- What: Discussion about Latin education at a school
- Impact: Educational policy change
Innlent | mbl | 14.3.2026 | 14:19 „Viljum blása til stórsóknar á málabraut“ Sólveig G. Hannesdóttir, rektor Menntaskólans í Reykjavík, í hinu fornfræga ræðupúlti á sal skólans. Hún segir fall í latínu við skólann á fyrsta ári vera 30 til 60 prósent sem sé ótækt. mbl.is/Karítas Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Skólanámskrár eru síbreytilegar og við þróum og breytum okkar námskrá eins og allir framhaldsskólar. Fyrir tíu árum styttist tíminn til stúdentsprófs úr fjórum árum í þrjú,“ segir Sólveig G. Hannesdóttir, rektor Menntaskólans í Reykjavík, í samtali við mbl.is en nokkur umræða hefur undanfarið átt sér stað um fyrirhugaðan niðurskurð latínukennslu við skólann sem sætt hefur töluverðri gagnrýni. Sólveig var sjálf kennari við skólann þegar stytting náms til stúdentsprófs varð að raunveruleika. „Okkur leist auðvitað ágætlega á að reyna að halda í sérhæfingu hverrar deildar í skólanum og reyna frekar að fara á dýptina í ákveðnum fögum og greinum sem voru megineinkenni hverrar deildar og í leiðinni draga úr þeirri breidd sem íslenska stúdentsprófið hafði fram að því boðið upp á,“ segir rektor. Segir hún enn verið að vinna úr þeim breytingum sem urðu með styttingu náms til stúdentsprófs og vinda ofan af þeim. Vilja að hámarki 37 vikustundir „Fyrst þegar námskráin var sett upp fyrir þrjú skólaár voru nýnemar hér í 41 kennslustund á viku og svo kom heimanám ofan á það. Þetta var mikið álag sem bæði nemendur og foreldrar kvörtuðu yfir. Menntaskólinn í Reykjavík er krefjandi skóli með krefjandi nám og metnaðarfulla nemendur og kennara en þarna var allt of mikil tímasókn,“ segir Sólveig. Frétt af mbl.is „Minni kröfur, lélegri markmið. Það er því miður staðreynd“ Fyrir vikið hafi kennslustundum verið fækkað í áföngum, nú sitji nýnemar 39 stundir á viku og frá hausti komanda er gert ráð fyrir að þeim verði fækkað í 37. „Við viljum reyna að halda tímasókn í öllum deildum við 37 vikustundir til að koma til móts við ákall um að draga úr álagi svo nemendur hafi frekar tíma til að sinna því heimanámi sem þeir þurfa að sinna, auk annarra tómstunda, íþrótta eða tónlistariðkunar,“ segir hún og beinir svo sjónum að máladeild, höfuðvígi latínukennslu við skólann. Samfélagið hefur breyst Þegar stytting námsins varð að veruleika hafi máladeildir víðast hvar verið lagðar niður við framhaldsskóla, þær séu nú orðið aðeins í Menntaskólanum í Reykjavík og Menntaskólanum í Hamrahlíð að sögn Sólveigar. „Núna erum við með 120 nemendur í máladeild en við verðum að líta til þess að samfélagið hefur breyst og umræðan hjá foreldrum og kennurum í grunnskólum er svolítið þannig að ef þú getur lært stærðfræði eigirðu að velja náttúrufræðibraut því það nám loki engum dyrum þegar komið er að því að sækja um nám í háskóla,“ segir Sólveig og bætir því við að þessum hugsunarhætti hafi stjórnendur MR reynt að snúa við. Frétt af mbl.is Nýr rektor og nærri 700 nemar „Máladeildir opna fyrir tungumálakunnáttu og við höfum lagt áherslu á að sterkir nemendur, sem hafa áhuga á tungumálum, alþjóðamálum og til dæmis félagsfræði, sagnfræði og öðrum hugvísindum, sæki um málabraut,“ segir Sólveig en sviðið málabraut nær yfir máladeildir skólans, fornmála- og nýmáladeild. Dönskunám skert um 40 prósent Rektor segir að í þessum hópi sé auðvitað að finna nemendur sem hafi áhuga á fræðigreinum á borð við fornmál – latínu og forngrísku. „Staðan eftir styttinguna er þannig að þegar málabrautin var endurskoðuð fyrir þriggja ára kerfi voru bæði efnafræði og líffræði, sem voru kenndar í máladeildum áður, teknar algjörlega út. Núna er kenndur fimm eininga áfangi í jarðfræði á málabraut og það er eina raungreinin sem þar er kennd,“ segir rektor. „Við viljum blása til stórsóknar á málabraut og laða að okkur fleiri frábæra nemendur,“ segir rektor. mbl.is/Sigurður Bogi Stærðfræði hafi verið skert um nær helming, danska um 40 prósent, enska um 20 prósent, íslenska um átján prósent og saga um nær þriðjung. Hins vegar hafi sérgreinar hverrar deildar, svo sem fornmálin í fornmáladeild og þriðja og fjórða tungumál á eftir dönsku og ensku í nýmáladeild, ekki verið skertar neitt við styttinguna. Sólveig kemur að latínukennslu á fyrsta ári við skólann hjá þeim sem velja sér málabraut við upphaf náms. „Stærðfræðin á náttúrufræðibraut þykir þung en þó hefur fallið í stærðfræðinni verið fimmtán til 20 prósent en 30 til 60 prósent í latínunni, sem gengur ekki. Að gera kröfur er eitt, en námið verður að taka mið af þroska og hæfni nemenda. Frétt af mbl.is Latínudeilan: „Misbýður hroki rektors“ Við höfum reynt að finna einhverjar lausnir til að bregðast við þessu í samráði við fornmálakennarana. Eins og staðan er núna taka allir nemendur á málabraut sömu latínuna á fyrsta ári. Þetta hefur reynst óheppilegt þar sem námsefnið hefur verið á forsendum fornmáladeildarinnar en því lýkur með stúdentsprófi fyrir nýmáladeildarnema,“ útskýrir rektor. Ákalli kennara annarra tungumála svarað Áskorun stjórnenda skólans hafi verið að útbúa álitlega og spennandi deild sem vekti áhuga og gæti nýst nemendum í máladeildarnámi. „Okkar hugmynd er að færa latínuna upp á annað ár í nýmáladeild og setja í staðinn inn áfanga sem heitir Inngangur að tungumálanámi sem væri þá fallinn til þess að kynna hvað nám í fornmálum er en um leið svara ákalli kennara í öðrum tungumálum sem hafa kvartað yfir því að grunni nemenda í málfræði úr grunnskólunum sé ábótavant,“ segir Sólveig. Með þessu fyrirkomulagi telur hún að koma mætti inn sameiginlegum áherslum sem gagnast muni í áframhaldandi tungumálanámi auk þess að koma inn grundvallarkynningu á latínunámi. Frétt af mbl.is „Mega hlutir ekki vera krefjandi lengur?“ Rektor bendir á að tölurnar tali sínu máli þegar horft er til þróunarinnar undanfarin ár. Á meðan málabrautin í heild telji um 120 nemendur hafi verulega fjarað undan fornmáladeildinni sjálfri. Á árunum 2005 til 2015 hafi alls um 20 til 25 nemendur verið í deildinni en eftir styttingu námsins hafi þeim fækkað jafnt og þétt. Vonar að umræðan verði til hvatningar Nú sitji alls færri en tíu nemendur í fornmáladeild sem Sólveig segir að kallist á við nauðsyn þess að endurskoða skipulagið svo deildin eigi raunhæfa möguleika á að vaxa og dafna til framtíðar. „Við viljum blása til stórsóknar á málabraut og laða að okkur fleiri frábæra nemendur. Nám á máladeildum verður nútímalegt og aðgengilegt en heldur líka fast í gömul gildi skólans,“ segir rektor. Gamli skólinn svokallaði, smíði upprunalegrar byggingar Lærða skólans lauk árið 1846 og var húsið byggt eftir teikningu danska ríkishúsameistarans Jørgens Hansens Koch. mbl.is/Kristinn Magnússon „Undanfarnar vikur hafa núverandi og fyrrverandi nemendur lagt orð í belg um mikilvægi latínunáms og það er skemmtilegt að finna fyrir áhuga og væntumþykju til skólans. Við vonum að þessi umræða verði fleiri nemendum til hvatningar til að sækja um nám á málabraut skólans,“ segir Sólveig. „Með aukinni aðsókn í MR hefur húsnæðisvandi skólans orðið enn meira aðkallandi. Við viljum geta boðið framtíðarnemendum skólans upp á metnaðarfullt nám í frábæru húsnæði. Ég hef fulla trú á að nýr menntamálaráðherra fari í það mál af krafti,“ segir Sólveig G. Hannesdóttir, rektor Menntaskólans í Reykjavík, að lokum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Viljum blása til stórsóknar á málabraut“ Emelía skoraði í sigri „Gerðu 1.700 bollakökur og 2.000 kleinur fyrir gesti dagsins“ Rándýr smáatriði sem sjást sjaldanst á ódýrum fatnaði Tvö indversk olíuskip fóru óhult yfir Hormússund Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Fólkinu hefur verið bjargað af jöklinum Kvartað undan rukkunum Isavia Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Segir verðmiðann slá sig sem háan Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Hjálmar H. Ragnarsson látinn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Nýjast á mbl.is » „Viljum blása til stórsóknar á málabraut“ Emelía skoraði í sigri „Gerðu 1.700 bollakökur og 2.000 kleinur fyrir gesti dagsins“ Rándýr smáatriði sem sjást sjaldanst á ódýrum fatnaði Tvö indversk olíuskip fóru óhult yfir Hormússund Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Fólkinu hefur verið bjargað af jöklinum Mest lesið Í gær Í vikunni Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Segir verðmiðann slá sig sem háan Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Hjálmar H. Ragnarsson látinn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Snyrtivörur efs