Fyrri undanúrslitaleiknum í Kjörísbikar kvenna í blaki lauk með 3-0 sigri HK á Aftureldingu. HK-ingar byrjuðu leikinn mun betur og leiddu alla fyrsta hrinu sem þær unnu nokkuð þægilega, 25-14. Afturelding mætti betur til leiks í aðra hrinu og komst 7-6 yfir. HK tók hins vegar aftur völdin og vann hrinuna 25-19. Þriðja hrinan var sú mest spennandi, þrátt fyrir að HK hafi skorað fimm fyrstu stigin. Mosfellingar gáfust ekki upp og héldu í við HK alla hrinuna. Allt var jafnt í stöðunni 21-21 en enn reyndust HK-ingar sterkari á lokakaflanum og þær unnu hrinuna 25-22 og leikinn þar með 3-0. HK mætir annaðhvort ríkjandi bikarmeisturum KA í úrslitaleiknum á laugardaginn eða sameiginlegu liði Þróttar Reykjavíkur og Blakfélagi Hafnarfjarðar. Þau mætast í seinni undanúrslitaleiknum í kvöld. Útsending frá viðureign KA og Þróttar Rvk/Blakfélagi Hfj. hefst 19:15 á RÚV 2.