Í dag verður leikið til undanúrslita í Kjörísbikar karla í blaki. Það er möguleiki á óvæntum úrslitum þar sem Völsungur/Efling, sem er í næstneðsta sæti Unbrokendeildarinnar, mætir Aftureldingu sem er í þriðja sæti og Þróttur Fjarðabyggð, í sjötta sæti, mætir toppliði Hamars. Af þessum liðum hefur Hamar oftast orðið bikarmeistari eða fjórum sinnum. Þeir titlar komu fjögur ár í röð frá 2021 til 2024. Afturelding varð bikarmeistari í fyrsta og eina skiptið 2017 en hvorki Völsungur né Þróttur Fjarðabyggð hefur orðið bikarmeistari. Leikirnir verða báðir sýndir beint á RÚV 2, úrslitaleikurinn er svo kl. 15:30 á RÚV á morgun. 17:00 Völsungur/Efling - Afturelding (RÚV 2) 19:30 Hamar - Þróttur Fjarðabyggð (RÚV 2)