Innlent | mbl | 16.3.2026 | 19:13 Segir Kristrúnu ekki svara spurningum Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Kristrún Frostadóttir. Samsett mynd mbl.is/Eyþór/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Kemur akkúrat engum við hvernig Inga kýs Gagnrýna að aðlögunarferli sé kallað samningaviðræður Óskýr svör ráðherra um aðlögun Þjóðaratkvæði áfram rætt í dag 18 mánuðirnir byggja ekki á formlegum samtölum » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Þjóðaratkvæði áfram rætt í dag Snýr aftur eftir endurhæfingu Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Þorgerður á fund utanríkismálanefndar » Fleiri tengdar fréttir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, segir fundarliðinn óundirbúnar fyrirspurnir fara að verða nánast óþarfan á Alþingi ef ráðherrar þurfa aldrei að svara þar þeim spurningum sem til þeirra er beint. Þetta sagði Sigmundur undir fundarliðnum fundarstjórn forseta fyrr í dag en höfðu þá hann og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra tekist á í óundirbúnum fyrirspurnartíma. Í upphafi fyrirspurnar sinnar sagði Sigmundur ríkisstjórnina nálgast málið um þjóðaratkvæðagreiðslu varðandi viðræður um aðild að Evrópusambandinu með þeim hætti að verið væri beinlínis að „fela innihaldið“. Talað væri að leyfa ætti þjóðinni að velja en á sama tíma mætti þjóðin ekki vita hvað hún væri að velja. Spurði Sigmundur Kristrúnu hvort henni væri ljóst að þegar ríki sækir um aðild að Evrópusambandinu og gengur til viðræðna bæri því strax að byrja að laga sig að sambandinu með ýmsum leiðum svo sem lagabreytingum, nýjum stofnunum, fjölgun embættismanna og þeim aðferðum sem Evrópusambandið krefðist af umsóknarríkjum. „Veit hæstv. forsætisráðherra Íslands það núna að í aðildarviðræðum við Evrópusambandið ber umsóknarríkinu að hefja strax aðlögun?“ Frétt af mbl.is Óskýr svör ráðherra um aðlögun Segir að margt muni breytast með inngöngu Svaraði Kristrún með þeim hætti að henni fyndist dapurlegt að verða vitni að þannig málflutningi þar sem ítrekað væri haldið fram að þjóðin viti ekki sínu viti, væri að láta blekkjast og gæti ekki aflað sér upplýsinga. „Mér finnst þetta ótrúlegur málflutningur. Leyfum okkur hér inni að vera ósammála en þjóðin veit sínu viti. Hér er verið að tala um að það sé verið að fela hitt og þetta. Hvað hefur Miðflokkurinn að fela í þessu máli? Hvað hefur Miðflokkurinn að fela frá þjóðinni í umræðu um kosti við Evrópusambandið? Af hverju má ekki tala um samkeppnismál? Af hverju má ekki tala um tollamál? Af hverju má ekki tala um myntbandalag? Er þetta kannski eitthvað sem Miðflokkurinn vill ekki að þjóðin fái að taka þátt í umræðu um? Já, auðvitað felast einhverjar breytingar í því að Ísland gangi í Evrópusambandið, alveg eins og þegar Ísland gekk í EES á sínum tíma. Ég veit ekki betur en að við séum reglulega hér inni að samþykkja alls konar aðlögun að EES-samningnum, sem í gegnum tíðina hefur verið Íslandi til bóta. Ef það er verið að tala um að allar aðlaganir í framtíðinni muni fela í sér einhverja neikvæða þróun þá veit ég ekki hvert við erum komin í íslenskri pólitík. Þessi umræða er farin að snúast um eitthvað allt annað en hún átti að snúast um,“ svaraði forsætisráðherrann. Frétt af mbl.is Þjóðaratkvæði áfram rætt í dag Sagði Kristrún næst að treysta ætti þjóðinni. Þá lægi fyrir að margt myndi breytast með inngöngu í Evrópusambandið en það væri ekki það sem áformuð þjóðaratkvæðagreiðsla myndi snúast um. „Við erum að greiða atkvæði um það hvort við hefjum slíkar viðræður. Ef fólk vill síðan ekki fá lokasamninginn og klára hann þá verður bakkað út úr því ferli. Hér er stöðugt, talandi um blekkingar, verið að halda því fram að við séum að bakka með Ísland inn í Evrópusambandið án þess að þjóðin viti af því. Það er rangt, það er kolrangt, frú forseti, og það skiptir máli að slíkur málflutningur fái ekki að lifa. Það er þjóðin sem fær fyrsta orðið og hún fær líka lokaorðið í þessu máli.“ Frétt af mbl.is Gagnrýna að aðlögunarferli sé kallað samningaviðræður Ætti ekki að þurfa í þróuðu landi „Frú forseti. Hér birtist vandinn sem við er að eiga. Þegar hæstv. forsætisráðherra er spurður skýrra spurninga um innihaldið þá bregst hæstv. ráðherra við með reiði og með því að pakka pakkanum inn í sífellt fleiri umbúðir: jólapappír, afmælispappír, fermingarpappír, dagblöð, allt sem ríkisstjórnin finnur til að fela innihaldið. Þess vegna ætla ég að reyna að spyrja aftur hæstv. forsætisráðherra, og það ætti ekki að þurfa í þróuðu landi að spyrja forsætisráðherra landsins hvort hann þekki grundvallaratriðin í því hvernig umsókn um aðild að Evrópusambandinu gengur fyrir sig en ég ætla að gera aðra tilraun: Veit hæstv. forsætisráðherra að samhliða aðildarviðræðum að Evrópusambandinu hefst aðlögun að Evrópusambandinu vegna þess að Evrópusambandið gerir ráð fyrir því að ef ríki sækir um ætli það sér að ganga inn í og laga sig að reglum Evrópusambandsins?,“ sagði Sigmundur er hann tók til máls á ný. „Önnur taktík í þessu máli“ Sagði þá Kristrún þjóðinni ekki bera að gera neitt nema það sem Alþingi Íslendinga myndi samþykkja og það sem væri samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu. „Við erum með stjórnarskrá í þessu landi. Við erum með þingræði í þessu landi. Það liggur alveg fyrir. Það er verið að reyna að þvæla þessu máli í umræðu um eitthvað annað en það er. Tökum þá málefnalega umræðu um hvað þessi þjóðaratkvæðagreiðsla snýst. Hún snýst um að leyfa þjóðinni að segja hvort það eigi einmitt að setja þetta mál á dagskrá eða ekki. Það er það sem þetta snýst um. Þessi ríkisstjórn mun hlusta, hún mun virða það ef það kemur nei, hún mun líka virða það ef það kemur já. En mig er farið að gruna að það sem stjórnarandstaðan hræðist hvað mest sé að fá afgerandi svar í þessu máli.“ Mátti þá heyra í Sigmundi kalla inn í svar Kristrúnar að svara spurningu sinni. „Hv. þingmaður kallar hér fram í að ég eigi að svara spurningunni. Ég veit ekki betur en að ég hafi hafið mitt svar með því að svara spurningunni: Það er stjórnarskrá í þessu landi. Það er þing í þessu landi. Það er þingræði í þessu landi og við þurfum ekki að gera neitt sem við viljum ekki gera. En þetta er enn önnur taktík í þessu máli; að kalla fram í, þyrla öllu upp, gera allt tortryggilegt. Náum okkur niður. Ræðum þetta málefnalega. Hættum að láta eins og þjóðin muni blekkjast í þessu máli. Þjóðin mun eiga fyrsta og síðasta orðið í þessu máli.“ Fundarliðurinn að verða óþarfur Í fundarliðnum fundarstjórn forseta skömmu síðar tók Sigmundur á ný til máls og sagði óundirbúinn fyrirspurnartíma nánast farinn að verða óþarfan ef ráðherrar þyrftu þar ekki að svara spurningum sem til þeirra væri beint og frekar talað fram hjá málinu og snúið út úr og komist upp með það án athugasemda forseta þingsins. „Þetta er mikið alvörumál en sérstaklega þegar um er að ræða mál sem varðar framtíð landsins og fullveldi og áformaða þjóðaratkvæðagreiðslu að hæstv. ráðherrar skuli ekki einu sinni svara spurningum um til hvers er ætlast af þjóðinni í því samhengi, hvað hún eigi að greiða atkvæði um.“ Tengdar fréttir Ísland og ESB Kemur akkúrat engum við hvernig Inga kýs Gagnrýna að aðlögunarferli sé kallað samningaviðræður Óskýr svör ráðherra um aðlögun Þjóðaratkvæði áfram rætt í dag 18 mánuðirnir byggja ekki á formlegum samtölum » Fleiri tengdar fréttir Alþingi Vill fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur Þjóðaratkvæði áfram rætt í dag Snýr aftur eftir endurhæfingu Fékk ekki áheyrn hjá æðstu ráðamönnum Þorgerður á fund utanríkismálanefndar » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Losnaði við bláa skeggið 675 dögum síðar Segir Kristrúnu ekki svara spurningum Spurði um hæfi Ölmu ráðherra Góð stemning á frumsýningu Mömmó United ætlar ekki að skipta um skoðun Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stríðið hefur ekkert með NATO að gera Þjóðaratkvæði áfram rætt í dag Hafa opnað tvær fjöldahjálparstöðvar Trump vill aðstoð frá NATO og Kína Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Bendir á pólitískan ómöguleika Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Andlát: Þorkell Jóelsson Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Losnaði við bláa skeggið 675 dögum síðar Segir Kristrúnu ekki svara spurningum Spurði um hæfi Ölmu ráðherra Góð stemning á frumsýningu Mömmó United ætlar ekki að skipta um skoðun Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Trump vill aðstoð frá NATO og Kína Allir neita sök í Reykholtsmáli Óskýr svör ráðherra um aðlögun Um 500 manns biðu veðrið af sér Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstj