Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hótar fjölmiðlum að þeir geti misst útsendingarleyfi sín

Read Full Article →

Formaður eftirlitsnefndar alríkisfjarskipta í Bandaríkjunum og æðsti maður yfir net-, sjónvarps- og útvarpsmiðlum, Brendan Carr, segir að fjölmiðlar sem dreifi ósannindum og falsfréttum í umfjöllun miðlanna um stríðið í Mið-Austurlöndum eigi á hættu að missa útsendingarleyfi sín ef þeir hætta ekki að dreifa ósannindum og falsfréttum. Í færslu sem hann birti á samfélagsmiðlinum X segir hann að lögin séu skýr. Fjölmiðlum beri að hafa hagsmuni almennings að leiðarljósi og að þeir miðlar sem það ekki gera missi útsendingarleyfi sín. Carr nefndi ekki fjölmiðlana á nafn en í færslu sinni deilir hann færslu Donalds Trumps Bandaríkjaforseta þar sem forsetinn segir fréttir The New York Times og The Wall Street Journal um árás á herflugvélar vera falsfréttir og að fjölmiðlarnir vilji að Bandaríkin tapi stríðinu. Bandarísku samtökin The Foundation for Individual Rights in Education (FIRE) , sem beita sér fyrir tjáningarfrelsi, segja einræðislega færslu Carrs vera svívirðilega. Í færslu sem samtökin birtu á samfélagsmiðlinum X segir að eitthvað sé verulega mikið að þegar ríkisstjórnin krefjist þess að fjölmiðlar verði málpípa stjórnvalda. Stjórnvöld ósátt við fréttaflutning af stríðinu Frá því að Bandaríkin og Ísrael hófu árásir á Íran fyrir tveimur vikum hafa Bandaríkjaforseti og stríðs- og varnarmálaráðherrann Pete Hegseth reglulega gagnrýnt fréttaflutning af stríðinu og sagt fréttirnar vera falsfréttir. Varnarmálaráðuneytið og Hvíta húsið gagnrýndu til að mynda frétt CNN, þar sem fram kom að stjórnvöld í Washington hefðu vanmetið getu Írans til að trufla olíuflutninga um Hormússund. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Carr hótar fjölmiðlum að þeir missi útsendingarsleyfi sín. Á síðasta ári hótaði Carr að ógilda útsendingarleyfi ABC sjónvarpsstöðvarinnar, vegna ummæla viðtalsþáttastjórnandans Jimmy Kimmel um morðið á hægrimanninum og aðgerðarsinnanum Charlie Kirk. Þátturinn var tekinn tímabundið af dagskrá eftir hótanir Carr og var sú ákvörðun harðlega gagnrýnd. Á endanum fékk Kimmel að halda áfram með þættina.

Share this article