Rýma þurfti Reit 9 í Skutulsfirði þegar snjóflóð féll í Seljalandshlíð í morgun. Á reitnum er atvinnuhúsnæði sem rýma þurfti um helgina, en þeirri rýmingu hafði verið aflétt þegar rýma þurfti á ný. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er enn í gildi á Norðurlandi og á norðanverðum Vestfjörðum. Búið er að opna veginn um Súðavíkurhlíð en lokað er um Flateyrarveg vegna snjóflóðahættu. Dynjandisheiði verður ekki opnuð í dag og ófært er á Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum, Gemlufallsheiði og norður í Árneshrepp. Ólíklegt er að hægt verði að opna veginn um Ólafsfjarðarmúla í dag en skoða á hvort hægt verði að opna Siglufjarðarveg. Veðurhrinunni lýkur vonandi á morgun Þrátt fyrir að óvissustig sé í gildi segir Sveinn Brynjólfsson, sérfræðingur á snjóflóðavakt Veðurstofunnar, að byrjað sé að sjá fyrir endann á norðanátt og snjókomu sem valdið hefur umferðartöfum og snjóflóðahættu. Hann segir ýmislegt hafa gengið á undanfarna daga. „Það hafa fallið fjölmörg snjóflóð, bæði á Vestfjörðum og á Norðurlandi. Og flóðin eru stærri fyrir norðan. Það snjóaði langmest þarna yst á Tröllaskaganum. Þar urðu snjóflóðin bara býsna stór og voru að falla alveg þarna á laugardag, sunnudag, mánudag og síðast í nótt. Í morgun féllu flóð í Ólafsfirði sem eru bara álíka stór og þau. Veðrið er enn þá leiðinlegt þar en við búumst við að það dragi nú úr þessu í dag.“ Að sögn Sveins lýkur veðurhrinunni vonandi á morgun. Þá taki við hláka og breytt veðurskilyrði sem áfram þarf að fylgjast með. „Svo hlýnar aftur á fimmtudag eða á miðvikudagskvöld fram á fimmtudag. Þá gæti aftur orðið dálítið mikill óstöðugleiki í snjónum og jafnvel þarf að búast við einhverjum krapahlaupum ef leysingin verður mikil í suðvestanstorminum á fimmtudag.“