Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Snjóflóð féll yfir veg í Ólafsfirði

Read Full Article →

Snjóflóð féll úr Ósbrekkufjalli í Ólafsfirði í nótt. Flóðið féll ekki nálægt byggð, en fór yfir veg og út í sjó. Magni Hreinn Jónsson, ofanflóðasérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir flóðið hafa verið nokkuð stórt. „Það fór út í sjó en á þekktum stað, þar sem svona í gegnum tíðina farið nokkuð reglulega flóð út í sjó,“ segir Magni. Óvissustig er í gildi á Norðurlandi vegna snjóflóðahættu. Stórt flóð féll úr Selskál í Hvennaeyrarhnúki skammt frá byggð á Siglufirði í gær og þar var einn bær í dreifbýli rýmdur. Magni segir að flóðið í Ólafsfirði breyti litlu um mat á aðstæðum. „Þetta er svo sem bara í takti við viðvaranir sem eru í gildi, það er í gildi óvissustig á norðanverðu landinu og það má alveg búast við flóðum sem þessum á svona þekktum stöðum alveg niður á láglendi þannig þetta er svolítið í takti við það.“ Óvissustig vegna snjóflóðahættu er einnig í gildi á Vestfjörðum. Þar féllu nokkur flóð í gær en ekki hefur verið tilkynnt um flóð það sem af er morgni. Á Ísafirði hafa nokkur atvinnuhúsnæði verið rýmd.

Share this article