Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Tekið á brotastarfsemi þegar upp kemst

Read Full Article →

Innlent | mbl | 3.3.2026 | 16:37 Tekið á brotastarfsemi þegar upp kemst Mæta á brotum með viðurlögum og þeim skal beitt skilvirkt en á sama tíma í takt við umfang og alvarleika brota. mbl.is/Eggert Setja bókamerki „Á Íslandi er samkeppnishæft og heilbrigt atvinnulíf sem leggur grunn að velferð og hagsæld fólksins í landinu. Vinnumarkaðurinn býr við skýra og góða umgjörð þar sem borin er virðing fyrir réttindum vinnandi fólks og farið að þeim reglum sem gilda um rekstur fyrirtækja. Stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins vinna í sameiningu gegn brotastarfsemi og tekið er á henni þegar upp kemst.“ Þannig hljómar framtíðarsýn ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins um með hvaða hætti takast eigi við brotastarfsemi á vinnumarkaði. Stjórnvöld hafa markað sér stefnu og aðgerðaáætlun gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði. Frétt af mbl.is Marka stefnu gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði Samstarf, eftirlit, forvarnir og viðurlög Þar eru sett fram tvö meginmarkmið: Samstarf ólíkra aðila leggur grunn að skilvirku eftirliti og samhæfðu viðbragði við brotum á vinnumarkaði. Samstarf og eftirlit byggir á upplýsingaöflun, gögnum og greiningu, er áhættumiðað og hlutverk og ábyrgð þeirra sem að samstarfinu koma er vel skilgreint. Hvað felst í markmiðinu? Í fyrsta lagi að samstarf ýmissa stofnana sem fara með ólík starfssvið, s.s. löggæslu, skattayfirvalda og vinnueftirlits, sé nauðsynlegt til að vinna gegn brotastarfsemi. Samstarfið sé formlegt og hægt sé að kalla til þá opinberu aðila sem þurfa þykir hverju sinni. Samstarfið nái þó ekki einvörðungu til opinberra aðila heldur einnig til aðila vinnumarkaðarins. Þá sé tryggt að eftirlitsstofnanir komi á markvissri upplýsingaöflun og greiningu gagna um ætluð brot á vinnumarkaði og miðli þeirri þekkingu á milli sín svo unnt sé að bregðast við brotum á vinnumarkaði. Byggt á þeim greiningum sem unnar eru í samstarfinu sé hægt að beita áhættumiðaðri nálgun í eftirliti á hverjum tíma. Eftirlit verði þannig markvissara auk þess sem forvarnargildi þess eykst. Forvarnir gegn brotum á vinnumarkaði byggjast á skilvirku eftirliti, fræðslu og samstarfi. Viðurlögum við brotum á vinnumarkaði er beitt í takt við umfang, alvarleika og endurtekningu og hafa fælingarmátt. Hvað felst í markmiðinu? Að mikilvægt sé að fyrirbyggja brot á vinnumarkaði og það sé gert með greiningu á gögnum og forvörnum sem byggja á þekkingu og yfirsýn yfir það sem gerist á vinnumarkaði. Með fræðslu og samstarfi sé grunnur lagður að því að réttindi og skyldur séu virt hjá þeim sem nýir koma inn á vinnumarkaði, hvort sem um sé að ræða launafólk eða fyrirtæki. Brotum sé mætt með viðurlögum og þeim beitt skilvirkt en á sama tíma í takt við umfang og alvarleika brota. Tekið sé á endurteknum brotum og er viðurlögum ætlað að vera með þeim hætti að þau hafi fælingarmátt. Með viðurlögum er tryggt að brotastarfsemi veiti þeim sem slíkt stunda ekki forskot í samkeppni við önnur fyrirtæki. Til að vinna að velferð fólks á vinnumarkaði séu forvarnir mikilvægar og að allt kapp sé lagt á að koma í veg fyrir hugsanleg brot. Frétt af mbl.is Launaþjófnaður eigi að vera refsivert efnahagsbrot Til ársins 2028 Stefnunni fylgir 13 aðgerða aðgerðaáætlun og gildir hún frá árinu 2026 til 2028. Að vinnu við stefnuna komu fulltrúar frá ASÍ, BHM, BSRB, félags- og húsnæðismálaráðuneytinu, ríkislögreglustjóra, Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Samtökum atvinnulífsins, Skattinum, Útlendingastofnun og Vinnueftirlitinu. Jafnframt komu að vinnunni forsætisráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og dómsmálaráðherra. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ísland tapaði 46:0 Tekið á brotastarfsemi þegar upp kemst Staðfesta atvinnurekstarbann fyrrum eigenda Ítalíu Þjóðhagsráð kom saman til fyrsta fundar „Vörn er besta sóknin“ Umræðan Davíð Oddsson – minningarorð Hvað sagði í viðræðuramma ESB vegna Íslands? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Marka stefnu gegn brotastarfsemi á vinnumarkaði Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Myndskeið: Nýttu göngin sem bækistöð og skjól Loftárásir duga ekki einar og sér Mest lesið Í gær Í vikunni RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Myndskeið: Nýttu göngin sem bækistöð og skjól Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Eldur í Hafnarfirði: Allt tiltækt lið kallað út Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Tók yfir auglýsingaskiltin í níu mínútur Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Kalla út björgunarsveitir til að ferja fólk á milli húsa Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju Nýjast á mbl.is » Ísland tapaði 46:0 Tekið á brotastarfsemi þegar upp kemst Staðfesta atvinnurekstarbann fyrrum eigenda Ítalíu Þjóðhagsráð kom saman til fyrsta fundar „Vörn er besta sóknin“ Umræðan Davíð Oddsson – minningarorð Hvað sagði í viðræðuramma ESB vegna Íslands? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Blint getur orðið á Hellisheiði og í Þrengslum í suðaustan hríð Beint: Starmer sendir þyrlur með drónavarnargetu Kunnugt um 140 Íslendinga á áhrifasvæðum Búið að tendra í púðurtunnu Mest lesið Í gær Í vikunni RÚV segir upp samningi við Sýn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Búið að tendra í púðurtunnu Hríðarveður suðvestanlands og gular viðvaranir Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Sala Strandarkirkju á Stafnshóli í höfn Ísland getur orðið skotmark óvinveittra ríkja Útför Davíðs Oddssonar verður opinber Myndskeið: Nýttu göngin sem bækistöð og skjól Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Eldur í Hafnarfirði: Allt tiltækt lið kallað út Gefa út gula viðvörun fyrir Suðvesturland Myndskeið: Sjáðu Grjótagjá í nýju ljósi Ferðamenn fá ekki inni á Gauksstöðum Tók yfir auglýsingaskiltin í níu mínútur Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Kæru húsfélagsins um aðgengi vísað frá Minnast Davíðs: „Meira en stjórnmálamaður“ Kalla út björgunarsveitir til að ferja fólk á milli húsa Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Hópslysaáætlun virkjuð á Suðurlandi Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Gert að rífa húsin og yfirgefa lóðirnar Von á snjókomu: Spá krefjandi aðstæðum Smjörva skipt út á Landspítalanum „Þetta er veður sem við lesum um í gömlum frásögnum“ „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ Gauti er eitt barnanna sem lifðu af Aðalsteinn hættir og tilkynnir óvænta beygju

Share this article