Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Leitað undir hverjum steini að lausu hjúkrunarrými

Read Full Article →

Spegillinn fjallaði í febrúar um þrjú minnisblöð, sem stjórnendur Landspítalans sendu heilbrigðisráðuneytinu, þar sem dregin var upp alvarleg staða á mörgum vígstöðvum spítalans sem bregðast þyrfti tafarlaust við. Bráðamóttakan væri yfirfull, aldrað fólk biði eftir hjúkrunarrýmum og fresta þyrfti skurðaðgerðum. Skilja mátti orð þeirra sem svo að þörf væri á róttækum aðgerðum og starfsmenn spítalans létu líka í sér heyra. Það komu upp berklasmit og varað var við því að starfsfólk væri orðið útkeyrt af álagi. Skortur á hjúkrunarrýmum er ein helsta ástæðan fyrir alvarlegri stöðu spítalans; aldrað fólk sem lokið hefur meðferð liggur á spítalanum og kemst hvergi. Spegillinn fékk nýverið afhent samskipti sem varpa ljósi á leit heilbrigðisráðuneytisins að lausum hjúkrunarrýmum; það mætti næstum því fullyrða að hverjum steini hafi verið velt við; losnaði rými eða það ekki nýtt var ráðuneytið komið í málið. Hundrað biðsjúklingar þóttu „óhugguleg tímamót“ Þessi alvarlega staða hefur legið nokkuð lengi fyrir. Deildarstjóri flæðisdeildar Landspítalans sendi tölvupóst á ráðuneytið í lok janúar þar sem hún upplýsir að 89 sjúklingar á spítalanum séu með færni- og heilsumat og bíði eftir hjúkrunarrými, ekkert nýtt úrræði sé í sjónmáli svo róðurinn þyngist enn. Færni- og heilsumat er hugtak sem á eftir að bregða ítrekað fyrir í þessum pistil; þetta er faglegt mat á þörfum fyrir varanlega búsetu á hjúkrunar- og dvalarheimilum. Ráðuneytið sendi í framhaldinu tölvupóst á framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu og bað um að kannað yrði hvort einhver rými standi auð; framkvæmdastjóri SFV svarar og spyr hvort mögulega sé eitthvað í kerfinu sem komi í veg fyrir að allt sé notað; hann hafi heyrt frá nokkrum hjúkrunarheimilum að þeir kostir sem boðið hafi verið upp á hafi ekki verið nýttir. Viku seinna barst annar póstur frá yfirmanni flæðisdeildar Landspítalans; hún talar um óhugguleg tímamót, því fjöldi biðsjúklinga innan veggja spítalans hafi farið yfir hundrað. Spítalinn hafi þurft að vísa frá fólki á bráðamóttökunni sem sé með færni- og heilsumat og ætti því með réttu að vera á hjúkrunarheimili. „Þetta er allt saman skortur á viðeigandi úrræðum,“ segir deildarstjórinn. Ráðuneytið vildi rýma tugi rúma á spítalanum Hafi yfir hundrað biðsjúklingar markað óhugguleg tímamót segir það sitt um ástandið sem hefur verið á Landspítalanum undanfarna mánuði að þessi tala fór hæst í 129 í síðsta mánuði. Til að sjúkrahúsið sé í eðlilegum rekstri þyrfti talan að vera miklum mun lægri, eða á bilinu fjörutíu til fimmtíu, samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum. Umfjöllun Spegilsins um minnisblöð forstjóra Landspítalans virðist hafa hreyft við ráðuneytinu því morguninn eftir að hún fór í loftið voru sendir út tölvupóstar og aukinn kraftur settur í leitina að hjúkrunarýmum. Þetta er til að mynda hálfgerð herhvöt til hjúkrunarheimila; aðstæður Landspítalans séu alvarlegri en áður og gríðarleg þörf fyrir rýmingu tuga rúma til að spítalinn geti gegnt hlutverki sínu. Þennan sama morgun er líka óskað eftir tillögum frá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu um mögulegar lausnir á vandanum þar sem ráðuneytið viðurkennir að augljóslega hefði mátt hafa hraðari hendur í ljósi ástandsins. Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, fær líka póst frá ráðuneytinu þennan morgun. Þar segist ráðuneytið vera að fara yfir lausnir sem komið hafi til álita - úrbæturnar sem unnið hafi verið að hafi tekið lengri tíma en til stóð og því sé gott að fá upplýsingar um hvort spítalinn hafi þegar nýtt allar mögulegar og þekktar lausnir. Forstjóri hjúkrunarheimilis skynjaði örvæntingu Framkvæmdastjóri hjúkrunarheimilisins Droplaugastaða fær líka póst þar sem hún gat ekki setið fund í ráðuneytinu og hún spurð hvort einhverjar leiðir séu til að fjölga rýmum, jafnvel tvímenna í herbergi; skilja má tölvupóstinn sem svo að til að liðka fyrir málum ætli ráðuneytið að beita sér fyrir því að MND-rými sem kosti fimmtán milljónir komi til framkvæmda. Ráðuneytið leitar hófanna víða; Sóltún er spurt hvort hægt sé að koma upp hjónarýmum því það sé eftirspurn eftir þeim og forstöðumaður Grundarheimilanna bregst við beiðni frá ráðuneytinu um að tvímenna eigi í herbergi sem losna. Hann segist skilja þá neyð sem steðji að Landspítalanum en skynja jafnvel ákveðna örvæntingu í þeim efnum. Það verði hins vegar að greiða sérgjald fyrir þetta þar sem þetta sé aukið álag, það sé líka erfiðara að tryggja öryggi beggja heimilismanna og svo sé ekkert öruggt að sambúð þeirra gangi vel. Rykið dustað af gömlum hugmyndum Það finnast hjúkrunarrými hér og þar en tölvupóstur sem forstjóri Eirar sendi um miðjan síðasta mánuð vekur athygli. Þótt hún segist sjálf ekki hafa þá reynslu að ekki sé hlustað á hugmyndir um viðbrögð við vandanum sé ljóst að það sé reynsla sumra. Hún leggur til ákveðnar aðgerðir en bendir um leið á að einhverjum þeirra hafi áður verið komið á framfæri við ráðuneytið. Allra leiða er leitað og hvert einasta hjúkrunarrými skiptir máli; Landspítalinn fær til að mynda póst þar sem spurt er hvort einhverjir Eyjamenn bíði á spítalanum því þar hafi losnað fjögur rými; „engir Eyjamenn hér,“ svarar spítalinn. Ef til vill má segja vandinn sem blasir við kristallist hvað best í samskiptum ráðuneytisins við hjúkrunarheimilið á Hvammstanga. Ráðuneytinu barst það til eyrna að hjúkrunarrýmin þar væru ekki fullnýtt og vildi vita af hverju og hversu mörg rými væru í notkun. Svarið var heiðarlegt; vegna manneklu hafi ekki tekist að hafa nema tólf af sextán rýmum opin, af þessum tólf séu ellefu í föstum plássum og meira en helmingur þeirra séu krefjandi sjúklingar með alzheimer eða heilabilun. „Miðað við mönnun komumst við ekki yfir meira að svo stöddu, því miður,“ segir í svarinu. Áfram þung staða á bráðamóttökunni Og staðan á bráðamóttökunni eftir þessa leit að hjúkrunarrýmum? Um miðjan febrúar voru 129 sjúklingar inniliggjandi með færni- og heilsumat - í dag eru þeir 116. Og það er rétt að rifja upp; spítalinn telur að þessi fjöldi ætti að vera í kringum fjörutíu til fimmtíu. Þá hefur meðalfjöldi þeirra sem bíður innlagnar á bráðamóttökunni ekki verið hærri síðustu tólf mánuði og meðalfjöldi sjúklinga sem dvelur meira en sólarhring á bráðamóttökunni á degi hverjum aldrei verið meiri - þeir eru fjörutíu. Í svari sjúkratrygginga við fyrirspurn Spegilsins kemur fram að samið hafi verið við níu hjúkrunarheimili um 39 rými til að reyna að bregðast við vanda Landspítalans. Kostnaður við þetta nemur 320 milljónum króna á ársgrundvelli. Þá stefnt að því að taka í gagnið ríflega hundrað biðhjúkrunarrými í Urðarhvarfi á næstu vikum og áfram séu viðræður við Klíníkina um tólf legurými.

Share this article