Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þyrfti nýtt 100 manna hjúkrunarheimili á morgun til að leysa vandann

Read Full Article →

Fólk sem hefur lokið meðferð á bráðamóttöku kemst ekki áfram á legudeildir því þar er fólk sem bíður eftir plássi á hjúkrunarheimilum. 118 biðu á Landspítalanum eftir hjúkrunarrými fyrir viku síðan og í gær biðu 106. Um 30 hafa verið útskrifaðir síðastliðna viku og færðir ýmist heim, á hjúkrunarheimili eða aðrar heilbrigðisstofnanir. Hins vegar bætast um 10 til 15 við í hverri viku. „Vandinn er að það bætist alltaf jafn harðann í þannig að þetta er svo mikið langhlaup,“ segir Hildur Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur í útskriftarteymi Landspítalans. „Það þyrfti að opna 100 manna hjúkrunarheimili á morgun. En það er bara óraunhæft.“ Sjö hjúkrunarfræðingar skipa teymið sem vinnur með bráðalegudeildum við að útskrifa fólk af spítalanum. Það leiðir einnig vinnu við færni- og heilsumat. „Það hefur verið mjög vaxandi þungi núna um nokkurra mánaða skeið í þessum færni- og heilsumatsmálum. Birtingarmyndin er á bráðamóttökunni, eins og fólk þekkir, en þetta er líka mjög snúið á legudeildunum. Það er alltaf verið að rýna í hvort fresta þurfi skurðaðgerðum. Þetta er orðið eins og að þurfa skó númer 40 en vera alltaf í skóm númer 37.“ „Það þurfa að koma stærri úrræði“ Forstjóri Landspítala hefur sagt að flytja þurfi allt að 70 af spítalanum til að bráðamóttaka geti starfað eðlilega. Heilbrigðisráðuneytið hefur kynnt aðgerðarpakka til að bæta stöðuna. Þar eru ýmsar tillögur, til að mynda að semja við einkastofu um nýtingu legurýma og rýma hluta sjúkrahótels. Hildur segir samvinnu Landspítala, ráðuneytis og annarra stofnana vera góða en er bjartsýn á að aðgerðirnar skili árangri. „En vandinn er svo stór að þetta mun taka langan tíma að vinda ofan af þessu og það þurfa að koma stærri úrræði heldur en eitt og eitt pláss hér og þar. Það er auðvitað allt í vinnslu en það gerist ekki svona hratt.“ Ekki allir reiðubúnir að þiggja pláss Hildur segir það líka flækja stöðuna að sumir séu ekki reiðubúnir að þiggja boð um biðpláss. Þá komi einnig fyrir að fólk fær boð um varanlegt pláss á heimili sem það hefur sjálft valið en svo afþakkað það. „Þetta finnst mér alls ekki nógu gott. Ég myndi vilja kalla þennan hóp að borðinu með okkur, öllum hinum sem erum að reyna að leysa þennan mikla vanda; að þau séu hjálplegri í þessu þegar við erum að sýsla með þessi pláss.“

Share this article