Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Snjóflóð féllu ofan við Ísafjörð og í Ólafsfirði

Read Full Article →

Þrjú snjóflóð féllu úr Seljalandshlíð og eitt úr Gleiðarhjalla ofan við Ísafjörð í nótt. Flóðin féllu ofan við atvinnusvæði sem rýmt var í morgun. Stórt flóð féll úr Ósbrekkufjalli í Ólafsfirði, yfir veg og út í sjó. „Þetta voru mest flóð bara á þekktum stöðum og fyrir ofan þetta svæði sem var rýmt í morgun. Þau voru ekki mjög stór en eitt fór samt yfir veginn sem liggur upp á Seljalandsdal,“ segir Magni Hreinn Jónsson, ofanflóðasérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, um flóðin sem féllu ofan við Ísafjörð. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er í gildi á svæðinu og Magni segir flóðin í samræmi við það sem við var búist. Hann segir viðbúið að fleiri flóð geti fallið á svæðinu. „Það getur alveg verið, það eru þarna fleiri þekktir farvegir sem hefur ekki komið flóð úr þannig það geta alveg farið flóð þar,“ segir Magni. Hann segir ekki liggja fyrir að stærra svæði verði rýmt vegna snjóflóðahættu, en áfram verði fylgst með aðstæðum og þær metnar jafnóðum. Það féll líka snjóflóð úr Ósbrekkufjalli í Ólafsfirði í nótt, það var ekki nálægt byggð, en fór yfir veg og út í sjó. Magni segir flóðið í Ólafsfiði stórt, það hafi fallið á þekktum stað þar sem reglulega hafi fallið flóð. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er í gildi á Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum. Rýming tók gildi fyrir reit níu á Ísafirði í morgun, þar er atvinnustarfsemi, og einn bær í dreifbýli við Siglufjörð var rýmdur í gær eftir að stórt snjóflóð féll á Siglufjarðarveg

Share this article