Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir bætti í dag eigið Íslandsmet í sleggjukasti á Evrópubikarmóti á Kýpur þegar hún kastaði 71,41 metra. Það er bæting á Íslandsmeti hennar frá síðasta sumri um 3 sentimetraog varð hún 2. í keppninni á eftir Katrine Jacobsen frá Danmörku sem kastaði 75,52 metra, sem er lengsta kast ársins í heiminum. Evrópumeistarinn Sara Fantini frá Ítalíu varð 4. sem gefur dæmi um styrk keppninnar. Guðrún Karítas tók stórt skref í átt að því að tryggja sig á Evrópumótið í ágúst. Lágmarkið þangað eru 71,50 metrar en árangur dagsins gefur henni mörg stig á heimslistann sem er notaður við val á keppendum sem ná ekki lágmarkinu beint. Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir, sleggjukastari.FRÍ / Simone