Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Í dag: Ballið byrjar í blakinu

Read Full Article →

Undanúrslit bikarkeppni kvenna í blaki eru í dag. Ríkjandi bikarmeistarar mæta þá til leiks. Í fyrri leik dagsins mætast HK og Afturelding. Mosfellingar urðu bikarmeistarar árið 2024 og HK fagnaði titlinum síðast árið 2021. Leikur HK og Aftureldingar hefst klukkan 17:00. KA varð bikarmeistari í fyrra og liðið mætir nú sameinuðu liði Þróttar R. og Blakfélagi Hafnarfjarðar. Leikurinn hefst klukkan 19:30. Gunnar Birgisson hitar upp í Stofunni ásamt þeim Elmu Eysteinsdóttur og Emil Gunnarssyni fimmtán mínútum fyrir leik. Þau kryfja leikina svo til mergjar að þeim loknum. Leikirnir fara fram í Digranesi og eru báðir sýndir á RÚV 2.

Share this article