Staða bráðamóttöku Landspítala er óbreytt, viku eftir krísufund starfsfólks þar sem ástandið var sagt ógna lífi og öryggi fólks. Dæmi eru um að sjúklingar hafi legið í gluggalausu geymslurými þar í tíu daga, heilbrigðisráðherra boðar aðgerðapakka og vonast til að þannig leysist vandinn. Yfirleitt sama ástæðan Ástæðan er - eins og áður- svokallaður fráflæðisvandi sem verður þegar fólk sem hefur lokið meðferð á bráðamóttöku kemst ekki áfram á legudeildir því þar eru aldraðir sjúklingar sem bíða eftir plássi á hjúkrunarheimilum - og í dag, miðvikudaginn 18. febrúar, voru þeir 120. „Þetta er búið að vera svona heillengi. Við í Félagi bráðalækna höfum bent á ástandið allavegana síðasta áratuginn,“ segir Unnur Ósk Stefánsdóttir: formaður Félags bráðalækna. Það er ekki ofsögum sagt og ítrekað hefur verið fjallað um vandann í fréttum RÚV síðustu ár, eins og t.d. í þessari frétt frá árinu 2016. Semja á við Klíníkina og flýta opnun nýs hjúkrunarheimilis til að leysa vanda bráðamóttöku. Enn er ófremdarástand á deildinni, að sögn læknis og fólk liggur í gluggalausum rýmum á bráðamóttöku svo dögum skiptir. Félagar í fimm stéttarfélögum sem starfa á bráðamóttöku Landspítala komu saman á fundi fyrir sléttri viku vegna stöðu deildarinnar. Þar kom fram að hún hefði aldrei verið jafn slæm, aðstæður ógnuðu lífi og heilsu og krafist var tafarlausra úrbóta. „Það er gríðarlega margt í gangi til að reyna að leysa þennan hnút sem hefur myndast og á sér gríðarlega langan aðdraganda,“ segir Alma Möller heilbrigðisráðherra spurð um hvort lausn sé í sjónmáli. Fjölmargt er til skoðunar, en Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala hefur sagt að til að leysa vanda bráðamóttöku þurfi að losa 50-70 rúm á spítalanum. Ýmislegt á verkefnalista Meðal þess sem er á verkefnalista heilbrigðisráðherra er þetta: Síðustu daga hefur spítalinn tryggt sér 34 rými á öðrum stofnunum. Landspítali fær forgang að öllum hjúkrunarrýmum á höfuðborgarsvæðinu. Viðræður eru við öldrunarstofnanir um breytt skipulag. Reynt verður að flýta opnun nýs hjúkrunarheimilis í Urðarhvarfi. Semja á við Klíníkina um 10-20 rými. Rýma hluta sjúkrahótels. Taka hjúkrunarheimilið Hlévang í Reykjanesbæ aftur í notkun Hvenær gætu þessi rými verið tilbúin til notkunar? „Ég þori ekki að segja það. Ég held nú að Klíníkin yrði nú fyrst. Það er ekkert af þessu einfalt og hægt að gera 1,2 og 3,“ segir heilbrigðisráðherra. Og þangað til er staðan á bráðamóttöku óbreytt. Að sögn Unnar er meðalbiðtími sjúklinga eftir plássi á deild núna tveir sólarhringar. Það er átta sinnum lengri en þær sex klukkustundir sem miðað er við að fólk dvelji á deildinni. Sumir dvelja talsvert lengur og í rýmum sem ekki eru ætluð fyrir sjúklinga. „Það er fólk sem liggur í gluggalausum rýmum í allt að 140 klukkustundir. Jafnvel lengur. Við höfum dæmi um að fólk liggi í gluggalausum rýmum í allt að tíu daga jafnvel á bráðamóttöku,“ segir Unnur. Hvernig fer það með heilsu fólks? „Það fer hræðilega illa með heilsu fólks.“ Semja á við Klíníkina og flýta opnun nýs hjúkrunarheimilis til að leysa vanda bráðamóttöku. Enn er ófremdarástand á deildinni, að sögn læknis og fólk liggur í gluggalausum rýmum á bráðamóttöku svo dögum skiptir.