Smáþjóðamótið í ólympískum lyftingum var haldið í Garðabæ í gær. Keppendur Íslands í kvennaflokki unnu þar stærstu afrekin og var Guðný Björk Stefánsdóttir stigahæst. Þetta er í 47. sinn sem mótið er haldið en þar mætast keppendur frá smáþjóðum Evrópu. Keppnin fór fram í Miðgarði, lyftingaraðstöðu Stjörnunnar í Garðabæ. Hér að neðan má sjá helstu atvik mótsins. Guðný Björk Stefánsdóttir var stigahæst allra á Smáþjóðamóti í ólympískum lyftingum sem haldið var hér á landi um helgina. Guðný Björk var í miklum ham í mínus 77 kílóa flokki í gær og lyfti 96 kílóum í snörum og 119 í jafnhendingu. Það eru 215 kíló samanlagt og bæting hjá henni um sex kíló. Árangur í ólympískum lyftingum er umreiknaður í Sinclair-stig til að gefa mynd af árangri þvert á þyngdarflokka og lyftur Guðnýjar Bjarkar gáfu 266,186 Sinclair-stig sem var það mesta á mótinu. Næst á eftir henni kom Katla Björk Ketilsdóttir í mínus 63 kílóa flokki. Hún lyfti 193 kílóum samtals og bætti sinn besta árangur um 5,8 kíló og fékk 256,895 stig. Þórbergur fremstur karla Bestum árangri íslensku karlanna náði Þórbergur Ernir Hlynsson. Hann keppir í 110 kílóa flokki og lyfti 107,25 kílóum í snörum og 180 í jafnhöttun og var nærri sínum besta árangri sem hann náði á Íslandsmótinu í febrúar. Þórbergur Ernir er aðeins tvítugur og varð annar í heildarkeppninni í Sinclair-stigum á eftir Dimitris Minasidis frá Kýpur. Hér má sjá keppnina í heild sinni. Íslenska sveitin Sigurður Darri Rafnsson og Ingi Gunnar Ólafsson þjálfa landsliðið. Emilía Nótt Davíðsdóttir, -69 kg Katla Björk Ketilsdóttir, -63 kg Guðný Björk Stefánsdóttir, -77 kg Þórbergur Ernir Hlynsson, -110 kg Kristófer Logi Hauksson, -88 kg Tindur Eliasen, -88 kg. Eygló Fanndal Sturludóttir, Evrópumeistari og Íþróttamaður ársins 2025, er frá vegna meiðsla.