Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hamar fær tækifæri á að vinna fimmta bikarmeistaratitilinn

Read Full Article →

Á morgun mætast Hamar og Afturelding í bikarúrslitum karla í blaki. Afturelding vann Völsung/Eflingu fyrr í dag, 3-2, og nú í kvöld hafði Hamar betur gegn Þrótti Fjarðabyggð, 3-0. Hamarsmenn eru nýkrýndir deildarmeistarar í blaki en Þróttur Fjarðabyggð endaði í sjötta sæti Unbrokendeildarinnar, með 31 stigi minna en Hamar. Þrátt fyrir þann mun var spenna strax frá upphafi í leik liðanna í kvöld. Allt var jafnt í stöðunni 23-23 í fyrstu hrinu en Hamar skoraði tvö síðustu stigin og vann hrinuna 25-23. Ef fyrsta hrinan var spennandi þá var önnur enn betri. Upphækkun þurfti og bæði liðin fengu tækifæri til að klára hrinuna en það var Þróttur sem gerði það, 26-28, og allt orðið jafnt, 1-1. Austfirðingum tókst ekki að fylgja þeirri hrinu eftir og Hvergerðingar unnu þá þriðju nokkuð þægilega 25-16. Hamarsmenn voru einnig með yfirhöndina alla fjórðu hrinu. Þróttarar reyndu hvað þeir gátu að minnka muninn en tókst ekki og Hamar vann hana, 25-21, og leikinn 3-1. Hamar varð bikarmeistari í fyrsta skipti 2021 og vann titilinn næstu þrjú ár sömuleiðis. KA varð bikarmeistari í fyrra en Hamar getur nú endurheimt titilinn. Úrslitaleikur Hamars og Aftureldingar er klukkan 15:30 á morgun, í beinni útsendingu á RÚV.

Share this article