Donald Trump forseti Bandaríkjanna sagði í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social í gær að hann ætli að opna Hormússund bráðlega og að það verði öruggt og frjálst. Hann vonast til þess að Kína, Frakkland, Japan, Suður-Kórea og Bretland sendi herskip í Hormússund, svo Íranir geti ekki ógnað flutningaskipum sem eiga leið um sundið. Þangað til muni Bandaríkjaher gera miklar árásir við strandlengju Írans og skjóta á írönsk skip. Enn sem komið er hafa ríkisstjórnir þessara ríkja ekki tjáð sig um þessi ummæli Bandaríkjaforseta. Hér er stutt yfirlit yfir helstu atburði næturinnar: Íranski byltingarvörðurinn hefur heitið því að drepa forsætisráðherra Ísraels, Benjamin Netanyahu. Byltingarvörðurinn greindi frá ætlunum sínum á fréttavefsíðunni Seadah News. 15 voru drepnir í miklum árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Isfahan-hérað í nótt. Héraðið gegnir hernaðarlegu og iðnaðarlegu mikilvægi fyrir Íran, en þar eru fjöldi verksmiðja og hernaðarlegra innviða. Geimrannsóknarstöð Írans í Teheran varð einnig fyrir verulegu tjóni í árásum Bandaríkjanna og Ísraels í nótt. 108 eru særðir eftir árásir á Ísrael undanfarinn sólarhring samkvæmt Al Jazzera. Drónaárásir voru gerðar á flugvallarsvæðið í Baghdad, sem hýsir meðal annars herstöð og sendiráð Bandaríkjanna. Þá voru einnig gerðar árásir á herstöð Bandaríkjanna í Al-Karj í Sádí Arabíu. Stjórnvöld í Líbanon ætla að hefja samningaviðræður við Ísrael til að reyna að stöðva árásir. Ekki er þó búið að ákveða stund og stað fyrir samningaviðræðurnar en þær hugsanlega fara þær fram í París eða á Kýpur. Bandaríska sendiráðið í Írak hefur skipað bandarískum ríkisborgurum að yfirgefa landið. Þá hefur hluta starfsfólks bandaríska sendiráðsins í Óman og fjölskyldum þeirra verið sagt að yfirgefa landið af öryggisástæðum. Þá ætla stjórnvöld í Suður-Kóreu að flytja um 200 ríkisborgara sína burt frá Mið-Austurlöndum með herflugvél. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna segir að allt að 3,2 milljónir manns séu á vergangi í Íran og flestir þeirra hafi þurft að yfirgefa heimili sín vegna árása á Teheran og aðrar borgir.