Í dag verður leikið til úrslita í Kjörísbikarnum í blaki, bæði í kvenna- of karlaflokki. Hjá konunum mætast HK og KA. HK hafði betur gegn Aftureldingu í fyrradag, 3-0 , og KA vann Þrótt Reykjavík/Blakfélag Hafnarfjarðar 3-1 . KA eru ríkjandi Íslands- og bikarmeistarar og hafa unnið bikarkeppnina fjórum sinnum á síðustu sjö árum. HK hefur sex sinnum orðið bikarmeistari, síðast árið 2021. HK er jafnframt nýkrýndur deildarmeistari en KA endaði í öðru sæti deildarinnar. 13:00 HK - KA [RÚV] Afturelding og Hamar mætast svo í karlaflokki. Afturelding vann Völsung/Eflingu í gær, 3-2 , og Hamar sótti sigur gegn Þrótti Fjarðabyggð, 3-1 . Afturelding hefur einu sinni orðið bikarmeistari, það var 2017. Hamar varð fyrst bikarmeistari 2021 og vann titilinn næstu þrjú ár sömuleiðis. Þá er liðið nýkrýndur deildarmeistari, Afturelding varð í þriðja sæti. 15:30 Afturelding - Hamar [RÚV]