Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Boða nýja hvata til að fjölga hjúkrunarrýmum

Read Full Article →

Nýjar heimildir til framkvæmda gætu auðveldað hjúkrunarheimilum að fjölga rýmum. Þörf er á heildstæðu kerfi um uppbyggingu hjúkrunarheimila, segir Sigurjón Norberg Kjærnested, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu. Hann er bjartsýnn á að vel takist að fjölga hjúkrunarrýmum á næstu mánuðum. Rúmlega 740 hafa fengið færni- og heilsumat og bíða eftir að komast inn á hjúkrunarheimili, þar af 114 á Landspítalanum. Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu funduðu með heilbrigðisráðuneytinu fyrir hádegi. Þau hafa unnið að hugmyndum til að gera hjúkrunarheimilum kleift að taka á móti fleira fólki. „Til dæmis eins og þegar hjúkrunarheimili sem getur bætt við sig, segjum einu eða tveimur hjúkrunarrýmum, með því að fara í einhverjar framkvæmdir, eða gera breytingar, að það verði þá straumlínulagað og einfalt ferli í kringum að fá það samþykkt og framkvæmt. Þetta er mjög mikilvægt til að byggja upp jákvæðan hvata í kerfinu fyrir fjölgun hjúkrunarrýma,“ segir Sigurjón. Hann telur að með þessu geti mörg hjúkrunarheimili bætt við sig nokkrum rýmum. Enn á eftir að útfæra úrræðið og því ekki ljóst hvers konar hvata á að bjóða hjúkrunarheimilum til að ráðast í framkvæmdir. Þannig verði til að mynda hægt að koma til móts við skort á legurýmum á Landspítala. „Við erum að vinna úr hugmyndum til þess að gera hjúkrunarheimilum kleift að taka við fleira fólki til þess að hjálpa Landspítalanum og heilbrigðisstofnunum í þessari stöðu. Við erum í mjög virku samtali og erum að vinna að hugmyndum sem við viljum koma í framkvæmd sem allra fyrst,“ segir Sigurjón. „Almennt á kerfið að virka þannig að sá sem er í mestri þörf eftir hjúkrunarrými komist inn í það. Það er þetta færni og heilsumat sem við erum með. Það er oft gert í neyðarástandi, eins og hefur verið lýst núna, að Landspítalinn hafi meiri forgang heldur en aðrir hlutar kerfisins.“ 22 rými sem þurfti að loka vegna eldsvoða á Hrafnistu á Sléttuvegi verða opnuð aftur á næstunni og stefnt er að því að nýtt hjúkrunarheimili með um 100 rýmum opni í Urriðahvarfi í Kópavogi í maí. Sigurjón segir brýnt að koma á heildstæðu kerfi um uppbyggingu hjúkrunarheimila og bæta þjónustu við fólk sem bíður eftir rými en getur verið heima. „Það sem við höfum lagt áherslu á þar er að öll hjúkrunarheimili, bæði þau sem eru í rekstri nú þegar og þau sem á að byggja upp, njóti jafnræðis á við aðra hluta heilbrigðiskerfisins þegar kemur að fullum húsnæðisgreiðslum, leigugreiðslum, fyrir það húsnæði sem þau koma með inn í þjónustuna. Það er klárlega eitt mál sem þarf að leysa til að húsnæðiskerfið virki fyrir hjúkrunarheimili.“

Share this article