Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 48 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Lokað fyrir umferð austur Miklubraut í kvöld Mist Þormóðsdóttir Grönvold Lögregla lokar fyrir umferð austur Miklubraut á milli klukkan 20 og 21 í kvöld, frá Skeiðarvogsbrú. Á þeim tíma verður umferð austur götuna beint upp á Skeiðarvogsbrú og Réttarholtsveg. Fram kemur í tilkynningu að lokunin sé tilkomin vegna rannsóknar lögreglu, en akreinum sem liggja að Miklubraut til austurs frá Réttarholtsvegi og Skeiðarvogi verður einnig lokað á sama tíma. Lögregla lokar hluta Miklubrautar á milli 20 og 21 í kvöld. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 10 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Þóra Jónasdóttir skipuð yfirlögregluþjónn Hugrún Hannesdóttir Diego Þóra Jónasdóttir hefur verið skipuð yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu og mun stýra farsældarsviði þess. Hún er fyrsta konan sem er skipuð yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hún mun sitja í framkvæmdastjórn embættisins. Þóra hefur starfað sem varðstjóri, aðalvarðstjóri og aðstoðaryfirlögregluþjónn og stýrði lögreglustöðinni í Kópavogi frá 2015 til 2024, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. Þar höfðu hún og samstarfsfólk hennar frumkvæði að því að hefja og innleiða samfélagslöggæslu. Þóra Jónasdóttir. Aðsend / Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu Fyrir 41 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi „Hvað hefur Miðflokkurinn að fela í þessu máli?“ Forsætisráðherra gagnrýndi málflutning stjórnarandstöðunnar eftir spurningu formanns Sjálfstæðisflokksins og formanns Miðflokksins. Hún spurði hvort Miðflokkurinn hefði eitthvað sjálfur að fela og hvort þjóðin mætti ekki ræða jákvæðar hliðar á ESB. Fyrir 58 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Verktaki krefur ríkið um 850 milljónir vegna hjúkrunarheimilis á Hornafirði Húsheild-Hyrna krefur íslenska ríkið um 850 milljónir í bætur vegna tjóns sem fyrirtækið hafi orðið fyrir við byggingu hjúkrunarheimilis á Hornafirði. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Þriðja plata Izleifs er 100&einn Í lok janúar kom út þriðja plata Izleifs, 100&einn, en áður hafði hann sent frá sér breiðskífurnar Ég á móti mér og Þetta er Izleifur sem komu út 2024. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Hafnarfjörður Rúta brann til kaldra kola í Hafnarfirði Eldur kviknaði í mannlausri rútu sem verið var að flytja við Breiðhellu í Hafnarfirði. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kvikmyndir Fór á hamborgara-deit með Óskari eftir sigurinn Nýbakaður Óskarsverðlaunahafi fékk sér í gogginn á leiðinni heim af hátíðinni. Hann skildi ekki við sig verðlaunagripinn góða. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Gott að ungir strákar fái bragðið af því að æfa með landsliðinu Þónokkrir efnilegir leikmenn úr efstu deild karla í handbolta voru mættir á æfingu með A-landsliðinu í Safamýri í dag. Viktor Gísli Hallgrímsson segir það jákvætt upp á að auka breiddina í landsliðinu. Fyrir 2 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Bubbi og Friðrik Dór syngja um ástina Bubbi Morthens og Friðrik Dór fluttu nýtt lag í Vikunni með Gísla Marteini. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Dana Björg meidd og frá út leiktíðina Dana Björg Guðmundsdóttir landsliðskona í handbolta spilar ekki meira á leiktíðinni. Hún meiddist í leik með liði sínu, Volda í Noregi í gær. Íslenska landsliðið verður því án Dönu í síðustu tveimur leikjum sínum í undankeppni EM í apríl. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag „Skýr skilaboð út í samfélagið – við ætlum að útrýma biðlistum“ Rúmlega fimmtán hundruð hjúkrunarrými bætast við næstu fjögur árin, nái áform stjórnvalda fram að ganga. Inga Sæland kynnti áætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila í dag. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Allir sakborningar neita sök í Reykholtsmálinu Sexmenningar sem voru ákærðir fyrir að frelsissvipta mann í Reykholti fyrir tveimur árum, fjárkúga hann og beita grófu margþættu ofbeldi, neituðu sök þegar málið var tekið fyrir í dag. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Snjóflóð tefur opnun Dynjandisheiðar Búið er að opna alla vegi nema um Dynjandisheiði. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er enn í gildi á Vestfjörðum og Norðurlandi. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Noregur Lokamálflutningur í máli Mariusar Høiby hafinn Réttarhöldin yfir Høiby hófust snemma í síðasta mánuði. Ákæruliðirnir eru alls 40 en hann hefur neitað sök í öllum þeim alvarlegustu. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Vinna að áætlun um opnun Hormússunds en ætla ekki að dragast inn í stríðið Forsætisráðherra Breta segir að unnið sé að raunsærri áætlun um opnun Hormússunds en að NATO komi þar hvergi að. Bandaríkjaforseti hefur sagt það vont fyrir framtíð NATO ef aðildarríkin myndu ekki aðstoða í Íran. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Ásakanir um erlend áhrif í aðdraganda þingkosninga „Fidez-flokkurinn þarf á óvinum að halda,“ segir Veronika Munk, ungversk blaðakona sem fylgst hefur með kosningum þar í landi um árabil. Tugir þúsunda mættu á samkomur andstæðra fylkinga í Búdapest um helgina. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Garðabær Starfsfólk slökkti eld í iðnaðarþurrkara Mikill viðbúnaður var hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins þegar eldur kom upp í iðnaðarhúsnæði í Garðabæ í morgun. Starfsfólki tókst að slökkva að mestu áður en slökkvibílar komu á svæðið. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kvikmyndir Bestu augnablikin á Óskarnum Óskarsverðlaunahátíðin var haldin í Los Angeles í Bandaríkjunum í nótt. Conan O'Brien var kynnir kvöldsins og skaut meðal annars á Timothée Chalamet. Sigurvegarar kvöldsins voru bæði á viðkvæmum og fyndnum nótum. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Frjálsar Þrír íslenskir keppendur á HM innanhúss í frjálsíþróttum Ísland á þrjá keppendur á heimsmeistaramótinu í frjálsíþróttum innanhúss sem hefst í Torun í Póllandi á föstudag. Aníta Hinriksdóttir, Júlía Kristín Jóhannesdóttir og Christina Alba Marcus Hafliðadóttir hafa fengið keppnisrétt. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Vilja hætta við borgarlínu Fyrrverandi borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins sem gengu til liðs við Miðflokkinn vilja hætta við lagningu borgarlínu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Ætla að tæma biðlista í hjúkrunarrými fyrir lok 2029 Yfir 500 biðu eftir hjúkrunarrými í byrjun árs en stjórnvöld gera ráð fyrir að í árslok 2029 verði enginn á biðlista. Áætlað er að rúmlega 1.300 ný hjúkrunarrými verði tekin í gagnið fyrir árslok 2030, auk rúmlega 150 vegna bættrar aðstöðu. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísraelsher hefur landhernað í suðurhluta Líbanon Ísraelsher segir að um takmarkaðar og hnitmiðaðar hernaðaraðgerðir sé að ræða. Þær beinist gegn höfuðvígjum Hezbolllah-samtakanna. Markmiðið sé að auka öryggi íbúa í norðurhluta Ísraels. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Ísak meiddur og missir af leikjunum gegn Svíþjóð Almarr Ormarsson Markvörðurinn Ísak Steinsson, sem leikur með Drammen í Noregi, hefur dregið sig úr íslenska landsliðshópnum í handbolta, sem mætir Svíþjóð í tveimur æfingaleikjum í vikunni, vegna meiðsla. Landsliðsmarkvörðurinn Ísak Steinsson missir af Svíaleikjunum RÚV / Mummi Lú HSÍ greinir frá á samfélagsmiðlum sínum en ekki kemur fram hversu alvarleg meiðslin eru né hvort annar markmaður verði kallaður inn í staðinn. Björgvin Páll Gústavsson og Viktor Gísli Hallgrímsson eru í hópnum. Fyrri leikurinn verður á Hlíðarenda á fimmtudaginn og sá seinni í Kaplakrika á laugardaginn. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Handtekinn þegar hann beið tveggja kílóa af kókaíni Brynjólfur Þór Guðmundsson Héraðssaksóknari hefur ákært rúmlega þrítugan karlmann fyrir stórfellt fíkniefnalagabrot. Maðurinn fékk sendan pakka með pósti frá Svíþjóð sem í voru 2,3 kíló af kókaíni. Í ákæru segir að maðurinn sé ákærður fyrir að gera tilraun til að taka á móti fíkniefnunum á heimili sínu í Kópavogi. Þá var lögregla búin að fjarlægja kókaínið svo maðurinn greip í tómt. Lögregla krefst þess að maðurinn verði dæmdur til fangelsisvistar og að auki þess að fíkniefnin og tveir farsímar mannsins verði gerðir upptæk. Héraðsdómur Reykjaness. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Mannlíf Dauðakaffi Undir hlýlegri súð í safnaðarheimili Langholtskirkju hittist hópur vikulega og ræðir um dauðann. Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Vesturland Komin á dráttarvél níu ára Arndís Guðmundsdóttir býr á Bjarnastöðum í Hvítársíðu í Borgarfirði og á sér þar uppáhaldsstað sem leynist í aldagömlu, mosavöxnu hrauni. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Guðmundur Ingi snýr aftur á þing Brynjólfur Þór Guðmundsson Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður Flokks fólksins og fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, tekur sæti á Alþingi á ný í dag. Hann hefur verið í veikindaleyfi síðan í desember. Guðmundur Ingi gekkst undir hjartaaðgerð og hefur verið í leyfi meðan hann var að ná bata. Hann lét af embætti ráðherra meðan á veikindunum stóð. Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, og Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, taka einnig sæti á þingi í dag. Guðmundur Ingi Kristinsson. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Þingmenn ræða fangelsismál og þjóðaratkvæðagreiðslu Brynjólfur Þór Guðmundsson Fyrri umræðu um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar vegna þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB-viðræður verður haldið áfram á Alþingi í dag. Þingfundur hefst klukkan þrjú og eru þrír liðir á dagskrá. Fundurinn hefst á óundirbúnum fyrirspurnum þar sem átta ráðherrar verða til svara. Því næst tekur við sérstök umræða um fangelsismál að beiðni Ásu Berglindar Ingadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, þar sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra verður til andsvara. Þriðji liðurinn og líklega sá tímafrekasti snýr að þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Fimmtán þingmenn eru á mælendaskrá. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra mælti fyrir þingsályktunartillögu í síðustu viku. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 9 tímum