem aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Hann segir ástæðuna líklega koma flestum á óvart, nema hans nánustu vinum. Staðreyndin sé sú að hann vilji gefa sér meira svigrúm til að sinna verkefni, sem hafi byrjað sem lítið áhugamál en nú orðið að ástríðuæ. „Það er guðfræðinám í Háskóla Íslands,“ skrifar Aðalsteinn á Facebook . „Ég hef satt að segja reynt að streitast á móti, enda er þetta tómt vesen(!) en það kallar á mig að fara „alla leið“ og ljúka embættisprófi í fyllingu tímans.“ Veki spurningar um sæti á lista í borginni „Samhliða því ætla ég að gera það sem ég geri e.t.v. best; að veita ráðgjöf í samningaviðræðum og lausn deilumála og að kenna samningatækni og sáttamiðlun. Ég fæ stöðugt beiðnir um að veita þjálfun og ráðgjöf í hvoru tveggja en hef ekki haft mikinn tíma til þess og hlakka til að geta brugðist oftar jákvætt við og aðstoðað fólk, stofnanir og fyrirtæki samhliða náminu. Þannig get ég vonandi hjálpað til og átt fyrir salti í grautinn í leiðinni. Ég skrifaði bók um samningatækni sem er notuð í öllum háskólunum og er núna að vinna að bók um sáttamiðlun, með tveimur frábærum meðhöfundum.“ Aðalsteinn tekur fram að á einu ári í ráðuneytinu hafin hann virkilega notið samstarfsins við Þorgerði Katrínu og sé þakklátur fyrir það traust sem hún hafi sýnt honum, „m.a. með því að gefa mér færi á að leiða vinnuna við mótun fyrstu formlegu stefnu Íslands í varnar- og öryggismálum sem formaður samráðshóps þingmanna“. „Það verkefni gekk mikið betur og mikið hraðar en bjartsýnasta fólk þorði að vona. Þorgerður Katrín hefur beðið mig að fylgja því eftir sem varaþingmaður þó að ég fari úr ráðuneytinu og ég mun að sjálfsögðu gera það.“ Hann segist gera sér grein fyrir að þetta veki spurningar um mögulega þátttöku á lista Viðreisnar í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík, þar sem hann var í öðru sæti í prófkjöri. „Ég gef að sjálfsögðu kost á mér en kosningin var ekki bindandi nema í fyrsta sæti og uppstillingarnefndin, sem hefur málið í höndum sér, mun skila niðurstöðu fljótlega. Lífið er núna. Lifið heil!“ Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Umbót til liðs við Sjálfstæðisflokkinn Regína á lista Samfylkingarinnar Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Regína hættir fyrr sem bæjarstjóri Einar verður oddviti Miðflokksins í Kópavogi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Umbót til liðs við Sjálfstæðisflokkinn Gugga í gúmmíbát svarar nettröllum fullum hálsi Ótrúleg dramatík hjá Lakers „Við þurfum þessar vinnandi hendur“ Umræðan Tölum saman Að ákveða hvað aðrir snæða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fjöldi útkalla: Strætó fór út af á Holtavörðuheiði Árás á orkuinnviði Norðurlanda sögð yfirvofandi Lögreglan varar við fíkniefninu Kratom „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Mest lesið Í gær Í vikunni Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög Fullt tilefni til að hafa áhyggjur „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Síðustu vélarnar í loftið í nótt Óútgefin prófskírteini til sýnis í Háskóla Íslands Holtavörðuheiði og Fjarðarheiði lokaðar Byggja á síðustu sjávarlóðinni á Seltjarnarnesi Samfylkingin með 30% fylgi og Miðflokkurinn 20% Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Nýjast á mbl.is » Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Umbót til liðs við Sjálfstæðisflokkinn Gugga í gúmmíbát svarar nettröllum fullum hálsi Ótrúleg dramatík hjá Lakers „Við þurfum þessar vinnandi hendur“ Umræðan Tölum saman Að ákveða hvað aðrir snæða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Út úr myndinni að stýrivextir lækki Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Dómur yfir Steinu staðfestur í Landsrétti Óviss um öryggi barna og gagnrýnir Veðurstofuna Mest lesið Í gær Í vikunni Skólahald fellur niður: Segja borgina brjóta lög Fullt tilefni til að hafa áhyggjur „Gjörunnin matvæli“ á boðstólum Borgin viðurkennir ranga upplýsingagjöf Strætó bs. hirðir styrki af verktökum Síðustu vélarnar í loftið í nótt Óútgefin prófskírteini til sýnis í Háskóla Íslands Holtavörðuheiði og Fjarðarheiði lokaðar Byggja á síðustu sjávarlóðinni á Seltjarnarnesi Samfylkingin með 30% fylgi og Miðflokkurinn 20% Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Vara Íslendinga við strangari skilyrðum í Bretlandi Glerbrotum rigndi inn í bílinn Varar við inngöngu Íslands í ESB Nær 20 flug raskast vegna skyndilegs byls Andlát: Víglundur Þór Þorsteinsson Svona er listi Samfylkingarinnar í borginni Óvinsælasti innkirtlafræðingur landsins Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Talinn vera undir mölinni Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál