Stórsýningin Verk og vit hófst í Laugardalshöll í gær en sýningin hefur fest sig í sessi sem einn mikilvægasti vettvangur fagaðila í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum og taka um 100 sýnendur þátt í ár. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, og Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra settu sýninguna formlega en almenningi gefst kostur á að heimsækja sýninguna um helgina. Eyjólfur sagði við setninguna að markmið sýningarinnar um að efla tengsl, kynna nýjungar og auka þekkingu í geiranum hafi sjaldan verið jafn mikilvæg og núna. „Vonandi í dag eða á næstu dögum verður flutt frumvarp um stofnun sérstaks innviðafélags á Alþingi. Markmiðið með því er að opna á fjármögnun frá langtímafjárfestum og tryggja aukna samfellu í útgjöldum ríkisins til þessa mikilvæga málaflokks,“ sagði innviðarráðherra. Sjá einnig Verk og vit hefst á fimmtudag Í máli Ragnars Þórs kom fram að það væru ákveðnar viðvörunarbjöllur sem hringdu varðandi byggingargeirann en hann mætti ekki sigla inn í svipaða tíma og eftir efnahagshrunið þegar byggingargeirinn lenti í algjöru frosti. „Þetta verður vonandi okkar samvinnuverkefni ekki bara næstu árin heldur líka næstu vikur og mánuði að verkefnastaðan verði með þeim hætti að við getum haldið sjó og gott betur. Sýning eins og Verk og vit er mikilvægur vettvangur þar sem þessi samvinna á sér stað og við getum hist og talað saman, deilt sýn og hugmyndum og myndað tengsl,“ sagði Ragnar Þór. Eftirvæntingin er sérstaklega mikil í ár en 20 ár eru liðin frá fyrstu Verk og vit sýningunni. Meðal sýnenda eru byggingaverktakar, verkfræðistofur, tækjaleigur, hugbúnaðarfyrirtæki, framleiðendur, menntastofnanir, fjármálafyrirtæki og ráðgjafafyrirtæki.