Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

HK er bikarmeistari eftir æsispennandi leik

Read Full Article →

HK er bikarmeistari kvenna í blaki eftir spennandi úrslitaleik gegn KA. HK komst í 2-0 en það kviknaði neisti hjá KA í þriðju hrinu. Á tíma leit út fyrir að leikurinn væri á leið í oddahrinu en að lokum sigldi HK bikarnum heim fyrir framan sitt fólk í Digranesi. HK konur komu öruggar út og náðu að slíta sig frá KA að lokum í fyrstu hrinunni. Fyrsta hrinan vannst 25-17. HK konum virtist líða vel á heimavelli í Digranesinu og komust í 11-5 eftir upphafssyrpuna í 2. hrinu. Þá vöknuðu KA konur til lífs og minnkuðu muninn í 12-11. Þá gaf HK aftur í og náði sex stiga forskoti, 12-18. HK vann aðra hrinuna að lokum 25-20 eftir að hafa verið afar sterkar á lokakaflanum. Hér má sjá stig í 2. setti eftir glæsilega björgun HK. HK er bikarmeistari kvenna í blaki eftir sigur á KA, 3-1. Norðankonur hleyptu spennu í leikin en þær komu mun ákveðnari til leiks eftir að hafa lent í 2-0 holu. Allt annað KA lið mætti til leiks KA konur mættu sterkar til leiks í þriðju hrinu og settu tóninn með því að komast í 0-3. Staðan var 3-10 skömmu síðar og öll stemningin norðanmegin. KA náði góðu forskoti en HK saxaði á það hægt og bítandi. Þær náðu að minnka muninn í 14-17 en þá tóku KA konur aftur við sér og komust í 14-20. Að lokum unnu KA-konur hrinuna 14-25 eftir að hafa unnið átta stig í röð. KA konur voru áfram grimmar í upphafi 4. hrinu og komust í 3-0. Leikurinn jafnaðist út næstu mínútur og HK jafnaði í 5-5. KA náði aftur upp góðum takti og náði þriggja stiga forskoti, 14-11. Spennan var ógurleg það sem eftir var hrinunnar, sem var sú jafnasta hingað til. Staðan var 18-18 eftir liðin skiptust á stigum en KA var alltaf hálfu skrefi á undan. HK komst svo í 23-20 og vann að lokum 25-20 eftir frábæran leik í Digranesinu. Tilþrif úr leiknum má sjá hér að neðan. HK er bikarmeistari kvenna í blaki eftir sigur á KA, 3-1. Norðankonur hleyptu spennu í leikin en þær komu mun ákveðnari til leiks eftir að hafa lent í 2-0 holu. Stemning í Digranesi Vel var mætt í stúkuna og HK-ingar fylltu þar vel upp í hana á heimavelli. Norðanfólk lét sjá sig og hvatti sitt lið el þar sem fólk var í gulum vinnuvestum merktum KA og jafnvel með öryggishjálm. Mikil leikgleði einkennir HK liðið en þær sýna mikla samstöðu sama hvernig hrinan fer og leyfa sér að hafa gaman af leiknum.

Share this article