Þróun Íslandsmets kvenna í sleggjukasti hefur verið hreint lygileg á undanförnum mánuðum. Elísabet Rut Rúnarsdóttir og Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir slá metið til skiptis trekk í trekk og virðist ekkert lát á því vera. Elísabet Rut Rúnarsdóttir setti fyrsta Íslandsmetið sitt í sleggjukasti í maí árið 2019 þegar hún kastaði 62,16 metra. Frá þeim tíma eða á tæplega sjö árum er Íslandsmetið orðið ellefu og hálfum metra lengra. Fyrst bitust Vigdís Jónsdóttir og Elísabet um metið og svo undanfarna mánuði hefur baráttan um metið verið milli Elísabetar og Guðrúnar Karítasar Hallgrímsdóttur. Guðrún Karítas sló Íslandsmet Elísabetar í ágúst þegar hún kastaði 71,38 metra. Hún bætti það svo um þrjá sentimetra 14. mars en sex dögum síðar jafnaði Elísabet Rut metið. Elísabet eignaði sér svo Íslandsmetið á ný 18. apríl með kasti upp á 72,89 metra en sex dögum síðar bætti Guðrún Karítas metið á Gullmóti í Keníu með því að kasta 73,88 metra. Var komin með nýja tölu til að elta „Ég vissi alveg að ég ætti eitthvað inni. Bæði út frá æfingum og eftir mótið sem ég fór á á Kýpur um daginn. Svo hafði Elísabet slegið Íslandsmetið nokkrum dögum fyrr þannig þá var ég komin með nýja tölu til að elta. Þannig það var mjög gaman að ég hafi náð því og svona vel,“ segir Íslandsmethafinn Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir við RÚV. Hún er eðlilega ánægð með góða byrjun á keppnistímabilinu í ár. „Ég er virkilega ánægð með upphaf tímabilsins hjá mér, ekki síst í ljósi þess að það hafa verið miklar breytingar hjá mér. Ég flutti í haust til Kaupmannahafnar og æfi nú með félaginu Spörtu. Ég er því í nýjum aðstæðum, með nýjan þjálfara og æfingafélaga en allt mjög jákvætt og gaman að sjá hverju þessar breytingar hafa skilað sér vel fljótt. Vonandi get ég bara haldið áfram á þessari sömu braut,“ segir Guðrún Karítas. Umhverfið skilar betri mótum „Þetta er mjög góður æfingahópur, því hér eru stelpur sem hafa verið á stórmótum undanfarinna ára og komist í úrslit á þeim. Þannig þetta eru landsliðskastarar og gott umhverfi. Það hjálpar mér líka að komast inn í þeirra hóp upp á að komast á góð mót í Evrópu,“ segir Guðrún. Elísabet Rut Rúnarsdóttir tekur í sama streng og Guðrún Karítas með góða byrjun í ár, en Elísabet segir það í raun vonum framar. „Ég meiddist fyrir ári síðan og var þá frá í fimm mánuði. Það var virkilega erfitt að koma til baka frá því. En á sama tíma vissi ég að það væri ekkert annað í stöðunni þannig ég tók allan þann tíma sem ég þurfti til að koma mér aftur af stað og það gekk svona aldeilis vel,“ segir Elísabet. „Ég fór eiginlega inn í þetta tímabil með það að markmiði að hafa fyrst og fremst gaman af því að keppa af því ég hafði saknað þess svo mikið að geta keppt. Þannig ég ákvað að þetta árið yrði ég bara að finna gleðina við að keppa í stað þess að setja einhverja pressu á mig af því ég var að koma úr meiðslum. En það hefur gengið rosalega vel, og að byrja tímabilið á því að bæta sig eftir meiðsli var alls ekki eitthvað sem ég bjóst við. Þannig ég ætla bara að halda áfram að hafa gaman í keppni,“ segir Elísabet. „Ekki held ég það nú“ En lítum aðeins betur á þessa þróun og þá staðreynd að Elísabet og Guðrún hafa í sameiningu bætt Íslandsmetið í sleggjukasti um næstum tíu metra á síðustu fjórum árum. „Ef þú hefðir spurt mig fyrir 3–4 árum síðan hvort við myndum eiga tvær sem kasta vel yfir 70 metra og jafnvel nálægt 75 metrum árið 2026 á Evrópumótsári þá hefði ég nú svarað: Ekki held ég það nú,“ segir Guðmundur Karlsson afreksstjóri Frjálsíþróttasambands Íslands. Hann er líka sjálfur fyrrverandi sleggjukastari og raunar fyrrverandi Íslandsmethafi. Tveir fremstu sleggjukastarar Íslands hafa bætt Íslandsmetið um tæpa tíu metra á fáum árum. Elísabet Rut Rúnarsdóttir og Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir elska samkeppnina og sérfræðingur spáir báðum í úrslit á EM í sumar. En hversu hátt telur Guðmundur þakið vera hjá Elísabetu Rut og Guðrúnu Karítas? „Auðvitað er þetta ekki línulegt og bara beint upp á við. Það væri bara vitleysa að halda að þetta muni halda áfram endalaust bara upp í 80 metra plús. En þetta mun samt fara upp á við, en hversu mikið er bara undir þeim sjálfum komið hversu vel þær sinna þessu í sínu umhverfi og hversu mikið er hægt að hjálpa þeim og styðja við þær. Við þurfum auðvitað miklu meira fjármagn inn í þetta allt saman.“ Árangurinn í ár hefði skilað verðlaunum á síðustu Evrópumótum „En við erum með tvær ótrúlegar stelpur í höndunum. Ef við skoðum árangurinn frá EM 2024 þá hefðu þær báðar verið í verðlaunasætum miðað við köstin sín í vor. Miðað við EM 2022 þá hefði Guðrún Karítas unnið. Auðvitað hefur sleggjukast kvenna í heiminum farið aðeins upp á við. En við erum með í höndunum demanta sem þarf að sinna virkilega vel. Frjálsíþróttasambandið eitt og sér hefur bara ákveðna möguleika til þess. Þó að við aðstoðum þær að sjálfsögðu eins og við getum, þá vantar í raun og veru miklu meira fjármagn inn í þetta afreksíþróttastarf,“ segir Guðmundur Karlsson. En hversu miklu máli skiptir að vera með tvo jafn góða sleggjukastara sem báðir eru í stöðugri framför? „Að vera með Guðrúnu með mér í þessu er rosalega mikilvægt þó að við séum ekkert að keppa á sömu mótunum núna. Það er svo gaman hvað við erum að rífa hvor aðra svakalega mikið upp og halda keppninni gangandi,“ segir Elísabet Rut. Samkeppnin hjálpar rosalega mikið „Maður vill alltaf vera bestur og vinna og svona. En ég held að við getum alveg verið sammála um það báðar að þetta hjálpar rosalega mikið og það er frábær hvatning að hafa einhvern til að keppast við um Íslandsmetið og bætingar. Það er ekkert sjálfsagt að það séu tveir keppendur á Íslandi í sömu frjálsíþróttagreininni og á sama tíma sem eru á þessu getustigi,“ segir Guðrún Karítas. „Í hvert sinn sem önnur hvor okkar bætir sig þá er það bara extra bensín á eldinn fyrir hina. Þegar ég sló Íslandsmetið um daginn þá vissi ég að það myndi kveikja í Guðrúnu,“ segir Elísabet. „Við erum fínar vinkonur. Við höfum þekkst síðan 2018 eða 2019 því við æfðum saman á Íslandi í ÍR hjá Bergi Inga Péturssyni áður en við fórum svo báðar í skóla í Bandaríkjunum. Þannig að við höfum farið í gegnum margt saman og erum góðar vinkonur. Ég er mjög glöð að henni sé að ganga svona vel núna,“ segir Elísabet Rut um Guðrúnu Karítas. Spáir báðum meðal átta efstu á EM Guðrún Karítas og Elísabet Rut eru báðar komnar með keppnisrétt á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Birmingham í ágúst. En hversu langt geta þær farið þar? „Mér finnst það bara vera í spilunum að þær komist báðar í úrslit og endi meðal átta bestu. Ef við skoðum það að þær komu báðar inn á EM 2024 beint af bandaríska háskólamótinu, flugu til Rómar og kepptu daginn eftir og enduðu samt í 15. og 17. sæti, sem verður ekki núna, og svo að þær hafa báðar bætt sig mikið síðan þá. Þannig að þær eiga báðar að fara inn í úrslit og þetta er svo galopið. Þetta gæti orðið topp átta, en þetta gæti þess vegna á góðum degi orðið barátta um verðlaun,“ segir Guðmundur en íslenskt frjálsíþróttafólk hefur ekki unnið til verðlauna á EM utanhúss síðan árið 1958 þegar Vilhjálmur Einarsson sótti brons í þrístökki í Stokkhólmi. „Það var mikill léttir að vera komin með EM sætið öruggt. Það hefði samt mjög mikið þurft að gerast svo ég kæmist ekki á EM á stigum því ég var svo ofarlega á stigalistanum. En ég var búin að kasta bæði 12 og 9 sentimetrum frá þessu lágmarki. Þannig það er rosalega gott að þetta sé 100% öruggt og þurfa ekkert að spá neitt í þessu meira. Það fór mjög mikil orka í það í fyrra hjá mér að komast inn á HM. Núna er bara alveg á hreinu að ég sé að fara á EM og get þá bara sett einbeitinguna á restina af tímabilinu, næstu mót og undirbúninginn fyrir Evrópumótið,“ segir Guðrún Karítas. Allt annar aðdragandi og undirbúningur „Ég er núna búin að fara á eitt Evrópumót og eitt heimsmeistaramót. Ég mætti óhvíld beint úr flugi frá Bandaríkjunum á EM og svo í fyrra fór rosalega mikil orka bara í að koma mér inn á HM sem var bara æðislegt þó að ég hafi ekki átt góðan dag á mótinu sjálfu. En núna er einhvern veginn öðruvísi undirbúningur og aðdragandi að næsta stórmóti því ég er aðeins öruggari og tímabilið mitt allt í Evrópu núna,“ segir Guðrún og heldur áfram. „Svo bý ég að reynslu síðustu móta og keppi mikið núna við þær sem verða líka á EM og það er mjög gott að fylgjast með þeim og læra af þeim og sjá um leið hversu vel ég stend. En svo snýst þetta alltaf um dagsformið, þannig markmiðið núna er að ná sér stabílli í því að kasta þannig vegalengdum að þó að ég eigi bara miðlungsdag geti ég samt náð langt. Ég er allavega vongóð um góða keppni og bara spennt að sjá hvað ég get gert,“ segir Guðrún Karítas. „Tímabilið byrjar allavega vel hjá mér og ég er spennt fyrir framhaldinu. Vonandi getur maður bara haldið áfram að styrkja sig í að kasta nær alltaf svolítið yfir 70 metra. Ef það tekst þá getur bara allt gerst,“ segir Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir. Sterk háskólamót á döfinni hjá Elísabetu Elísabet er líka spennt fyrir EM, en fram að því eru nokkur stór mót. „Akkúrat núna er ég að keppa mest fyrir háskólann minn í Bandaríkjunum og þarf að einbeita mér að því næstu vikurnar. Ég verð við keppni eftir nokkra daga á okkar svæðismeistaramóti og svo er háskólameistaramót Bandaríkjanna í júní. Þannig ég er mjög spennt fyrir þessum tveimur mótum og þar ætti að vera mjög góð keppni, sérstaklega ef ég fæ keppnisrétt á bandaríska háskólameistaramótinu. Þessi mót ættu að koma mér í gott stuð fyrir EM í ágúst.“ Svo er stefnan auðvitað sett á næstu stórmót, meðal annars Ólympíuleikana eftir tvö ár. „Ég hef auðvitað verið með Ólympíuleikana 2028 mjög skýrt í kollinum alveg síðan ég var bara einu sæti frá þátttökurétti á leikunum í París 2024. Miðað við hvernig mér er að ganga í ár og ef ég held því áfram, þá verður bara rosalega gaman á Ólympíuleikunum í Los Angeles hjá okkur,“ segir Elísabet og hlær. Eiginmaður Elísabetar í þjálfarateymi hennar Elísabet útskrifast úr grunnnámi í háskólanum sínum í Austin í Texasríki Bandaríkjanna í sumar en er svo á leið í meistaranám frá og með hausti. Hún mun því æfa áfram með sama þjálfara og á sama stað fram að Ólympíuleikunum eftir tvö ár. Í frjálsíþróttaliði Texas-háskóla er öflugt þjálfarateymi, en í því er meðal annars styrktarþjálfarinn Eyþór Baldursson, eiginmaður Elísabetar og fyrrverandi landsliðsmaður í fimleikum. „Það er bara geggjað að hafa hann sem þjálfara en það tók smá tíma að venjast því að þegar við erum á æfingasvæðinu er hann bara einn af þjálfurunum mínum og svo þegar við erum heima þá er hann maðurinn minn. En hann er ótrúlega góður í því sem hann gerir fyrir allt liðið. Ég hef aldrei verið sterkari en núna og liðinu okkar hefur sjaldan ef aldrei gengið jafn vel. Þannig það eru allir mjög sáttir með hann og allt gert til þess að halda honum hérna úti líka.“