- What: North Korea launched 10 missiles toward Japan
- Impact: Tensions rise in the region
Norður-Kórea skaut um 10 skotflaugum af óþekktri gerð í átt að Japanshafi um hálf 5 að íslenskum tíma í morgun. Skotflaugunum var skotið frá Sunan-svæði í Norður-Kóreu samkvæmt suðurkóreska hernum. Þá staðfesti japanska varnarmálaráðuneytið í færslu á samfélagsmiðlinum X að skotflaugunum hafi verið skotið. Heræfingin Frelsisskjöldur, heræfing Suður-Kóreu og Bandaríkjanna hófst á mánudaginn. Um 18.000 suðurkóreskir hermenn taka þátt í æfingunni sem stendur fram til 19. mars. Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa lýst þessum heræfingum sem æfingum fyrir innrás. Fyrr í þessari viku varað Kim Yo Jong, systir Kim Jong Un leiðtoga Norður-Kóreu, við því að heræfingarnar geti valdið hræðilegum afleiðingum. Ríkisstjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta hefur mánuðum saman reynt að koma á fundi með Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu, en án árangurs. Þó eru vonir bundnar við að leiðtogarnir fundi í apríl þegar Trump fer í opinbera heimsókn til Kína. Jong Un hefur sagt að stjórnvöld í Bandaríkjunum þurfi að viðurkenna Norður-Kóreu sem kjarnorkuþjóð. Forsætisráðherra Suður-Kóreu, Kim Min-seok, sagði í gær að hann teldi að það væri gott fyrir Bandaríkjaforseta að funda með leiðtoga Norður-Kóreu, Kim Jong Un.