Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hafa áhyggjur af brunavörnum á yfirfullri bráðamóttöku

Read Full Article →

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins hefur áhyggjur af stöðu brunavarna á bráðamóttöku Landspítalans. Rúmlega hundrað bíða í legurýmum Landspítala eftir hjúkrunarrými og því er ekki hægt að flytja fólk af bráðamóttökunni. „Við höfum áhyggjur af stöðunni í heild,“ segir Aldís Rún Lárusdóttir, sviðsstjóri forvarnasviðs hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. „Gangarnir eru mikið nýttir og þeir eru nýttir umfram það sem neyðaráætlun gerir ráð fyrir.“ 180 starfsmenn bráðamóttöku kröfðust úrbóta eftir krísufund 11. febrúar. Í ályktun þeirra sagði að aðstæður á væru alvarlegar; starfsfólk og sjúklingar væru settir í aðstæður þar sem augljós hætta væri á smiti, slysum, ofbeldi og alvarlegum afleiðingum. „Við fórum í skoðun á staðnum í kjölfar bréfsins. Það sem við erum að einbeita okkur að er að laga sem allra fyrst, eða gera kröfur um úrbætur á því sem hægt er að laga strax,“ segir Aldís Rún. Hefur slökkviliðið áhyggjur af öryggi á bráðamóttökunni hvað þetta varðar? „Já, ég held að ég verði að viðurkenna það. Ástandið, eins og því er lýst þegar það er sem allra verst, það er ekki ástand sem við viljum hafa.“ „Veitingahús fengi ekki að vera í rekstri með svona ástand“ Alda Rún segir vatnsúðakerfi og brunahólf tryggja öryggi að miklu leyti. „Það þarf ekki endilega að rýma allt húsið við brunaboð eða hættuástand heldur þarf að gera það skipulega. Þá þarf að tryggja að brunahólfin, sem eru til dæmis þvert á deildina, séu virk. Þá er sérstaklega mikilvægt að búnaður eða rúm séu ekki fyrirstaða og að þær hurðir geti lokast sjálfvirkt.“ Slökkvilið vinnur með Landspítalanum að því að bæta brunavarnir. Aldís segir ekki vera hægt að beita þvingunarúrræðum til að knýja fram úrbætur á sjúkrahúsi líkt og á mörgum öðrum stöðum. „Þess vegna er, í samráði við starfsfólk spítalans, verið að gera þetta eins öruggt og hægt er. En það er rétt, veitingahús fengi ekki að vera í rekstri með svona ástand.“

Share this article