- What: Hildigunnur Svavarsdóttir resigned as director of Sjúkrahússins á Akureyri.
- Impact: A new director will be appointed to lead the hospital.
Hildigunnur Svavarsdóttir óskaði í dag eftir að láta af starfi forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Þetta gerði hún eftir að Alma Möller heilbrigðisráðherra ákvað að auglýsa stöðuna að loknum fimm ára skipunartíma Hildigunnar. Akureyri.net greindi fyrst frá ákvörðun Hildigunnar. Þar er vísað í bréf hennar til starfsmanna sjúkrahússins. Þar vísar hún til ákvörðunar Ölmu um að auglýsa stöðuna. „Í ljósi þeirrar ákvörðunar hef ég óskað eftir að láta af störfum frá og með deginum í dag. Ég tel mikilvægt að skýr forysta og fullt traust ríki um stöðu forstjóra og að nýr aðili taki við sem fyrst. Heilbrigðisráðuneytið hefur fallist á þá beiðni.“