Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Umferð austan um Miklubraut lokað í kvöld

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 18 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Umferð austan um Miklu­braut lokað í kvöld Mist Þormóðsdóttir Grönvold Lögregla lokar fyrir umferð austan um Miklubraut á milli klukkan 20 og 21 í kvöld, frá aðrein að Skeiðarvogsbrú. Á þeim tíma verður umferð austur götuna beint upp á Skeiðarvogsbrú og Réttarholtsveg. Fram kemur í tilkynningu að lokunin sé tilkomin vegna rannsóknar lögreglu, en akreinum sem liggja að Miklubraut til austurs frá Réttarholtsvegi og Skeiðarvogi verður einnig lokað á sama tíma. Lögregla lokar hluta Miklubrautar á milli 20 og 21 í kvöld. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 11 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi „Hvað hefur Mið­flokk­ur­inn að fela í þessu máli?“ Forsætisráðherra gagnrýndi málflutning stjórnarandstöðunnar eftir spurningu formanns Sjálfstæðisflokksins og formanns Miðflokksins. Hún spurði hvort Miðflokkurinn hefði eitthvað sjálfur að fela og hvort þjóðin mætti ekki ræða jákvæðar hliðar á ESB. Fyrir 28 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Verk­taki krefur ríkið um 850 millj­ón­ir vegna hjúkr­un­ar­heim­il­is á Horna­firði Húsheild-Hyrna krefur íslenska ríkið um 850 milljónir í bætur vegna tjóns sem fyrirtækið hafi orðið fyrir við byggingu hjúkrunarheimilis á Hornafirði. Fyrir 39 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Þriðja plata Iz­leifs er 100&einn Í lok janúar kom út þriðja plata Izleifs, 100&einn, en áður hafði hann sent frá sér breiðskífurnar Ég á móti mér og Þetta er Izleifur sem komu út 2024. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Hafnarfjörður Rúta brann til kaldra kola í Hafn­ar­firði Eldur kviknaði í mannlausri rútu sem verið var að flytja við Breiðhellu í Hafnarfirði. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Kvikmyndir Fór á ham­borg­ara-deit með Óskari eftir sig­ur­inn Nýbakaður Óskarsverðlaunahafi fékk sér í gogginn á leiðinni heim af hátíðinni. Hann skildi ekki við sig verðlaunagripinn góða. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Gott að ungir strák­ar fá bragð­ið af því að æfa með lands­lið­inu Þónokkrir efnilegir leikmenn úr efstu deild karla í handbolta voru mættir á æfingu með A-landsliðinu í Safamýri í dag. Viktor Gísli Hallgrímsson segir það jákvætt upp á að auka breiddina í landsliðinu. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Bubbi og Frið­rik Dór syngja um ástina Bubbi Morthens og Friðrik Dór fluttu nýtt lag í Vikunni með Gísla Marteini. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Dana Björg meidd og frá út leik­tíð­ina Dana Björg Guðmundsdóttir landsliðskona í handbolta spilar ekki meira á leiktíðinni. Hún meiddist í leik með liði sínu, Volda í Noregi í gær. Íslenska landsliðið verður því án Dönu í síðustu tveimur leikjum sínum í undankeppni EM í apríl. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag „Skýr skila­boð út í sam­fé­lag­ið – við ætlum að útrýma bið­list­um“ Rúmlega fimmtán hundruð hjúkrunarrými bætast við næstu fjögur árin, nái áform stjórnvalda fram að ganga. Inga Sæland kynnti áætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila í dag. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Allir sak­born­ing­ar neita sök í Reyk­holts­mál­inu Sexmenningar sem voru ákærðir fyrir að frelsissvipta mann í Reykholti fyrir tveimur árum, fjárkúga hann og beita grófu margþættu ofbeldi, neituðu sök þegar málið var tekið fyrir í dag. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Snjó­flóð tefur opnun Dynj­and­is­heið­ar Búið er að opna alla vegi nema um Dynjandisheiði. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er enn í gildi á Vestfjörðum og Norðurlandi. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Loka­mál­flutn­ing­ur í máli Mar­ius­ar Høiby hafinn Réttarhöldin yfir Høiby hófust snemma í síðasta mánuði. Ákæruliðirnir eru alls 40 en hann hefur neitað sök í öllum þeim alvarlegustu. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Vinna að áætlun um opnun Hormúss­unds en ætla ekki að drag­ast inn í stríð­ið Forsætisráðherra Breta segir að unnið sé að raunsærri áætlun um opnun Hormússunds en að NATO komi þar hvergi að. Bandaríkjaforseti hefur sagt það vont fyrir framtíð NATO ef aðildarríkin myndu ekki aðstoða í Íran. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Ásak­an­ir um erlend áhrif í að­drag­anda þing­kosn­inga „Fidez-flokkurinn þarf á óvinum að halda,“ segir Veronika Munk, ungversk blaðakona sem fylgst hefur með kosningum þar í landi um árabil. Tugir þúsunda mættu á samkomur andstæðra fylkinga í Búdapest um helgina. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Garðabær Starfs­fólk slökkti eld í iðn­að­ar­þurrk­ara Mikill viðbúnaður var hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins þegar eldur kom upp í iðnaðarhúsnæði í Garðabæ í morgun. Starfsfólki tókst að slökkva að mestu áður en slökkvibílar komu á svæðið. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kvikmyndir Bestu augna­blik­in á Óskarn­um Óskarsverðlaunahátíðin var haldin í Los Angeles í Bandaríkjunum í nótt. Conan O'Brien var kynnir kvöldsins og skaut meðal annars á Timothée Chalamet. Sigurvegarar kvöldsins voru bæði á viðkvæmum og fyndnum nótum. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar Þrír ís­lensk­ir kepp­end­ur á HM inn­an­húss í frjáls­íþrótt­um Ísland á þrjá keppendur á heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum innanhúss sem hefst í Torun í Póllandi á föstudag. Aníta Hinriksdóttir, Júlía Kristín Jóhannesdóttir og Christina Alba Marcus Hafliðadóttir hafa fengið keppnisrétt. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Vilja hætta við borg­ar­línu Fyrrverandi borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sem gengu til liðs við Miðflokkinn vilja hætta við lagningu borgarlínu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Ætla að tæma bið­lista í hjúkr­un­ar­rými fyrir lok 2029 Yfir 500 biðu eftir hjúkrunarrými í byrjun árs en stjórnvöld gera ráð fyrir að í árslok 2029 verði enginn á biðlista. Áætlað er að rúmlega 1.300 ný hjúkrunarrými verði tekin í gagnið fyrir árslok 2030, auk rúmlega 150 vegna bættrar aðstöðu. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísra­els­her hefur land­hern­að í suð­ur­hluta Líban­on Ísraelsher segir að um takmarkaðar og hnitmiðaðar hernaðaraðgerðir sé að ræða. Þær beinist gegn höfuðvígjum Hezbolllah-samtakanna. Markmiðið sé að auka öryggi íbúa í norðurhluta Ísraels. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Ísak meidd­ur og missir af leikj­un­um gegn Sví­þjóð Almarr Ormarsson Markvörðurinn Ísak Steinsson, sem leikur með Drammen í Noregi, hefur dregið sig úr íslenska landsliðshópnum í handbolta, sem mætir Svíþjóð í tveimur æfingaleikjum í vikunni, vegna meiðsla. Landsliðsmarkvörðurinn Ísak Steinsson missir af Svíaleikjunum RÚV / Mummi Lú HSÍ greinir frá á samfélagsmiðlum sínum en ekki kemur fram hversu alvarleg meiðslin eru né hvort annar markmaður verði kallaður inn í staðinn. Björgvin Páll Gústavsson og Viktor Gísli Hallgrímsson eru í hópnum. Fyrri leikurinn verður á Hlíðarenda á fimmtudaginn og sá seinni í Kaplakrika á laugardaginn. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Hand­tek­inn þegar hann beið tveggja kílóa af kóka­íni Brynjólfur Þór Guðmundsson Héraðssaksóknari hefur ákært rúmlega þrítugan karlmann fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Maðurinn fékk sendan pakka með pósti frá Svíþjóð sem í voru 2,3 kíló af kókaíni. Í ákæru segir að maðurinn sé ákærður fyrir að gera tilraun til að taka á móti fíkniefnunum á heimili sínu í Kópavogi. Þá var lögregla búin að fjarlægja kókaínið svo maðurinn greip í tómt. Lögregla krefst þess að maðurinn verði dæmdur til fangelsisvistar og að auki þess að fíkniefnin og tveir farsímar mannsins verði gerðir upptæk. Héraðsdómur Reykjaness. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Dauða­kaffi Undir hlýlegri súð í safnaðarheimili Langholtskirkju hittist hópur vikulega og ræðir um dauðann. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Vesturland Komin á drátt­ar­vél níu ára Arndís Guðmundsdóttir býr á Bjarnastöðum í Hvítársíðu í Borgarfirði og á sér þar uppáhaldsstað sem leynist í aldagömlu, mosavöxnu hrauni. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Guð­mund­ur Ingi snýr aftur á þing Brynjólfur Þór Guðmundsson Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins og fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, tekur sæti á Alþingi á ný í dag. Hann hefur verið í veikindaleyfi síðan í desember. Guðmundur Ingi gekkst undir hjartaaðgerð og hefur verið í leyfi meðan hann var að ná bata. Hann lét af embætti ráðherra meðan á veikindunum stóð. Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, taka einnig sæti á þingi í dag. Guðmundur Ingi Kristinsson. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Þing­menn ræða fang­els­is­mál og þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu Brynjólfur Þór Guðmundsson Fyrri umræðu um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður verður haldið áfram á Alþingi í dag. Þingfundur hefst klukkan þrjú og eru þrír liðir á dagskrá. Fundurinn hefst á óundirbúnum fyrirspurnum þar sem átta ráðherrar verða til svara. Því næst tekur við sérstök umræða um fangelsismál að beiðni Ásu Berglindar Ingadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, þar sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra verður til andsvara. Þriðji liðurinn og líklega sá tímafrekasti snýr að þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Fimmtán þingmenn eru á mælendaskrá. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælti fyrir þingsályktunartillögu í síðustu viku. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Vegir gætu lokast aftur í kvöld í stormi og hríð­ar­veðri Fjöldi fólks komst ekki leiðar sinnar vegna óveðurs og slæmrar færðar í gærkvöld. Um 350 voru í fjöldahjálparstöðvum og talsverður fjöldi gisti annars staðar. Enn eru margir vegir ófærir og óvissustig vegna snjóflóðahættu. Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna storms- og hríðarveðurs. SAMANTEKT Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar Hvar á Duplant­is heima í um­ræð­unni um þá bestu í sög­unni? Sænski stangarstökkvarinn Mondo Duplantis setti enn eitt heimsmetið nýverið og er í fantaformi fyrir HM innanhúss. Þetta var hans 15. heimsmet, en hvernig metum við árangurinn? Sigurbjörn Árni Arngrímsson fór yfir málið. Fyrir

Share this article