Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Nokkur smærri snjóflóð og rýmingar í gildi á Ísafirði og Siglufirði

Read Full Article →

Óvissustig vegna snjóflóðahættu er á Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum og á Ísafirði er hættustig. Þar hafa nokkur atvinnuhús undir Seljalandshlíð verið rýmd, á reit níu – þar er meðal annars Netagerðin sem hýsir ýmsa atvinnu og listastarfsemi. Til fjalla er spáð snjókomu segir á vef Veðurstofunnar og þar má búast við skafrenningi í dag og næstu daga því safna ætti snjó í upptakasvæði snjóflóða. Nokkur snjóflóð hafa fallið í nótt og í morgun, úr Ósbrekkufjalli norðan Ólafsfjarðar, úr gili skammt innan Flateyrar, úr norðurhlíð Súgandafjarðar auk nokkurra flóða í Skutulsfirði og Syðridal við Bolungarvík. Ofanflóðasérfræðingur á Veðurstofunni segir flóðin lítil. „Þetta er kannski stærð tveir á þessum skala og þau ógna ekki neinu, enn þá,“ segir Óliver Hilmarsson. Eru líkur til þess miðað við spána að það verði frekari rýmingar? „Eins og veðrið er núna lítur það ekki þannig út en við þurfum bara að fylgjast með veðrinu. Það dregur aðeins úr þessu á morgun en svo gefur aftur í á þriðjudag sem þarf að fylgjast með,“ segir Óliver. Rýma húsið í fyrsta sinn Þá féllu stór snjóflóð úr Selskál skammt utan við Siglufjörð aðfaranótt laugardags og fjölskyldan á Steinaflötum í Siglufirði þurfti að rýma vegna snjóflóðahættu. Steinaflatir eru sunnan við byggðina á Siglufirði og þar býr Símon Helgi Símonarsson. „Það er vont að sjá snjósöfnunina þarna uppi. Þetta er þó nokkuð sem er komið, þykkt,“ segir Símon Helgi. Á meðan hættan gengur yfir dvelur hann hjá tengdamóður sinni á Siglufirði ásamt konu og syni. Þau hafa búið á Steinaflötum í fjögur ár. Hvernig er að búa við þessa snjóflóðahættu? „Það er allt í lagi. Þetta skeður nú ekki oft, við höfum aldrei þurft að yfirgefa húsið,“ segir hann. Símon segir ekki líklegt að þau geti snúið til baka í dag miðað við úrkomumagnið. Telurðu líkur á að það verði einhvern tímann í dag miðað við þessar viðvaranir sem eru í gildi? „Nei, ekki miðað við veðrið sem er hérna. Það er hvasst og slyddudrulla,“ segir hann.

Share this article