Bandaríkin hafa sent Íran 15 liða áætlun til að binda enda á stríðið, að sögn bandarískra embættismanna. Byggir hún að stórum hluta á fyrri kröfum stjórnvalda undir forystu Donalds Trump gagnvart stjórnvöldum í Teheran. Wall Street Journal greinir frá þessu í kvöld. Sjá einnig Trump segir Írani hafi gefið risastóra gjöf Í skjalinu, sem sent var í gegnum milliliði, er gerð krafa að Íran taki niður þrjár helstu kjarnorkustöðvar sínar og hætti allri auðgun úrans á írönsku yfirráðasvæði, stöðvi þróun og framleiðslu á skotflaugum, dragi úr stuðningi við málaliða, líkt og Hezbollah í Líbanon og Húta í Jemen, og opni að fullu á ný Hormússund. Í staðinn myndu kjarnorkutengdar refsiaðgerðir gegn Íran verða felldar niður og Bandaríkin myndu aðstoða, jafnframt því að hafa eftirlit með, borgaralegri kjarnorkuáætlun landsins. Kröfurnar endurspeglar í meginatriðum tillögu Bandaríkjanna sem rædd var við Íran áður en stríðið hófst 28. Febrúar. Ný forysta Írans segist nú gera meiri kröfur til Bandaríkjamanna, meðal annars með því að fara fram á skaðabætur fyrir árásir síðustu vikna. Í dag sagðist Trump vera mun bjartsýnni á vilja Írans til að ná samkomulagi. „Þeir vilja gjarnan gera samning,“ sagði hann við fréttamenn á viðburði í Ávölustofunni. „Þeir hafa samþykkt að þeir muni aldrei eignast kjarnorkuvopn.“