Guðný Björk Stefánsdóttir gerði sér lítið fyrir og sló þrjú Íslandsmet í -69 kílóa flokki á EM í ólympískum lyftingum í dag. Fyrsta lyfta dagsins var 94 kíló í snörun, sem var Íslandsmet. Hún bætti hins vegar um betur þegar hún lyfti 97 kílóum í annarri lyftu. Þá reyndi hún við 100 kíló í þeirri þriðju sem fóru ekki upp. Því næst var það jafnhending. Guðný byrjaði á 115 kílóum sem vildu ekki upp en í næstu tilraun voru 116 kíló á stönginni og sú heppnaðist vel og er annað Íslandsmet hennar í dag. Samanlagt lyfti hún 213 kílóum, sem er þriðja metið. Það skilaði henni 14. sætinu í dag af 34 keppendum. Hún segist þó vilja gera enn betur. „Ég er ekki alveg nógu sátt. Ég er spennt að fá annað tækifæri til að sýna hvað ég get gert. Það kom mér á óvart hvað stelpurnar hérna eru ruglað sterkar. En ég sló þrjú Íslandsmet og maður verður að vera sáttur við það.“