Aflabrögðin hjá Vestmannaeyjatogurunum Vestmannaey VE og Bergey VE hafa fiskað hafa verið slík að þurft hefur að hægja á skipunum þannig að þau hafi legið lengur í höfn en venja er til að loknum löndunum. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar. Þar segir að Bergey hafi landað fullfermi í Grindavík á föstudag. Yfirleitt um tíu10 tonn í holi „Við vorum að veiðum á Selvogsbankahaus í blíðuveðri og það var sannkölluð afbragðsveiði. Þarna fékkst langmest af ýsu en síðan var dálítið af þorski og ufsa með í aflanum. Veiðin var jöfn og fengust yfirleitt um 10 tonn í holi. Það eru mörg skip í ýsunni á þessum slóðum,” segir Valgeirsson skipstjóri. Vestmannaey landaði fullfermi í Grindavík á laugardag eftir stuttan túr. Birgir Þór Sverrisson skipstjóri segir á vef Síldarvinnsluinnar að ýsugengdin væri eftirtektarverð. Mjög gott ástand á ýsunni „Við vorum um einn og hálfan sólarhring að veiðum. Það var byrjað á Selvogsbanka og þar fékkst blandaður afli en síðan færðum við okkur á Tána til þess að ná í ýsu. Það var sannkölluð mokveiði og satt að segja vekur ýsugengdin mikla athygli. Það virðist vera mjög gott ástand á ýsunni og hana er að finna í miklu magni á stóru svæði,” er haft eftir Birgi Þór. Áhersla á karfa í næsta túr Þá segir að Bergey hafi haldið til veiða á ný í gærkvöldi og að áhersla verði lögð á karfaveiði að þessu sinni. Vestmannaey haldi aftur til veið á föstudag. Þess má geta að rætt er við Einar Ingþór Númason, skipstjóra á Sólbergi ÓF, um ýsuveiðarnar á Selvogsbanka og fleira í Fiskifréttum sem koma út á morgun.