Það tekur vikur eða jafnvel mánuði að sjá afgerandi breytingar á stöðunni á bráðamóttökunni, segir heilbrigðisráðuneytið. Stefnt er að opnun nýs hjúkrunarheimilis í Kópavogi eftir rúman mánuð og bæta á heimaþjónustu til muna, til að létta undir með Landspítalanum. Ráðuneytið boðaði ýmis áform til að koma til móts við Landspítalann eftir að starfsfólk bráðamóttöku lýsti áhyggjum af stöðunni um miðjan mánuð. Um 40, sem biðu í legurýmum Landspítalans eftir hjúkrunarrými, hafa verið útskrifaðir á hjúkrunarheimili, aðrar heilbrigðisstofnanir eða heim til sín. Heilbrigðisráðuneytið segir þetta hafa skilað árangri í þröngri stöðu en að meira afgerandi árangur birtist ekki fyrr en viðameiri verkefni komast til framkvæmda. Staðan hefur í raun lítið breyst því sífellt bætist í hóp þeirra sem bíða á Landspítala, og á meðan er ekki hægt að flytja fólk af bráðamóttöku á legudeildir. Þegar krísufundur starfsfólks bráðamóttöku var boðaður biðu um 120 á Landspítala eftir að komast í hjúkrunarrými. Um helgina voru 99 inniliggjandi á Landspítala með fyrirliggjandi færni- og heilsumat en í gær voru þau 108. Óljóst hvort nýta megi sjúkrahótel Meðal þessara stóru verkefna er að flýta opnun nýs hjúkrunarheimilis í Urðarhvarfi í Kópavogi. Þar verða hundrað rými. Vonir standa til að það gerist um mánaðamótin mars-apríl. Húsnæðið verður afhent rekstraraðila á næstu dögum. Tryggja þarf rekstraraðila og starfsfólk til að opna aftur Hlévang í Reykjanesbæ, þar sem eru 30 rými. Hjúkrunarheimilinu var nýverið lokað og að sögn ráðuneytisins þarf að gera endurbætur á húsnæðinu. Þá liggur einnig fyrir greining á breytingum sem þyrfti að gera til að nýta sjúkrahótel Landspítalans . Þær eru, að sögn ráðuneytisins, umtalsverðar og tímafrekar og því óljóst hvað úr verður. Viðræður standa yfir milli Sjúkratrygginga Íslands og Klíníkurinnar um mögulega opnun hjúkrunarrýma þar. Skoða útfærslu heimaspítala Ráðuneytið skoðar einnig hvernig útfæra megi svokallaðan heimaspítala, sem yrði samstarfsverkefni Landspítala og heimahjúkrunar. Vonast er til þess að með þessu yrði hægt að útskrifa fólk fyrr af spítalanum með aukinni þjónustu heima og draga úr líkum á endurkomu á bráðamóttökuna. Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu vinna einnig með ráðuneytinu að því að auka svigrúm öldrunarstofnana til að bæta hratt við hjúkrunarrýmum ef hægt er. Þá er einnig unnið að því að fjölga dagdvalarrýmum fyrir fólk með heilabilun og gerir áætlun heilbrigðisráðuneytisins fyrir 26 slíkum rýmum. Búist er við því að hægt verði að opna 10 til 15 dagdvalarrými um næstu mánaðamót og önnur í mars eða apríl.