Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Verk og vit hefst á fimmtu­dag

Read Full Article →

Stórsýningin Verk og vit verður haldin dagana 19.–22. mars 2026 í Laugardalshöll. Sýningin er vettvangur fagaðila í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum og munu um 100 sýnendur taka þátt í ár. Sýningin er opin fagaðilum alla sýningardagana, en almenningi gefst kostur á að heimsækja hana helgina 21.-22. mars. „Fjölbreytileiki sýnenda hefur aldrei verið meiri á sýningunni en nú,“ segir Áslaug Pálsdóttir, framkvæmdastjóri AP almannatengsla, sem er framkvæmdaraðili sýningarinnar. „Með Verk og vit höfum við bæði náð að skapa tækifæri fyrir íslenska markaðinn til að kynna vörur sínar og þjónustu og veitt erlendum aðilum tækifæri til að taka þátt sem sjálfstæðir sýnendur eða undir formerkjum íslenskra félaga.“ Áslaug segir eftirvæntinginu sérstaklega mikla í ár, því 20 ár séu liðin frá fyrstu sýningunni. Hún segir greinilegt að sýnendur stefni að því að gera afmælissýninguna sem veglegasta. „Margir þeirra þekkja handtökin vel, því þátttaka í sýningunni er orðin fastur liður í starfsemi fjölmargra fyrirtækja. Það er einstök upplifun að ganga inn í sýningarsalinn við opnun, finna orkuna og sjá hvernig hugmyndir og vinna síðustu mánaða lifna við.“ Að sögn Áslaugar er Verk og vit mikilvægur fundarstaður fyrir iðnaðinn í heild sinni, þar sem tengslamyndun, samstarf og ný tækifæri verða til. „Hér myndast formlegir og óformlegir fundir, nýsköpun kviknar og þekking innan iðnaðarins eykst. Þetta er vettvangur sem styrkir samstarf og samstöðu innan greinarinnar og þannig myndast einstök heildarupplifun sem hefur einkennt Verk og vit frá upphafi.“ Sýningin hefur verið afar vel sóttu síðustu ár. Horft til framtíðar og stórá­tak í byggingariðnaði Áslaug segir gaman að horfa til baka og sjá hvernig sýningin hafi þróast. „Við höfum gengið í gegnum bæði uppsveiflu- og samdráttartímabil en Verk og vit hefur á öllum tímum verið sameiginlegur fundarstaður iðnaðarins og mikilvægur sem slíkur óháð ytri aðstæðum,“ segir Áslaug og bætir við að það sé ekki síður mikilvægt að ræða framtíðina. Framundan sé mikilvægt og stórt uppbyggingartímabil fyrir Ísland. „Mikil innviðaskuld hefur gert það að verkum að stórátak þarf til að tryggja öryggi á mörgum sviðum í opinberri þjónustu á Íslandi. Fjölga þarf heilbrigðisstofnunum, leikskólum, skólum og orkumannvirkjum, byggja þarf brýr og tvöfalda hringveginn og samhliða því þarf að ráðast í umfangsmikið viðhald innviða. Það hefur því aldrei verið mikilvægara en núna að stilla saman strengi fyrir stórátak í byggingariðnaði.” Meðal sýnenda á Verk og vit verða byggingaverktakar, verkfræðistofur, tækjaleigur, hugbúnaðarfyrirtæki, framleiðendur, menntastofnanir, fjármálafyrirtæki og ráðgjafafyrirtæki. Að sögn Áslaugar er allt sýningarrými löngu uppselt og því ljóst að sýnendur ætli ekki að missa af viðburðinum í ár. Samhliða sýningunni verður einnig haldin ráðstefna og aðrir viðburðir. Samtök iðnaðarins munu standa fyrir ráðstefnu í tengslum við Verk og vit þar sem meðal annars verður rætt um mannauðsmál og áhrif tæknibreytinga á byggingariðnaðinn. Sýnendur standa einnig fyrir fjölmörgum áhugaverðum fyrirlestrum meðan á sýningu stendur. Á Verk og vit í ár verða veitt Sýningarverðlaun eins og á fyrri sýningum en nú í fyrsta sinn verða einnig veittar viðurkenningar fyrir Nýsköpun ársins – Tækniþróun og lausnir og Sjálfbærni og umhverfisvitund. Áslaug segir bæði fagaðila og almenning hafa sýnt sýningunni mikinn áhuga í gegnum árin. Sem dæmi hafi síðustu þrjár sýningar fengið um 25.000 gesti hver. Hún bendir á að miðasala fari fram á Tix.is. Samstarfsaðilar sýningarinnar eru félags- og húsnæðismálaráðuneytið, innviðaráðuneytið, Samtök iðnaðarins, Byko og Landsbankinn. AP almannatengsl eru framkvæmdaraðili sýningarinnar.

Share this article