Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins og fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, tekur sæti á Alþingi á ný í dag. Hann hefur verið í veikindaleyfi síðan í desember. Guðmundur Ingi gekkst undir hjartaaðgerð og hefur verið í leyfi meðan hann var að ná bata. Hann lét af embætti ráðherra meðan á veikindunum stóð. Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, taka einnig sæti á þingi í dag. Guðmundur Ingi Kristinsson.RÚV / Ragnar Visage