Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Enginn óður til gjöreyðingar

Read Full Article →

Innlent | Sunnudagsblað | 12.4.2026 | 10:30 Enginn óður til gjöreyðingar Hjónin Ásdís Rósa Þórðardóttir og Ívar Páll Jónsson. mbl.is/Árni Sæberg Orri Páll Ormarsson [email protected] Setja bókamerki „Það er enginn óður til gjöreyðingar á þessari plötu, vonandi frekar í hina áttina. Uppleggið hjá okkur er gleði; við erum að fagna lífinu, kærleikanum og voninni,“ segir Ívar Páll Jónsson, forsprakki indírokksveitarinnar Jane Telephonda, um plötuna Samhengið sem kom út í vikunni. Eiginkona hans, Ásdís Rósa Þórðardóttir, söngkona Jane Telephonda, tekur heilshugar undir þetta. Gleðin og vináttan hafi alltaf ráðið för við tónsköpun sveitarinnar. Þau segja lífið ekki þurfa að vera flókið. „Gerum eitthvað algjörlega frábært á hverjum degi og þá gerist eitthvað uppbyggilegt og gott,“ bætir Ívar Páll við og vísar þar í upphafslag plötunnar sem einmitt heitir Gerum eitthvað algjörlega frábært. Þar segir: Gerum eitthvað algjörlega frábært, fyrir aðra, fyrir okkur, fyrir börnin, fyrir okkur sjálf, fyrir heiminn sem við eigum því að lífið kemur okkur þá óforvarandis í opna skjöldu Horfum á það jákvæða Ásdís Rósa og Ívar Páll viðurkenna að kúnst sé að gera jákvæða en um leið tilfinningaríka tónlist en það sé eigi að síður markmið og leiðarvísir Jane Telephonda. „Það er mikið til af neikvæðri tónlist í heiminum og oft er eins og að menn losni ekki undan þunglyndislegum áhrifum í tónlist sem þeir urðu fyrir á yngri árum. Það er synd enda miklu gæfulegra að horfa jákvæðum augum á lífið og tilveruna,“ segir Ívar Páll. – Hvers vegna heitir platan Samhengið? Níu af 11 liðsmönnum Jane Telephonda samankomnir á æfingu. „Lífið er eitt stórt samhengi. Allt hangir saman og er afstætt. Sama á við um okkur öll, við höngum saman, hvort sem okkur líkar betur eða verr,“ svarar Ívar Páll og Ásdís Rósa bætir við: „Svo getum við haft áhrif á þetta samhengi.“ Sungið á íslensku Samhengið er þriðja breiðskífa Jane Telephonda. Sú fyrsta, Boson Of Love, kom út 2017 og sú næsta, We are the Music, 2024. Eins og nöfnin gefa til kynna var þá ort og sungið á ensku en nú hefur sveitin söðlað um og syngur alfarið á íslensku. Hvernig ætli standi á því? „Þegar allt kemur til alls þá hafði Árni Matthíasson [einn helsti tónlistarsérfræðingur þjóðarinnar] rétt fyrir sér,“ viðurkennir Ívar Páll. „Hann var alltaf að fjargviðrast yfir því að íslenskar hljómsveitir syngju á útlensku og hvatti þær til að nota íslenskuna frekar. Að því kom að maður hlustaði á hann.“ Sjálfur ólst Ívar Páll upp við Bítlana og aðra góða sem sungu á ensku. „Maður vildi herma eftir þessum hetjum og taldi í oflæti sínu að maður gæti staðið á sama stalli og þær. Það var auðvitað mesti misskilningur.“ – Þannig að þú ert kominn niður af stallinum? „Já, það má segja það,“ svarar Ívar Páll hlæjandi. Samhengið verður flutt í heild sinni á útgáfutónleikum í Tjarnarbíói 21. apríl, ásamt eldra efni Jane Telephonda. Nánar er rætt við hjónin í Sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Þessi grein birtist í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Norska ofurliðið steinlá Enginn óður til gjöreyðingar Ólafur Arnalds á flakk Handtekinn vegna meintra skemmda á bandarískri herflugvél Þessir flokkar bjóða fram í næsta mánuði Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Var kannski ekki efst á óskalistanum hjá okkur“ Styrkir samtökin um 25 milljónir Sjálfsvarnarnám ekki leiðin Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Mest lesið Í gær Í vikunni Væri ekki leyfilegt innan ESB Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu „Friður með íslamska lýðveldinu er verra en helvíti“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Bónorð í sól, brúðkaup í frosti Stendur ekki til að fjarlægja hvalinn Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Sjö á bráðamóttöku eftir árekstur Ekki útlit fyrir „viðvörunarveður“ í næstu viku Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Nýtt útspil Samfylkingar Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Andlát: Elva Dagmar Simundsson Aðgerðunum fálega tekið Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu Nýjast á mbl.is » Norska ofurliðið steinlá Enginn óður til gjöreyðingar Ólafur Arnalds á flakk Handtekinn vegna meintra skemmda á bandarískri herflugvél Þessir flokkar bjóða fram í næsta mánuði Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kostnaður við endurreisn óljós „Var kannski ekki efst á óskalistanum hjá okkur“ Áður grunuð og rannsökuð vegna umsáturseineltis Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Mest lesið Í gær Í vikunni Væri ekki leyfilegt innan ESB Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu „Friður með íslamska lýðveldinu er verra en helvíti“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Lágflugið tilkynnt til lögreglu og Samgöngustofu Bónorð í sól, brúðkaup í frosti Stendur ekki til að fjarlægja hvalinn Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Sjö á bráðamóttöku eftir árekstur Ekki útlit fyrir „viðvörunarveður“ í næstu viku Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Nýtt útspil Samfylkingar Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Andlát: Elva Dagmar Simundsson Aðgerðunum fálega tekið Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Eldingu sennilega slegið niður í Búrfellslínu

Share this article