Innlent | mbl | 16.3.2026 | 11:23 Hyggjast fjölga hjúkrunarrýmum um tæpan helming Menntamál Inga Sæland einbeitir sér nú að mennta- og barnamálum. Karítas Sveina Guðjónsdóttir Setja bókamerki Tengdar fréttir Hjúkrunarheimili, skortur Hjúkrunarrýmum lokað í Seljahlíð Halda eftir 105 þúsundum Ekki best að hafa fólk heima Ekki líkur á framlengingu samninga Fá engar bætur frá ríkinu » Fleiri tengdar fréttir Ný framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila á landsvísu gerir ráð fyrir því að hjúkrunarheimilum fjölgi um tæplega helming um land allt og viðsnúningi á biðlistum næstu árin. Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, kynnti áætlunina í dag, en uppbygging hjúkrunarrýma heyrir undir hana. Ef áætlunin gengur eftir verða ríflega 1.500 hjúkrunarrými tekin í gagnið fyrir árslok 2030, þar af 90% þeirra ný viðbót, og gert er ráð fyrir því að innan fimm ára muni biðlistar eftir hjúkrunarrýmum svo til tæmast. Frétt af mbl.is 500 manns á biðlista og 200 að auki í biðrýmum Frétt af mbl.is Inga Sæland boðar áhyggjulaust ævikvöld Hjúkrunarrýmum fjölgi um 44% innan fimm ára Framkvæmdaáætlunin gerir ráð fyrir mikilli fjölgun hjúkrunarrýma og viðsnúningi á biðlistum, en samkvæmt henni verða 1.507 hjúkrunarrými tekin í notkun fyrir lok árs 2030, og af þeim verða ný hjúkrunarrými alls 1.355 talsins. 90% af þeim hjúkrunarrýmum sem tekin verða í gagnið verða þannig hrein viðbót við hjúkrunarrýmin sem þegar eru til staðar á landinu. Þá eru samtals 152 hjúkrunarrými, eða 10% þeirra sem talin eru með í áætluninni, endurbætur á eldri rýmum. Ef áætlunin gengur eftir verður hjúkrunarrýmum fjölgað úr 3.062 á landsvísu upp í 4.417, eða um rúmlega 44%, innan fimm ára. Á höfuðborgarsvæðinu er gert ráð fyrir 897 nýjum rýmum, 146 nýjum rýmum á Norðurlandi, 140 á Suðurnesjum, 72 á Suðurlandi, 60 á Vesturlandi, 20 á Vestfjörðum og 10 á Austurlandi. Frétt af mbl.is Fjölga þurfi hjúkrunarrýmum um 100 á ári 90% hinna fyrirhuguðu hjúkrunarrýma eru hrein viðbót við þau rými sem fyrir eru. Myndrit/Félags- og húsnæðismálaráðuneyti Tæma biðlistanna innan fimm ára Í fréttatilkynningu um málið er það tekið fram að um afar metnaðarfull markmið sé að ræða og áformin ýmsu háð, svo sem skipulagshraða í sveitarfélögum, hraða í útboðsferlum og uppbyggingarhraða. Gangi þau eftir er gert ráð fyrir því að árin 2029 og 2030 verði einungis tæplega 100 manns í svokölluðum biðrýmum þaðan sem þeir fara áfram á hjúkrunarheimili, og að fjöldi þeirra sem eru á biðlista og ekki í biðrýmum verði kominn niður í núll. Frétt af mbl.is „Við getum ekki búið við þessar aðstæður“ Gert er ráð fyrir því að enginn verði á biðlista og ekki í biðrými árið 2029. Myndrit/Félags- og húsnæðismálaráðuneyti Í töflunni er tekið tillit til mannfjöldaþróunar og öldrun þjóðarinnar. Talan 75% í dálki tvö vísar í það markmið stjórnvalda að 75% einstaklinga með samþykkt færni- og heilsumat fái hjúkrunarrými innan 90 daga. Frétt af mbl.is Bregðast þarf við öldrun þjóðarinnar „Þáttaskil í uppbyggingu hjúkrunarrýma“ Í framkvæmdaáætluninni er áætlun um kostnað við uppbyggingu og rekstur hjúkrunarrýmanna sem aftur mótar grunn að tillögum fyrir fjármálaáætlun 2027-2031. Samkvæmt nýrri aðferðafræði býður ríkið út uppbyggingu hjúkrunarheimila og leigir heimilin til baka á grundvelli leigusamnings til 20-30 ára. „Áætlunin sem ég kynni í dag markar algjör þáttaskil í þjóðarátaki ríkisstjórnarinnar í uppbyggingu hjúkrunarrýma,“ er haft eftir Ingu Sæland í tilkynningu. „Ég hef lagt hug og hjarta í það að tryggja að fullorðna fólkið okkar fái notið allrar þjónustu og alúðar á efsta æviskeiðinu. Markmiðið er skýrt: Enginn á að þurfa að vera á biðlista og í óöryggi án umhyggju og þeirrar þjónustu sem okkur er skylt að veita.“ Frétt af mbl.is Þreföldun hjúkrunarrýma í Mosfellsbæ Frétt af mbl.is Byggja 108 ný hjúkrunarrými í Hafnarfirði Tengdar fréttir Hjúkrunarheimili, skortur Hjúkrunarrýmum lokað í Seljahlíð Halda eftir 105 þúsundum Ekki best að hafa fólk heima Ekki líkur á framlengingu samninga Fá engar bætur frá ríkinu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hyggjast fjölga hjúkrunarrýmum um tæpan helming Myndskeið: Frábært hlaup Hákons endaði með marki About 500 people waited out the storm „Það er jafntefli, ég er ekki að grínast“ Gera víðtækar árásir á þrjár íranskar borgir Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Trump vill aðstoð frá NATO og Kína Hríðarveður norðvestanlands Um 500 manns biðu veðrið af sér Í svaðilför þvert yfir Suðurskautslandið Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snýr aftur eftir endurhæfingu Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Bendir á pólitískan ómöguleika Fundarfall þegar ráðherrann fór til Síle Um 500 manns biðu veðrið af sér Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Býst við töluverðum fjölda í fjöldahjálparstöðvarnar Skólameistari kærir úrskurð Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Hyggjast fjölga hjúkrunarrýmum um tæpan helming Myndskeið: Frábært hlaup Hákons endaði með marki About 500 people waited out the storm „Það er jafntefli, ég er ekki að grínast“ Gera víðtækar árásir á þrjár íranskar borgir Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Um 500 manns biðu veðrið af sér Hafa opnað tvær fjöldahjálparstöðvar Hyggjast fjölga hjúkrunarrýmum um tæpan helming Ferðatíminn lengist um 30 mínútur Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snýr aftur eftir endurhæfingu Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Bendir á pólitískan ómöguleika Fundarfall þegar ráðherrann fór til Síle Um 500 manns biðu veðrið af sér Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Býst við töluverðum fjölda í fjöldahjálparstöðvarnar Skólameistari kærir úrskurð Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir