Innlent | Morgunblaðið | 14.3.2026 | 19:57 Nú búa yfir 250 þúsund á höfuðborgarsvæðinu Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Alls bjuggu 252.080 manns á höfuðborgarsvæðinu síðustu áramót eða rúmlega þrjú þúsund fleiri en ári áður. Hefur íbúunum fjölgað um tæplega 55 þúsund frá fjórða ársfjórðungi árið 2010 (sjá graf). Þetta má lesa úr nýjum tölum Hagstofu Íslands um íbúafjöldann. Á sama tímabili, frá fjórða ársfjórðungi 2010 og til fjórða ársfjórðungs árið 2025, fjölgaði landsmönnum um ríflega 82.600. Af því leiðir að hlutur höfuðborgarsvæðisins í íbúafjölgun á landinu öllu var um 66% á tímabilinu. En þessar tölur miðast við lok fjórða ársfjórðungs. Sögulega mikil íbúafjölgun Íbúafjölgunin telst vera hlutfallslega mikil í sögulegu samhengi. Þannig fjölgaði landsmönnum um rúmlega 26% á þessum 15 árum og íbúum á höfuðborgarsvæðinu um tæplega 28%. Þessi öra íbúafjölgun hefur haft margvísleg efnahagsleg áhrif. Hún hefur aukið eftirspurn eftir verslun og þjónustu en líka eftir opinberri þjónustu. Þá hefur hún skapað mikla eftirspurn eftir íbúðarhúsnæði og hefur gengið misjafnlega að mæta þeirri eftirspurn. Færri en hjá Þjóðskrá Það má rifja upp í þessu samhengi að tölur Hagstofunnar eru mun lægri en tölur Þjóðskrár Íslands sem áætlar að nú búi tæplega 413 þúsund manns á landinu. Sé litið til einstakra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu er niðurstaðan að íbúum Mosfellsbæjar hefur fjölgað hlutfallslega mest á tímabilinu, úr 8.480 í 13.780, eða um 62,5%. Næst kemur Garðabær en þar fjölgaði íbúum úr 13.150 í 20.780, eða um 58%. Sameining við Álftanes í ársbyrjun 2013 hefur þar sitt að segja. Kópavogur er í þriðja sæti en þar fjölgaði íbúum úr 30.260 í 40.340 eða um 33,3%. Hafnarfjörður í fjórða sæti Hafnarfjörður var í fjórða sæti. Þar fjölgaði íbúum úr 25.660 í 32.430 eða um 26,4%. Reykjavík var í fimmta sæti. Þar fjölgaði íbúum úr 115.420 í 139.810 eða um 21,1%. Lestina rak svo Seltjarnarnes en þar fjölgaði íbúum úr 4.190 í 4.620 eða um 10,3%. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Þetta var eins og að vera á jarðsprengjusvæði“ Flateyrarvegi og Súðavíkurhlíð verður lokað Evrópska borgin sem er orðin dýrari en þú heldur Sá yngsti í sögu ensku úrvalsdeildarinnar West Ham – Man. City, staðan er 0:0 Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fólkinu hefur verið bjargað af jöklinum Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Mest lesið Í gær Í vikunni Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Hjálmar H. Ragnarsson látinn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar Nýjast á mbl.is » „Þetta var eins og að vera á jarðsprengjusvæði“ Flateyrarvegi og Súðavíkurhlíð verður lokað Evrópska borgin sem er orðin dýrari en þú heldur Sá yngsti í sögu ensku úrvalsdeildarinnar West Ham – Man. City, staðan er 0:0 Umræðan Land aríanna Auðlindir þjóðarinnar verða ekki seldar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Langvinn skjálftahrina suðaustan við Bárðarbungu Vöruflutningabílar illa búnir á þjóðveginum Flóðið við Siglufjörð: „Þurfum að vera vel á tánum“ Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Mest lesið Í gær Í vikunni Feiknastórt snjóflóð við Siglufjörð: Þjóðvegi lokað Borgin hættir að veita nemendum verðlaun Kvartað undan rukkunum Isavia Sólveig Anna loksins bænheyrð Gular viðvaranir vegna hríðar og hvassviðris Hvað veldur langvinnu Covid? Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Segir verðmiðann slá sig sem háan Guðmundi sómi sýndur í Skotlandi Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Fjölmenni við útför Davíðs í blíðskaparveðri Hjálmar H. Ragnarsson látinn Andlát: Þórir Einarsson Holtavörðuheiði er lokuð Flaggað í hálfa stöng á erlendri grundu Ísland ekki undanþegið hærri framlögum Snyrtivörur efst á lista yfir hættulegar vörur Quang Le fær ekki að opna bankareikning Fjölda manns bjargað niður af ófærri heiðinni Ökumaður snjómoksturstækis handtekinn Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Svikahrappar náðu milljarði Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Alltof margir fengið rangar rukkanir Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Vænir Ölmu Möller um lygar