Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Spurði um hæfi Ölmu ráðherra

Read Full Article →

Innlent | mbl | 16.3.2026 | 18:55 Spurði um hæfi Ölmu ráðherra Alma Möller og Ingibjörg Isaksen. Samsett mynd mbl.is/Eggert/Karítas Setja bókamerki Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins, segir eiginmann Ölmu Möller heilbrigðisráðherra hafa lagt fram vantrauststillögu á framkvæmdastjórn Sjúkrahússins á Akureyri áður en Alma tók þá ákvörðun að auglýsa stöðu forstjórans lausa. Hildigunnur Svavarsdóttir óskaði eftir að láta af störfum forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri í síðasta mánuði eftir að Alma ákvað að auglýsa stöðu Hildigunnar að loknu fimm ára skipunartímabili hennar. Fagráð Sjúkrahússins á Akureyri ályktaði í kjölfarið um brotthvarf Hildigunnar og sagðist harma hið skyndilega brotthvarf hennar úr starfi forstjóra. Þá hefði verið farsælast að hún hefði setið áfram. Frétt af mbl.is Hættir sem forstjóri eftir að staðan var auglýst Frétt af mbl.is Farsælast að Hildigunnur hefði setið áfram Óhlutdrægni Ölmu lykilatriði Í óundirbúnum fyrirspurnartíma fyrr í dag sagði Ingibjörg óvissuna á Sjúkrahúsinu á Akureyri halda áfram þar sem mikil umræða hafi verið um svokallaða ferliverkasamninga og að starfsmannamál hafi verið í brennidepli með uppsögnum lækna. Þá lægi fyrir að á næstu misserum þyrfti að taka mikilvægar ákvarðanir um rekstur og framtíð sjúkrahússins, þar á meðal yfirstjórn þess. Við slíkar aðstæður væri lykilatriði að engin væfi léki á hæfi og óhlutdrægni Ölmu sem færi með yfirstjórn málaflokksins. „Mig langar að nefna þrennt í þessu samhengi. Í fyrsta lagi: Heilbrigðisráðherra vék nýlega sæti við meðferð máls sem tengdist ferliverkasamningum á Sjúkrahúsinu á Akureyri þar sem eiginmaður hennar starfaði á sjúkrahúsinu og var með slíkan samning. Það var mat ráðherra sjálfrar að aðstæður væru þannig að hennar hæfi til meðferðar málsins gæti verið dregið í efa. Í öðru lagi: Eiginmaður ráðherra lagði fram vantrauststillögu á framkvæmdastjórn Sjúkrahússins á Akureyri í kjölfar fyrirætlana um uppsögn þessara ferliverkasamninga. Við skulum hafa í huga að ferliverkasamningar eins og eiginmanns ráðherra skila tugum milljóna yfir þriggja ára tímabil til fyrirtækis í eigu heilbrigðisráðherra. Í þriðja lagi: Í beinu framhaldi tekur heilbrigðisráðherra þá ákvörðun að auglýsa stöðu framkvæmdastjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Fagráð sjúkrahússins hefur lýst yfir verulegum áhyggjum af þessari stöðu og ályktað að farsælast hefði verið að forstjóri hefði setið áfram. Samkvæmt 3. gr. stjórnsýslulaga er stjórnvald vanhæft þegar aðstæður eru til þess fallnar að óhlutdrægni þess sé dregin í efa, óháð því hvort raunveruleg hagsmunatengsl séu til staðar. Umboðsmaður Alþingis hefur ítrekað þessa lögskýringu. Því spyr ég hæstv. heilbrigðisráðherra: Á hvaða grundvelli telur ráðherra sig hafa verið hæfa til að taka þá ákvörðun að auglýsa stöðu framkvæmdastjóra Sjúkrahússins á Akureyri lausa?,“ sagði Ingibjörg. Frétt af mbl.is Alma vanhæf vegna hlutastarfs eiginmannsins Fer eftir hverjir sækja um Benti Alma á í svari sínu að skipunartími embættismanna væri samkvæmt lögum fimm ár og að bundið væri í lög að upplýsa um ákvörðun um að auglýsa starfið með minnst sex mánaða fyrirvara. Þá væri það þannig að ef forstjóri teldi sig enn hafa mikið fram að færa gæti hann sótt um og fengið tækifæri til að sannfæra hæfisnefnd og ráðherra um það í umsóknarferlinu. Þá teldi Alma sig hæfa til að auglýsa stöðuna og þegar kæmi að frekari úrvinnslu færi það eftir hverjir myndu sækja um embættið. Sömu aðstæður enn til staðar „Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir, en við stöndum hérna frammi fyrir grundvallarspurningu um stjórnsýslu og traust á stjórnsýslunni. Getur ráðherra sem þegar hefur viðurkennt vanhæfi í málum sem tengjast Sjúkrahúsinu á Akureyri vegna persónulegra tengsla nú tekið ákvarðanir um ráðningu nýs framkvæmdastjóra? Aðstæðurnar sem hæstv. ráðherra viðurkenndi sem vanhæfisgrundvöll eru enn til staðar. Eiginmaður ráðherra er aðili að umræddum samningum. Viðkomandi lagði fram vantrauststillögu á framkvæmdastjóra sjúkrahússins í kjölfar fyrirætlana um uppsögn þeirra. Í framhaldinu ákveður ráðherra að auglýsa stöðu framkvæmdastjóra í stað þess að framlengja ráðningarsambandið eins og oft er gert, því að lögin kveða ekki á um skyldu til að auglýsa stöðuna aftur þegar sami aðili getur verið endurskipaður, sérstaklega ef forstjóri hefur staðið sig vel, traust ríkir til stjórnandans og enginn sérstakur ágreiningur er til staðar. Þetta er stjórnsýsluákvörðun og pólitísk ákvörðun hjá hæstv. ráðherra. Það er einmitt margt sem bendir til þess að þessi ákvörðun sé bæði ómálefnaleg og líklega ógild, samanber reglur um stjórnsýslurétt, en hæfisreglur stjórnsýslulaga eru settar til að tryggja að enginn réttmætur vafi vakni um óhlutdrægni þeirra sem fara með opinbert vald. Því vil ég spyrja: Hyggst ráðherra sjálf fara með það verkefni að ráða nýjan framkvæmdastjóra Sjúkrahússins á Akureyri? Og ef svo er, telur ráðherra að með hliðsjón af þeim tengslum, greiðslum og deilum sem hér hafa verið raktar sé útilokað að réttmætur vafi vakni um hæfi hennar samkvæmt stjórnsýslulögum til að taka slíkar ákvarðanir og yfirleitt eftirlit með stofnunum og fjármálum hennar til lengri tíma?,“ sagði Ingibjörg er hún tók til máls á ný í ræðustól forseta. „Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri“ Svaraði Alma með þeim hætti að hún teldi sig hafa svarað spurningunni; hennar aðkoma að ráðningarferli nýs forstjóra færi eftir hverjir myndu sækja um embættið. „En það eru auðvitað margar ástæður fyrir því að störf eru auglýst eða ekki auglýst, bara mjög margvíslegar ástæður, og þetta er ekki í fyrsta skipti sem slík ákvörðun er tekin. Það eru margir hlutlægir mælikvarðar sem horft er til, t.d. rekstur innan heimilda á liðnum árum og margt fleira sem í erindisbréfi stendur. Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri. Það er auðvitað þannig að ráðherra hefur ráðgjafa innan ráðuneytis sem hafa verið þar lengur en ráðherrann þó að auðvitað sé ákvörðunin ráðherrans. Að þessari ákvörðun komu fleiri aðilar en ég tek auðvitað fulla ábyrgð á henni. Og bara til að svara aftur þingmanni þá fer úrvinnsla málsins auðvitað eftir því hverjir umsækjendur eru.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Spurði um hæfi Ölmu ráðherra Góð stemning á frumsýningu Mömmó United ætlar ekki að skipta um skoðun Snædís tryggði sér sæti í úrslitum Bocuse d’Or Kjartan Atli í pólitík Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stríðið hefur ekkert með NATO að gera One Battle After Another sigurvegari kvöldsins Um 500 manns biðu veðrið af sér Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Bendir á pólitískan ómöguleika Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Andlát: Þorkell Jóelsson Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Spurði um hæfi Ölmu ráðherra Góð stemning á frumsýningu Mömmó United ætlar ekki að skipta um skoðun Snædís tryggði sér sæti í úrslitum Bocuse d’Or Kjartan Atli í pólitík Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segja Rammagerðina fara með rangfærslur Hríðarveður norðvestanlands Segir lokanirnar klárt brot á lögum landsins Náðu ekki lengra en út að vegamótum Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Bendir á pólitískan ómöguleika Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Andlát: Þorkell Jóelsson Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir

Share this article