Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE lönduðu bæði fullfermi í Grindavík á föstudaginn eftir að hafa verið innan við þrjá sólarhringa að veiðum. Frá þessu segir á vef Síldarvinnslunnar þar sem fram kemur að bæði skipin hafim verið með blandaðan afla; mest þorsk, ufsa, skarkola og ýsu. Vitlaust veður en veiðarnar gengu vel „Við vorum á Selvogsbankanum allan túrinn,“ er haft eftir Agli Guðna Guðnasyni, skipstjóra á Vestmannaey. „Það var fínt veður framan af en síðan versnaði það heldur betur. Í reyndinni var vitlaust veður á fimmtudaginn og aðfaranótt föstudagsins. Það gekk vel að veiða og ég reikna með að það verði haldið beint á Selvogsbankann aftur.” Reiknar með að haldið verði á sömu slóðir Einnig er rætt við Jón Valgeirsson, skipstjóra á Bergey, sem sömuleiðis var ánægður. „Við vorum að veiðum á Planinu vestan við Eyjar og síðan á Selvogsbankanum og ánægjulegt var hve aflinn var blandaður. Túrinn var stuttur og ég reikna með að haldið verði á sömu slóðir á ný að löndun lokinni,” segir Jón Valgeirsson á vef Síldarvinnslunnar.