Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Rúm hundrað bíða enn eftir plássi

Read Full Article →

Innlent | mbl | 27.3.2026 | 23:00 Rúm hundrað bíða enn eftir plássi Frá bráðamóttöku Landspítalans. Ljósmynd/Þorkell Þorkelsson Birta Hannesdóttir [email protected] Setja bókamerki Rúmlega hundrað manns bíða innan veggja Landspítalans eftir plássi á hjúkrunarheimili. Á rúmum mánuði hafa 97 sjúklingar fengið pláss á hjúkrunarheimili en staðan er samt sem áður nær óbreytt á spítalanum. Lengi hefur verið fjallað um neyðarástand á bráðamóttöku Landspítalans þar sem sjúklingar komast ekki frá bráðamóttökunni og inn á deildir spítalans því margir á deildunum bíða eftir varanlegu plássi á hjúkrunarheimili. Um miðjan febrúarmánuð boðaði starfsfólk bráðamóttökunnar til fundar þar sem óskað var eftir að stjórnvöld færu í bráðaaðgerðir til að fjölga rýmum. Ekki mikið breyst Spurð hvort staðan hafi mikið breyst frá miðjum febrúar segir Hildur Helgadóttir, deildarstjóri flæðisdeildar Landspítalans: „Staðan hefur ekki mikið lagast. Í morgun eru 109 að bíða innan veggja spítalans [að komast á hjúkrunarheimili] en á þessum tíma, frá 10. febrúar, eru farnir 97,“ segir Hildur en um miðjan febrúar voru 129 sjúklingar sem biðu eftir hjúkrunarrými. „Þessi hópur er mjög dýnamískur. Það eru margir sem fara og það eru margir sem koma og bætast við,“ segir Hildur. Hún útskýrir að einu sinni í viku fundi nefndin sem afgreiðir umsóknir um færni- og heilsumat og þá bætist alltaf einhver í hópinn sem bíður á spítalanum, í kringum 8-12 tólf manns. Spurð út í stöðuna á bráðamóttökunni segir Hildur að um hádegisbilið hafi 39 legið inni á bráðamóttökunni að bíða eftir að komast á legudeild innan veggja spítalans. Hildur Helgadóttir, deildarstjóri flæðisdeildar Landspítalans. Ljósmynd/Landspítalinn Frétt af mbl.is „Við getum ekki búið við þessar aðstæður“ Frétt af mbl.is „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Þurfa úrræði einu sinni í mánuði Á mánudag verða fyrstu hjúkrunarrýmin í Urðarhvarfi tekin í notkun. Um er að ræða svonefnd biðrými sem ætlað er að létta á þeim fráflæðisvanda sem verið hefur á bráðamóttöku Landspítalans. Að sögn Teits Guðmundssonar, forstjóra Heilsuverndar, verður tekið á móti fólki frá Vífilsstöðum og Landspítalanum í upphafi næstu viku. Alls verða 100 rými í Urðarhvarfi tekin í notkun en í kringum 45 sjúklingar koma frá hjúkrunarheimilinu Vífilsstöðum. Hildur segir að til þess að leysa fráflæðisvanda spítalans þyrfti úrræði eins og Urðarhvarf á nokkurra mánaða fresti. „Fjöldinn er orðinn svo mikill af öldruðum og þeim sem þurfa þetta úrræði, sem er eftirlit og hjúkrun allan sólarhringinn. Þetta er svo stór hópur og við höfum ekki undan. Það er mjög skrýtið að þessu hafi verið leyft að gerast, að spítalinn sé með allt þetta fólk hjá sér.“ Frétt af mbl.is Styttist í opnun í Urðarhvarfi Sýnir flókna stöðu Greint var frá því í gær að ekkert verði af samstarfi læknamiðstöðvarinnar Klíníkurinnar og Sjúkratrygginga Íslands um rekstur legurýma, með áherslu á þjónustu við aldraða einstaklinga með gilt færni- og heilsumat. Í tilkynningu frá Klíníkunni segir að þjónustan sem um ræddi hefði verið frábrugðin núverandi starfsemi Klíníkurinnar og kallað á annars konar uppbyggingu, til dæmis hvað varðar aðbúnað og mannafla. „Þá liggur fyrir að slíkt verkefni myndi kalla á verulega fjölgun starfsfólks og setja Klíníkina í samkeppni við Landspítala og hjúkrunarheimili um sérhæft heilbrigðisstarfsfólk. Slík þróun yrði vart til þess fallin að bæta stöðuna í kerfinu í heild,“ sagði m.a. í tilkynningunni. Hildur segir að vissulega séu það vonbrigði að ekki hafi tekist að semja um samstarf. „En þetta sýnir mjög vel að þetta er ekki svona einfalt, að það geti hver sem er tekið að sér að hugsa um þennan hóp. Þetta er fólk sem er heilabilað og þarf sérstakt umhverfi, svo er hérna fólk sem er mjög líkamlega veikt og þarf loftlyftara og sérhæfða hjúkrun og þess háttar.“ Frétt af mbl.is Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Frílystaði sig í Mexíkó á bótum Tvítug knattspyrnukona lést í bílslysi Rúm hundrað bíða enn eftir plássi Samgöngutruflanir eru líklegar Sigurmark gegn Færeyjum og Ísland í öðru sæti Umræðan Hallarekstur stöðvaður Fullveldi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mun á endanum lenda á almenningi Lúxussnekkjunni hleypt í land af öryggisástæðum Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Heuermann hyggst játa sök Mest lesið Í gær Í vikunni Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Páll vann fullnaðarsigur og HEF greiðir 21 milljón Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“ Nýjast á mbl.is » Frílystaði sig í Mexíkó á bótum Tvítug knattspyrnukona lést í bílslysi Rúm hundrað bíða enn eftir plássi Samgöngutruflanir eru líklegar Sigurmark gegn Færeyjum og Ísland í öðru sæti Umræðan Hallarekstur stöðvaður Fullveldi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lúxussnekkjunni hleypt í land af öryggisástæðum Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Eru ennþá taplausir í Gettu betur Mest lesið Í gær Í vikunni Ráðist á vagnstjóra og vagninum stolið Ekki verður af samstarfinu við Klíníkina „Þú ert alveg á réttri leið“ Myndskeið: Hundruð við rætur jökulsins þegar bergskriða féll Stórfelld árleg hækkun gjalda Dæmdur til að greiða 142 milljónir í sekt Páll vann fullnaðarsigur og HEF greiðir 21 milljón Brýnt að eigendur eldri símtækja geri ráðstafanir Jók hraðann og ók utan í björgunarsveitarmann Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Fylgstu með lægðinni ganga yfir Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn Daði Már fékk uppsagnarbréf Spár að ganga eftir: Fólk haldi sig heima Stangast á við heimildarmenn Daði Már fékk áfall yfir morgunkaffinu Fastur í snjó á ónýtum sumardekkjum „Þetta eru einfaldlega vonbrigði“ „Augljóst að fólk hafi farið að tilmælum lögreglunnar“ Snúa fólki við á Reykjanesbrautinni Fylgstu með lægðinni ganga yfir Hamas-liðar á Höfðatorgi Snúningsdiskur barnabílstóls brotnaði við áreksturinn „Ég er harmi slegin“ Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu Telur græðgi hafa stýrt för þegar banaslysið varð Ólafur Ragnar var í Lundúnavélinni Þrjú lúxushús á 33 milljónir Fallið hátt hjá „ríkishirðfíflinu“ Jóni Gnarr Rukka fyrir stæði „af illri nauðsyn“

Share this article