Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Markaðir taka vel í fregnir um að Trump vilji enda stríðið

Read Full Article →

Bandaríkjaforseti Donald Trump tjáði aðstoðarmönnum sínum að hann sé reiðubúinn að binda endi á stríðsrekstur Bandaríkjanna í Íran, jafnvel þótt Hórmússundið verði áfram að mestu lokað, samkvæmt heimildarmönnum WSJ . Trump er sagður hafa tjáð aðstoðarmönnum sínum að hernaðaraðgerðir til að opna fyrir flutninga um Hormússundið myndi líklega framlengja stríðsátökin umfram þá tímalínu um 4-6 vikur sem hann hafði séð fyrir sér. Hann ákvað að Bandaríkin ættu að horfa til þess að ná meginmarkmiðum sínum um að veikja sjóher Írans og eldflaugabirgðir landsins og draga úr núverandi átökum, á sama tíma og þrýst væri á stjórnvöld í Íran með diplómatískum hætti til að koma aftur á frjálsu flæði viðskipta. Ef það tekst ekki ættu bandarísk stjórnvöld að þrýsta á bandamenn sínn í Evrópu og í Miðausturlöndum til að taka við því hlutverki að reyna að opna á flutninga um sundið á ný. Í morgun hvatti Trump aðrar þjóðir til þess að ráðast í hernaðaraðgerðir til að að njá stjórn á sundinu af Íran. Hann kvartaði yfir því að Bretland hefði ekki tekið þátt með Bandaríkjunum og Ísrael í aðgerðum gegn Íran. „Safnið síðkomnum kjarki, farið að sundinu og einfaldlega TAKIÐ ÞAÐ. Þið verðið að byrja að læra að berjast sjálf, Bandaríkin verða ekki lengur til staðar til að hjálpa ykkur, rétt eins og þið voruð ekki til staðar fyrir okkur,“ skrifaði Trump á samfélagsmiðli sínum Truth Social. „Íran hefur í raun verið gjöreytt. Erfiðasti hlutinn er búinn. Farið og sækið ykkar eigin olíu!“ Fjármálamarkaðir hafa tekið vel í fregnir um að Trump sé að horfa til að draga úr stríðsátökum í Miðausturlöndum. S&P 500 vísitalan hefur hækkað um meira en 1,5% í dag. Evrópska hlutabréfavísitalan Stoxx Europe 600 hefur hækkað um 0,6%.

Share this article