Íranar eru sagðir hafa hafnað friðaráætlun sem Bandaríkjaforseti sendi þeim og segja stríðið enda á þeirra forsendum. Fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins segir Bandaríkjaforseta enn eiga í samræðum við Íran um frið. Stríðið endar ekki eftir hentisemi Trumps Áætlunin hefur ekki verið gerð opinber en er sögð vera í fimmtán liðum. Hún felur meðal annars í sér að Íranar hætti að auðga úran og rífi kjarnorkuver sín í skiptum fyrir afléttingu allra viðskiptaþvingana. Einnig verði komið á mánaðarlöngu vopnahléi. Íranski ríkisfjölmiðillinn Press TV hefur eftir hátt settum írönskum embættismanni að stjórnvöld hafi hafnað áætluninni og sett fram fimm skilyrði fyrir stríðslokum. Meðal annars að átökum á öllum vígstöðvum ljúki og greiðslu skaðabóta. Fjölmiðillinn hefur einnig eftir embættismanninum að stríðið endi á forsendum stjórnvalda í Íran, ekki eftir hentisemi Trumps. Íranar eru sagðir hafa hafnað friðartillögu Bandaríkjanna um endi á stríðsátökunum í Mið-Austurlöndum, sem hafa varað í á fjórðu viku. Bandaríkjamenn segja aukið herlið á leið í heimshlutann og að þeir séu nálægt því að ná markmiðum sínum. Reuters hefur einnig eftir háttsettum embættismanni innan íranskra stjórnvalda að fyrstu viðbrögð þeirra hefðu ekki verið jákvæð en að áætlunin væri enn til skoðunar. Stríðið farið út fyrir öll mörk Karoline Leavitt, fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins í Bandaríkjunum, sagði á blaðamannafundi á sjöunda tímanum að Íranar hefðu hins vegar ekki hafnað friðaráætluninni. Trump ætti enn í „afkastamiklum samræðum“ við Írana þrátt fyrir að þeir hafi fyrr í dag sagt Bandaríkjamenn eiga í samningaviðræðum við sjálfa sig. Leavitt neitaði að fara nánar út í friðaráætlunina og smáatriði í kringum hana þegar fréttamenn spurðu. Hún sagði þó að hernaðaraðgerðin væri á undan áætlun og að hún væri vel heppnuð. Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna staðfesti síðdegis að fótgönguliðar hefðu verið sendir til Mið-Austurlanda. Þar eru fyrir um fimmtíu þúsund bandarískir hermenn. Antonio Guterres, framkvæmdastjóri, sagði stríðið hafa farið út yfir öll mörk. „Skilaboð mín til Bandaríkjanna og Ísraels eru að nú er kominn tími til að ljúka stríðinu, nú þegar þjáningin eykst, mannfall almennra borgara líka og efnahagsáhrifin um allan heim verða sífellt skaðlegri.“ Hann sendi Írönum einnig skilaboð. „Hættið að ráðast á nágrannaríkin sem eiga ekki aðild að stríðinu. Öryggisráðið hefur fordæmt þessar árásir og krefst þess að þeim linni.“