Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

KA í bikarúrslit sjötta skiptið í röð

Read Full Article →

Það er nú ljóst að það verða HK og KA sem mætast í úrslitaleik Kjörísbikars kvenna í blaki á laugardaginn. HK vann Aftureldingu fyrr í dag, 3-0, og KA hafði svo betur gegn sameiginlegu liði Þróttar Reykjavík og Blakfélags Hafnarfjarðar, 3-1, í kvöld. KA eru ríkjandi bikarmeistarar og byrjuðu leikinn af krafti. Þær unnu fyrstu hrinu mjög sannfærandi, 25-17. Þróttarar mættu mun sterkari til leiks í aðra hrinu og sú var gríðarspennandi. Aldrei munaði meira en tveimur stigum á liðunum og það var Þróttur sem vann að lokum, 23-25. Þann meðbyr tóku Þróttarar með sér í þriðju hrinu og skoruðu fyrstu fimm stig hennar. KA sýndi þá styrk sinn og ný og vann hrinuna, 25-21. Mestur kraftur virtist úr Þrótturum þá og fjórða hrina varð í raun aldrei spennandi, KA vann hana 25-18 og leikinn 3-1. KA varð fyrst bikarmeistari 2019 og svo aftur 2022, 2023 og 2025. Ekki var keppt um bikarinn 2020 en KA lék einnig til úrslita 2021 (tap fyrir HK) og 2024 (tap fyrir Aftureldingu). HK hefur sex sinnum orðið bikarmeistari, síðast fyrir fimm árum. Úrslitaleikur HK og KA verður á laugardaginn kl. 13:00 í beinni á RÚV.

Share this article