- What: Discussion on gender pay gap in the labor market
- Impact: General labor market analysis in Iceland
Innlent | Morgunblaðið | 16.3.2026 | 22:45 Kerfislægur munur á vinnumarkaði Staða kvenna lykilatriði fyrir viðhald á sterkum vinnumarkaði, segir Sigrún Brynjarsdóttir. mbl.is/Karítas Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Munurinn á tekjum og starfsferli kynja byrjar snemma og eykst jafnt og þétt yfir starfsævina. Konur eru oftar en karlar í hlutastarfi og starfa frekar í ákveðnum atvinnugreinum, sem hefur áhrif á tekjur og starfsframgang. Þetta bendir til þess að tekjumunur kynja sé ekki endilega afleiðing einstaklingsbundinna ákvarðana heldur þess hvernig vinnumarkaður og umönnunarkerfi bregðast við barneignum. Þetta segir Sigrún Brynjarsdóttir hagfræðingur hjá BHM. Staða jafnréttismála á Íslandi þykir góð í alþjóðlegum samanburði, eru ályktunarorð BHM. Áhrif barneigna á stöðu kynjanna á vinnumarkaði eru enn misjöfn. Rannsóknir benda til þess að umönnun og ólaunuð heimilisstörf skiptist ójafnt milli foreldra. Oftar en ekki eru það konur sem sinna stærri hluta heimilisstarfa og uppeldi barna, sem getur haft áhrif á þátttöku þeirra á vinnumarkaði, tækifæri til framgangs í störfum og launaþróun. Um þetta var fjallað á morgunverðarfundi BHM undir yfirskriftinni Staða mæðra á vinnumarkaði sem haldin var í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna, 8. mars. Atvinnuþátttaka minnkar við barneignir „Nýleg rannsókn frá Svíþjóð gefur til kynna að þegar laun kvenna hækka og nálgast laun maka þeirra verður skipting heimilisstarfa og fjölskylduábyrgðar jafnari. Þetta bendir til þess að fjölskylduábyrgð hafi áhrif á efnahagslega stöðu heimilisins. Greining okkar bendir til að stærstu þáttaskilin í starfsferli kvenna verði við fyrstu barneign. Þá breytist atvinnuþátttaka og tekjur ná síður sama stigi og hjá körlum,“ segir Sigrún Brynjarsdóttir. Árið 2024 var fæðingartíðni á Íslandi 1,56 börn á konu, og hefur hún aldrei verið lægri. Í samfélagsþróun sér þess stað með ýmsu móti. mbl.is/Sigurður Bogi „Við sjáum að atvinnuþátttaka kvenna minnkar um 20% við fyrstu barneign og nær ekki aftur sama stigi fyrr en tíu árum síðar. Þegar við tölum um minni þátttöku þýðir það fyrst og fremst að konur fara í mun meira mæli í hlutastörf en karlar. Ríflega fjórðungur kvenna 25-54 ára er í hlutastarfi en um 10% karla. Meðal eldri aldurshópa er munurinn meiri, eða 38% kvenna á móti 15% karla. Þetta hefur áhrif langt út fyrir tímabilið þegar börn þarfnast mestrar umönnunar. Færri vinnustundir þýða minni tekjur, minni möguleikar til framgangs í atvinnulífinu og á endanum lægri lífeyrisréttindi síðar á ævinni. Þetta skiptir líka máli fyrir samfélagið í heild. Konur eru í miklum meirihluta þeirra sem starfa í opinbera geiranum og manna því að stórum hluta heilbrigðis-, mennta- og velferðarkerfin okkar. Þess vegna skiptir miklu máli að vinnumarkaðurinn og umgjörð fjölskyldulífs styðji við að þær geti haldið fullri þátttöku á vinnumarkaði.“ Drifkraftur hagvaxtar Stærstu og mestu framfarirrnar á vinnumarkaði síðustu ár ráðast af meiri menntun og atvinnuþátttöku kvenna. Konur á Íslandi í dag eru að jafnaði menntaðri en karlar og þátttaka þeirra á vinnumarkaði er mjög mikil í alþjóðlegum samanburði. Þetta helst svo í hendur við það sem OECD , Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, hefur bent á, að aukin þátttaka kvenna á vinnumarkaði hafi verið einn mikilvægasti drifkraftur hagvaxtar síðustu áratugi. „En þrátt fyrir þessar framfarir er enn kerfislægur munur milli kynjanna hvað varðar starfshlutfall, val á atvinnugreinum og áhrif barneigna á starfsferil. Auk þess sem menntun kvenna skilar ekki þeim fjárhagslega ábata sem eðlilegt getur talist. Þau störf sem sinnt er af fjölmennum kvennastéttum eru vanmetin. Þeim stéttum er gert erfiðara að sækja kjarabætur, auk þess sem konur gegna oftar hlutastörfum en karlar og hafa lægri tekjur af þeim sökum.“ Fæðingartíðni hefur lækkað víða Árið 2024 var fæðingartíðni á Íslandi 1,56 börn á konu, og hefur hún aldrei verið lægri frá því að mælingar hófust árið 1853. Tölur fyrir síðasta ár liggja ekki fyrir, en yfir lengri tíma er þróun mála öll á eina leið. „Fæðingartíðni hefur lækkað víða í þróuðum ríkjum á síðustu árum og það skýrist af samspili margra þátta, til dæmis því að fólk eignast börn síðar á ævinni, húsnæðiskostnaður hefur hækkað sem dregur úr vilja fólks til barneigna og auk þess sem óvissa á vinnumarkaði getur haft áhrif á ákvarðanir um fjölskyldustærð. Þetta sést líka í rannsóknum sem benda til að staða fólks á vinnumarkaði og efnahagslegir hvatar skipti máli þegar fólk tekur ákvarðanir um barneignir. Þegar allt bendir til þess að barneignir hafi varanleg áhrif á tekjur og starfsferil – sérstaklega hjá konum – er einfalt að draga þá ályktun að fólk slái barneignum á frest eða ákveði að eignast ekki börn,“ segir Sigrún Brynjarsdóttir og að síðustu: Ekki aðeins jafnréttismál „Þetta er sérstaklega mikilvægt umhugsunarefni á tímum þar sem þjóðir eldast hratt og þeim fækkar sem ætlað er að standa undir kostnaði við nauðsynleg samfélagsleg kerfi. Þessi staða mun því hafa áhrif á samfélagið allt á næstu áratugum. Áhrifanna verður vart í framboði vinnuafls, mönnun í lykilþjónustu og sjálfbærni velferðarkerfisins. Þess vegna er staða kvenna á vinnumarkaði ekki aðeins jafnréttismál dagsins í dag heldur lykilatriði fyrir viðhald á sterkum vinnumarkaði til framtíðar.“ Hver er hún? Sigrún Brynjarsdóttir fæddist 1993 og starfar sem hagfræðingur hjá BHM. Hún lauk M.Sc.-gráðu í hagfræði með áherslu á þjóðhagfræði og fjármálamarkaði frá Barcelona School of Economics árið 2022 og B.Sc.-gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Sigrún hefur starfað bæði hjá hinu opinbera og í fjármálageiranum, meðal annars hjá Samkeppniseftirlitinu og EFTA í Lúxemborg, og hefur reynslu af hagfræðilegri greiningu og gagnavinnslu. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Kerfislægur munur á vinnumarkaði Viktor Gísli: Ekki sárabót eftir vonbrigðin á EM Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB „Munum að sjálfsögðu vinna“ Fyrirliðinn lætur gott heita Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rannsökuðu slysstað á Miklubraut Trump vill aðstoð frá NATO og Kína Hyggjast fjölga hjúkrunarrýmum um tæpan helming Mikill reykur úr skíðlogandi rútu á Völlunum Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Þóra skipuð yfirlögregluþjónn Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár milljónir Nýjast á mbl.is » Kerfislægur munur á vinnumarkaði Viktor Gísli: Ekki sárabót eftir vonbrigðin á EM Þórdís myndi vilja þétta samstarf við ESB „Munum að sjálfsögðu vinna“ Fyrirliðinn lætur gott heita Umræðan Hver á þennan bústað, já eða nei? Grænni, friðsamlegri og manneskjulegri framtíðarsýn Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hríðarveður norðvestanlands Fundarfall þegar ráðherrann fór til Síle Hyggjast fjölga hjúkrunarrýmum um tæpan helming Um 500 manns biðu veðrið af sér Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Margir höfðu samband til að tilkynna seinagang Tilkynnti um framboð mánuði eftir ráðningu Loka fyrir umferð vegna rannsóknar „Þá leist okkur ekki á blikuna“ Snýr aftur eftir endurhæfingu Náðu ekki lengra en út að vegamótum Eldurinn kviknaði út frá kerti New York Times fjallar um hraunkælingarstjórann Þóra skipuð yfirlögregluþjónn Drukknir menn reikuðu um gólfið Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns „Hélt ég væri game over“ Ólafur Ragnar furðar sig á „óvissudansi“ ESB Þjóðvegurinn lokaður: Koma upp fjöldahjálparstöð Unnið við lúxushótel á ný Þakkaði Carney og sagði Íslendinga óhrædda Gular viðvaranir: Hríð og hvassviðri Allt tiltækt lið kallað út vegna elds í íbúð Blöskrar verðlaun á fótboltamóti 4 ára sonar síns Snarræði afstýrði stórslysi: „Alvarlegt flugatvik“ Kort: Hætturnar víða við Kringluna og Smáralind Drukknir menn reikuðu um gólfið Upptaka: Davíð Oddsson jarðsunginn Andlát: Þorkell Jóelsson Myndir: Töfrar í loftinu á stórtónleikum Laufeyjar Óþægilegur grunur Snorra Mássonar Lögreglan leitar að 14 ára stelpu Ómari gert að greiða pari þrjár mil