Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fundarfall þegar ráðherrann fór til Síle

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 16.3.2026 | 6:40 Fundarfall þegar ráðherrann fór til Síle Christopher Landau. AFP/Javier Torres Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Ferð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra varð endasleppari en að var stefnt, þar sem Christopher Landau aðstoðarutanríkisráðherra afboðaði fundinn eftir að ferðin vestur var hafin. Frétt af mbl.is Þorgerður heldur til Washington Eftir því sem næst verður komist virðist aðstoðarráðherrann hafa tvíbókað sig, en mánudaginn 9. mars var tilkynnt að hann héldi úr landi daginn eftir og yrði fulltrúi Bandaríkjastjórnar við innsetningu Josés Antonios Kasts, nýs forseta Síle, á miðvikudag, 11. mars. Hins vegar var íslenskum stjórnvöldum ekki greint frá því fyrr en eftir að Þorgerður Katrín var haldin vestur um haf, en þriðjudaginn 10. mars birti utanríkisráðuneytið frétt um ferð hennar, þar sem sérstaklega var tiltekið að hún myndi hitta Landau að máli. Ferðin var þó ekki ónýt, því utanríkisráðherra átti fundi með Andy Baker varaþjóðaröryggisráðgjafa, Elbridge Colby aðstoðarstríðsmálaráðherra og Jeff Goettman varautanríkisviðskiptaráðherra. Fram kom í máli utanríkisráðherra eftir fundina að hún hefði átt „hreinskiptin samtöl“ í Washington, sem í utanríkisþjónustunni eru skrauthvörf um að menn hafi ekki verið á einu máli, jafnvel að til orðaskipta hafi komið. Í það glitti jafnframt í orðum hennar við blaðamann Morgunblaðsins á fimmtudag, þar sem hún sagði ljóst að bandarísk stjórnvöld væru ekki miklir unnendur Evrópusambandsins (ESB) og töluðu í raun mjög gegn því, þegar fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður Íslands barst í tal. Ögrun við Bandaríkin Óljóst er hvort fundarfall Landaus var af ásettu ráði eða fyrir mistök. Degi áður en fundur hans og Þorgerðar Katrínar átti að fara fram lagði sendiherra Íslands fram yfirlýsingu um að Ísland tæki þátt í máli Suður-Afríku gegn Ísrael fyrir Alþjóðadómstólnum í Haag vegna stríðsins á Gasa. Ákvörðunin átti sér skamman aðdraganda, en þegar hún var kynnt utanríkismálanefnd Alþingis fylgdu ekki greiningar á mögulegum afleiðingum hennar. Viðmælendur blaðsins í bæði utanríkismálanefnd og utanríkisráðuneyti telja afar ósennilegt að sú tímasetning sé tilviljun og hafi verið til þess fallin að strjúka bandarískum stjórnvöldum öfugt. Bandaríkin eiga nú í hernaðaraðgerðum í samstarfi við Ísrael, ekki ótengdum Gasastríðinu, en 20 bandarískir hermenn hafa fallið í þeim og um 140 særst. Fýluferð til Washington Utanríkisráðherra flaug vestur um haf 10. mars Erindið var fundur með Christopher Landau aðstoðarutanríkisráðherra Þegar til kom 11. mars var hann hins vegar farinn til Síle Ráðherra átti fundi með öðrum stjórnarerindrekum Óljóst er hvort málshöfðun Íslands gegn Ísrael í Haag hafði áhrif á fundarfallið Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fundarfall þegar ráðherrann fór til Síle Eldurinn kviknaði út frá kerti Eiginkonan gaf honum spark í rassinn Bein útsending frá Bocuse: Snædís keppir nú fyrir Íslands hönd Hríðarveður norðvestanlands Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hafa opnað tvær fjöldahjálparstöðvar Segja Rammagerðina fara með rangfærslur Ferðatíminn lengist um 30 mínútur One Battle After Another sigurvegari kvöldsins Mest lesið Í gær Í vikunni Fólk kom út með tárin í augunum Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Bendir á pólitískan ómöguleika New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Býst við töluverðum fjölda í fjöldahjálparstöðvarnar Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð „Við hljótum að geta gert betur“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Drukknir menn reikuðu um gólfið Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Fundarfall þegar ráðherrann fór til Síle Eldurinn kviknaði út frá kerti Eiginkonan gaf honum spark í rassinn Bein útsending frá Bocuse: Snædís keppir nú fyrir Íslands hönd Hríðarveður norðvestanlands Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Langvinn skjálftahrina suðaustan við Bárðarbungu Hóta að ráðast á olíuinnviði Bandaríkjanna Kvartað undan rukkunum Isavia Býst við töluverðum fjölda í fjöldahjálparstöðvarnar Mest lesið Í gær Í vikunni Fólk kom út með tárin í augunum Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Bendir á pólitískan ómöguleika New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Býst við töluverðum fjölda í fjöldahjálparstöðvarnar Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð „Við hljótum að geta gert betur“ Drukknir menn reikuðu um gólfið Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Drukknir menn reikuðu um gólfið Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir

Share this article