Innlent | mbl | 3.3.2026 | 9:15 Marka stefnu gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði Af fundi samstarfsvettvangsins. Ragnar Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra ásamt Þorbjörgu Sigríði Gunnalugsdóttur dómsmálaráðherra í forgrunni. Ljósmynd/Stjórnarráðið Setja bókamerki Íslensk stjórnvöld hafa í fyrsta sinn markað sér stefnu til að sporna gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði. Stefnunni fylgir 13 aðgerða aðgerðaáætlun en stefnan og aðgerðirnar eru afrakstur af vinnu samstarfsnefndar stjórnvalda og samtaka aðila vinnumarkaðarins sem félags- og húsnæðismálaráðherra skipaði á síðasta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráði Íslands. Með brotastarfsemi á innlendum vinnumarkaði er átt við athafnir sem brjóta gegn lögum og reglum og sem framkvæmdar eru með kerfisbundnum hætti fyrir fjárhagslegan ávinning þannig að launafólk er misnotað eða samkeppnisstaða skert, sem segir í tilkynningunni. Frétt af mbl.is Berjast gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði Fimm markmið og 13 aðgerðir Dæmi um slík brot eru félagsleg undirboð, fölsun reikninga eða bókhalds tengt vinnu launafólks, ólöglegar ráðningar eða greiðsla launa utan skráningar, misnotkun á starfs- og dvalarleyfum, mansal í vinnu, sem og önnur alvarleg og ítrekuð brot gegn öryggi, heilbrigði eða félagslegum réttindum starfsfólks á vinnumarkaði. Stefna og aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði Stefnan og aðgerðaáætlunin gilda frá árinu 2026 til 2028 og innihalda framtíðarsýn, meginmarkmið og aðgerðir sem flokkast eftir fimm markmiðum: Aðgerðir til að ná fram markmiði um að styrkja samstarf stjórnvalda Aðgerðir til að ná fram markmiði um öfluga greiningu og miðlun gagna Aðgerðir til að ná fram markmiði um vandaða útgáfa dvalar- og atvinnuleyfa sem mætir þörfum á vinnumarkaði Aðgerðir til að ná fram markmiði um aukna skilvirkni í beitingu viðurlaga við brotum á vinnumarkaði Aðgerðir til að ná markmiði um aukna fræðslu og vitund um réttindi og skyldur á vinnumarkaði Margir koma að borðinu Að vinnu við stefnuna komu fulltrúar frá ASÍ, BHM, BSRB, félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, ríkislögreglustjóra, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, Skattinum, Útlendingastofnun og Vinnueftirlitinu. Jafnframt komu að vinnunni forsætisráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og dómsmálaráðherra. Haft er eftir Ragnari Ingólfssyni, félags- og húsnæðismálaráðherra, að brot á vinnumarkaði séu ólíðandi og mikilvægt sé að grípa til öflugra aðgerða til að vinna gegn skipulagðri brotastarfsemi, mansali og félagslegum undirboðum. „Stefnan og aðgerðaáætlunin marka tímamót og vinnsla þeirra sýnir hversu miklum árangri gott samstarf getur skilað.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gæti tekið starfið af Jürgen Klopp Marka stefnu gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði Hætta á varasömum sviptivindum Hefja leik gegn besta liði heims Félagið hyggst draga bæinn fyrir dómstóla á ný Umræðan Davíð Oddsson – minningarorð Hvað sagði í viðræðuramma ESB vegna Íslands? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kalla út björgunarsveitir til að ferja fólk á milli húsa Ófært víða á Austurlandi og skólahaldi aflýst Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá „Heimili okkar á að vera griðastaður“ Mest lesið Í gær Í vikunni Búið að tendra í púðurtunnu Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir RÚV segir upp samningi við Sýn Straumleysi í firðinum: „Ekki komið svona vont veður í mörg ár“ Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Eignir meira virði en bókhald sýnir Tók yfir auglýsingaskiltin í níu mínútur Sjálfstæðismenn samþykkja lista í Ölfusi Blint getur orðið á Hellisheiði og í Þrengslum í suðaustan hríð Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Eldur í Hafnarfirði: Allt tiltækt lið kallað út Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Tók yfir auglýsingaskiltin í níu mínútur Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Kalla út björgunarsveitir til að ferja fólk á milli húsa Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Nýjast á mbl.is » Gæti tekið starfið af Jürgen Klopp Marka stefnu gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði Hætta á varasömum sviptivindum Hefja leik gegn besta liði heims Félagið hyggst draga bæinn fyrir dómstóla á ný Umræðan Davíð Oddsson – minningarorð Hvað sagði í viðræðuramma ESB vegna Íslands? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ófært víða á Austurlandi og skólahaldi aflýst Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Eignir meira virði en bókhald sýnir Drónaskynjarar orðnir algengir Mest lesið Í gær Í vikunni Búið að tendra í púðurtunnu Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir RÚV segir upp samningi við Sýn Straumleysi í firðinum: „Ekki komið svona vont veður í mörg ár“ Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Eignir meira virði en bókhald sýnir Tók yfir auglýsingaskiltin í níu mínútur Sjálfstæðismenn samþykkja lista í Ölfusi Blint getur orðið á Hellisheiði og í Þrengslum í suðaustan hríð Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Eldur í Hafnarfirði: Allt tiltækt lið kallað út Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Tók yfir auglýsingaskiltin í níu mínútur Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Kalla út björgunarsveitir til að ferja fólk á milli húsa Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju